Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2020, Blaðsíða 18
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
N ú á tímum COVID-19 faraldursins eru marg-ir að sinna vinnu sinni
heiman frá. Í slíkri fjarvinnu
reka margir sig á þann vegg
að það virðist erfitt að koma
sér að verki og/eða aðskilja
heimilislífið frá vinnunni. Hér
eru því nokkur ráð sem er gott
að hafa í huga í fjarvinnunni.
Vinnutími
Að vinna heima getur skapað
þá freistingu að dreifa vinnu-
deginum yfir lengri tíma,
reyndu af fremsta megni að
sleppa því. Haltu áætlun og
sinntu vinnuskyldu þinni á
hefðbundnum tíma. Þá, að
venju, hefur þú tíma fyrir
sjálfan þig og þinn áhugamál
að vinnudeginum loknum.
Morgunrútína
Haltu sömu rútínunni þegar
þú mætir í vinnuna, þó svo að
vinnan sé núna á borðstofu-
borðinu heima. Vaknaðu,
farðu í sturtu, klæddu þig,
fáðu þér kaffi og allt það sem
þú gerir vanalega áður en þú
heldur í vinnuna. Rútínan get-
ur hjálpað þér að halda dampi
og koma þér í vinnugírinn.
Slepptu náttfötunum
Klæddu þig í föt. Þetta getur
bæði hjálpað þér að koma
þér í gang í vinnunni og líka
hjálpað þér að mynda sál-
rænan aðskilnað milli vinnu
og heimilislífs. Þetta getur
líka hreinlega verið gott og
nauðsynlegt fyrir sálina, að
líða eins og manneskju en ekki
eins og haug. Þá gætir þú líka
haft kveikt á vefmyndavélinni
á næsta fjarfundi.
Mörk gagnvart
sambýlingum
Settu sambýlisfólki mörk.
Hvort sem það eru meðleigj-
endur, foreldrar, maki eða
börn sem eru heima á sama
tíma og þarf það að vera á
hreinu að þú sért í vinnunni
en ekki heima í afslöppun.
Það getur verið erfitt að setja
börnunum mörk en þá getur
verið sérstaklega mikilvægt
að finna leið til að fá þau til
að virða það þegar þú ert á
fjarfundum eða í símanum.
Reyndu eftir fremsta megni
að skýra út að þegar þú ert í
vinnunni þá gangi það fyrir,
aðrir hlutir geta beðið, alveg
eins og áður, þangað til eftir
að vinnudegi lýkur.
Þú átt enn rétt á
veikindadögum
Ef þú veikist á meðan þú
sinnir fjarvinnunni áttu rétt á
að taka þér veikindadag. Það
á ekki að vera eðlileg krafa
vinnuveitanda að þú harkir af
þér og sinnir vinnu að vanda,
hefðir þú ekki getað það í eðli-
legum aðstæðum.
Mundu eftir
vinnufélögunum
Það getur verið einmanalegt
að vinna heima og fyrir marga
er mikilvægur þáttur vinn-
unnar að hafa samskipti við
kollegana. Víða leysir tæknin
úr þessu þar sem þú getur átt
í samskiptum við vinnufélag-
ana heiman frá þér, eða með
því að brúka tölvupóst, sam-
skiptamiðla og símann til að
henda línu á vinnufélagana,
svona í stað þess að hitta þá
við kaffivélina.
Vinnustöð
Sennilega grípa margir tæki-
færið í fjarvinnunni og djöfl-
ast með fartölvuna um allt
hús. Fjarfundur á meðan þú
sýður egg í eldhúsinu, horfir
á þátt með öðru auganu, eða
dúllar þér í heimilisstörfum.
Þetta er ekkert endilega ráð-
legt og getur komið niður á
framleiðni og lengt þann tíma
sem þú þarft að taka þér í að
leysa verkefni. Betra er að
koma sér upp vinnustöð, jafn-
vel þótt hún sé bara við borð-
stofuborðið. Þá getur þú staðið
upp til að taka þér pásur, rétt
eins og frá skrifborðinu í
vinnunni, og þannig gefst líka
tækifæri til að skilja á milli
heimilislífs og vinnutíma.
Athyglin
Heima eru engir vinnufélagar
eða yfirmenn sem sjá hvað þú
ert að gera. Það getur verið
freistandi að sogast að sam-
félagsmiðlum, fréttavefjum
og skemmtiefni á netinu.
Eins getur verið freistandi
að hoppa strax inn í verkefni
fyrir heimilið, í stað þess að
bíða til loka vinnudags. En
reyndu að muna að þrátt fyrir
allt ertu í vinnunni og getur
ráðstafað kaffi- og matar-
hléum að vild, en þegar þú ert
að vinna, þá ættir þú að sinna
því.
Raunhæfar væntingar
Ekki búast við því að fjar-
vinnan gangi frábærlega frá
fyrsta degi. Þetta er mikil
breyting og það tekur tíma
að finna taktinn. Eins getur
verið að fyrsti dagurinn, jafn-
vel dagarnir, gangi vel en svo
fari truflanir og heimilislífið
að gera vart við sig. Ekki ör-
vænta. Þá má hafa ráðin hér
að ofan í huga og reyna að
koma sér aftur af stað. Reyndu
að finna út hvað það er helst
sem er að gera þér erfitt fyrir
og hvað er hægt að gera í því.
Einnig getur verið gott að
spyrja vinnufélaga sem eru að
vinna heima hvernig þeir fari
að. Eru þeir kannski að glíma
við sama vanda? Þá er hægt
að ræða það og deila ráðum og
mistökum.
Lok vinnudags
Þegar vinnudegi er lokið,
vertu búinn að vinna. Ef það
er klukkan 16.00, gerðu þá það
sem þú gerir vanalega eftir
vinnu.