Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13DV 9. APRÍL 2020
F yrir aftan heimili Sigursteins í Kópavoginum er lítið og ofurkrútt
legt garðhýsi þar sem við
spjöllum. Einhvers staðar á
vappi í kring er kisan Kátína
sem ákvað sjálf að flytja inn
á heimilið fyrir níu árum, óá
nægð með nýja læðu á gamla
heimilinu en nýjum eigendum
til mikillar ánægju. Það er
eitthvað mjög traustvekjandi
og hlýlegt við Sigurstein enda
hefur honum margoft tekist að
fá fólk til að opna sig um við
kvæma og erfiða lífsreynslu.
Móðir Sigursteins, sem stað
ið hefur með honum í gegnum
þykkt og þunnt, býr þar einn
ig. Í bílskúr á lóðinni hefur
verið innréttuð íbúð og þar
býr hinn 19 ára Hussain, sem
flúði til Íslands undan ógn
talibana í Afganistan. Hann
kynntist Sigursteini í gegnum
aðra flóttamenn og einstök
tengsl hafa myndast þeirra
á milli. Það er Sigursteini að
þakka að Hussain fékk al
þjóðlega vernd á Íslandi eftir
langa og stranga baráttu.
Við byrjum á því að ræða
aðeins um Sönn íslensk saka
mál, þáttaröðina sem Sigur
steinn er hvað oftast tengdur
við. Nú hafa þættirnir öðlast
nýtt líf, á hlaðvarpsformi, og
Íslendingar taka því fagnandi.
Á sama tíma njóta erlendir
glæpaþættir mikilla vinsælda
á Netflix.
Af hverju eru sakamála-
þættir svona vinsælir? „Það
er áhugavert að þú spyrjir
vegna þess að ég er sjálfur
enginn sérstakur áhuga
maður um sakamál. Ég les til
dæmis sjaldan glæpasögur
eða slíkt, gefst oft upp eftir
20 eða 30 blaðsíður. En það er
eitthvað við þessar mannlegu
hliðar á málunum. Og hvað
málin segja okkur um sam
félagið á hverjum tíma fyrir
sig.“
Fyrsta þáttaröðin af Sönn
um íslenskum sakamálum
fór í loftið á RÚV árið 1999. Á
þeim tíma höfðu slíkir þættir
aldrei verið gerðir fyrir ís
lenskt sjónvarp. Og það voru
ekki allir sem höfðu trú á
hugmyndinni. Menn töldu að
smæð Íslands og nálægðin á
milli fólks væri of mikil.
Í einum þætti fyrstu serí
unnar sat Sigursteinn and
spænis dæmdum raðnauðg
ara á LitlaHrauni. Þetta var
Björgvin Þór Ríkharðsson
sem á sínum tíma hlaut viður
nefnið „hættulegasti glæpa
maður Íslands.“
Það var sérstök upplifun
að taka viðtal við mann sem
neitaði algjörlega að horfast
í augu við brot sín. Þátturinn
vakti sums staðar hörð við
brögð.
„Einhverjir spyrja kannski
hvort það sé réttlætanlegt að
leyfa þessum einstaklingi sem
sýnt hefur siðrofshegðun að
tjá sig. Mér finnst mikilvægt
eins og í þessu tilviki að horfa
á hvaðan þessi einstaklingur
kemur, umhverfið sem mótar
hann, fjölskylduaðstæður og
annað. Það er mikilvægur
partur.
Það eru heldur ekki allir á
því að það eigi að rifja upp
viðkvæm mál, gömul sár sem
eru ekki gróin. Ef tiltekið mál
getur varpað nýju ljósi á hlut
ina, fengið okkur til að sjá
hlutina í öðru samhengi, kennt
okkur eitthvað um okkur sjálf
og samfélagið, þá tel ég það
vera næga ástæðu. Það á ekki
að rifja upp mál „af því bara“
eða í afþreyingarskyni,“ segir
Sigursteinn og vísar þar með
al annars í bandarískt „meló
drama“.
Nokkur af þessum eldri mál
um rötuðu ekki í hlaðvarpið.
„Sum þeirra eru bara þess
eðlis að ég sé ekki ástæðu
til að kryfja þau frekar, mér
fannst ég ekki geta komið með
neitt nýtt. Í sumum tilvikum
eru sakborningar kannski
komnir á allt annan stað í líf
inu og búnir að taka út sína
refsingu, það hefur líka áhrif.“
Eitt af þeim málum sem
koma bæði fyrir í fyrstu þátta
röðinni og í hlaðvarpinu nú
er morðið á Gunnari Sigurði
Tryggvasyni sem fannst látinn
í bifreið sinni við Laugalæk í
Reykjavík árið 1968. Hann
hafði verið skotinn í hnakkann.
Í dag, 52 árum eftir morðið, er
málið enn óleyst. Sigursteinn
segir morðið á Gunnari það
mál sem standi einna helst upp
úr. Í hlaðvarpsþættinum koma
fram nýjar vísbendingar sem
þykja gefa tilefni til að taka
rannsókn málsins upp á ný.
Sigursteinn segir morðið á
Gunnari eitt af þeim málum
sem standa upp úr þegar litið
er til baka. „Þegar ég byrjaði
að kanna málið á sínum tíma
var ég sjálfur með fyrir
fram mótaðar hugmyndir um
ákveðna atburðarás. Það hefur
því verið nokkuð einstakt að
sjá allar þessar nýju hliðar á
málinu.“
Blaðakonu er kunnugt um
nokkra einstaklinga sem
hlusta á hlaðvarpið á kvöldin
þegar lagst er til svefns. Þó
svo að viðfangsefnið sé ekki
beint fagurt er víst eitthvað
róandi og traustvekjandi
við rödd Sigursteins. „Ég
hef reyndar heyrt það líka.
Kannski maður gefi út hlað
varpið „Sögur fyrir svefn
inn“,“ segir Sigursteinn kím
inn.
Þurfum að staldra við
Sigursteinn reynir eins og
flestir landsmenn að halda sig
heima þessa dagana og hann
kvartar ekki: segist geta haft
það mun verra. Hann óttast
ekki COVID19 faraldurinn
sem nú geisar. Hann trúir því
að hér sé eitthvað stærra að
verki.
„Ég trúi á að það sé almætti
og að það hjálpi okkur og leið
beini á ákveðinn hátt, með vís
bendingum og leiðbeiningum.
Það sem er að gerast núna, ég
sé það einfaldlega sem enn
eitt stóra viðvörunarmerkið,
inngrip, frá þessu almætti.
Þessi veira, sem fólk er að
agnúast út í, hún er í raun birt
ingarmynd á mistökum okkar
mannanna. Þessi veira væri
ekki til ef við værum ekki
að fara með dýrin eins og við
gerum, eyðileggja búsvæðin
þeirra. Svo ekki sé minnst á
afbrigðilega matarmarkaði
með villt og verksmiðjufram
leidd dýr.
Fyrir mér er þetta tækifæri.
Ætlum við að fara aftur í sama
tortímandi ruglið þegar þetta
er yfirstaðið? Við munum
ekki fá annan séns. Þetta er
mjög þörf lexía fyrir okkur:
Núna þurfum við virkilega að
staldra við og hugsa málið upp
á nýtt. Minnka kjötát. Breyta
neysluháttum okkar. Ferðast
minna og dvelja lengur erlend
is í stað þess að fara í styttri
helgarferðar. Breyta land
búnaðinum í vistvæna fram
leiðslu. Vegna þess að ástand
ið núna er brandari miðað við
þær hörmungar sem loftslags
breytingar munu kalla yfir
okkur.“
Opinn fyrir ástinni
Sigursteinn er einhleypur og
barnlaus. Hann hefur þó notið
þeirra forréttinda að finna
ástina. Árið 2007 gekk hann í
hjónaband. Eftir sjö ár skildi
leiðir en vinskapurinn fór
hvergi. Sigursteinn er sáttur
við þessi sögulok. En skilnaður
er alltaf erfiður.
„Þetta er erfitt, ojá, og þetta
er sársaukafullt. Í skilnaði
kemstu ekki hjá því að meiða
aðra manneskju, burtséð frá
því hvernig þessi ákvörðun
um skilnað var tekin. Það er
alltaf eitthvað sem meiðir í
þessu ferli. Það má kannski
segja að þetta hafi þróast út
í að vera vináttusamband. Ég
held að við höfum báðir upp
lifað að það hafi eitthvað skort,
það var eitthvað sem vantaði
upp á til að þetta gæti gengið
sem hjónaband.
Ég hef ekki verið í mörgum
samböndum í gegnum ævina.
Þegar ég horfi til baka tek
ég eftir því að flest þau sam
bönd, hjónaband meðtalið, sem
ég hef verið í hafa verið með
mönnum af erlendum uppruna.
Það hefur ekki verið meðvituð
ákvörðun, hefur bara einhvern
veginn æxlast þannig.“
Sigursteinn hafði lítil sem
engin tengsl við föður sinn
þegar hann var ungur og hann
segist hafa hugleitt hvort þetta
hafi eitthvað með það að gera.
„Ég hef svona velt því fyrir
mér hvernig stendur á þessu,
af hverju ég vil síður mynda
sambönd á „heimasvæðinu“.
Hvort ég sé kannski að leita
að einhverju sem er fyrir utan
minn þægindahring? Ísland er
lítið og þú kemst varla hjá því
að hitta vini og gamla kærasta
í Bónus eða á Laugaveginum.
En ég er svo sannarlega opinn
fyrir því að kynnast öðrum
manni, tengjast öðrum á nýjan
hátt og upplifa nýja hluti. En
ég er langt frá því að vera eitt
hvað örvæntingarfullur. Ég
er ekki að leita. Minn vandi
er svolítið sá að ég helli mér
út í þau verkefni sem ég er að
sinna hverju sinni. Þau hugð
arefni sem eru efst hjá mér
hverju sinni og eru að sækja
á mig. Þá set ég gjörsamlega
allt einkalíf til hliðar. Það
hefur örugglega ýtt eitthvað
undir að þau sambönd sem ég
hef verið í hafa yfirleitt ekki
varað lengur en í nokkur ár,
hjónabandið í sjö ár.“
Hefur þig einhvern tímann
langað að eignast börn og
koma upp fjölskyldu? „Fyrir
nokkrum árum byrjaði ég að
fara djúpt í þessar pælingar
og það rann upp fyrir mér að
það er allt of mikið af börnum
í heiminum en of lítið af góð
um foreldrum.“
Blóð er ekki alltaf þykkara
en vatn. Sigursteinn nefnir
sem dæmi Hussain, afganska
flóttapiltinn sem hann hefur
tekið upp á sína arma og
Auður Ösp
Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Ég er sjálfur
enginn sérstakur
áhugamaður um
sakamál.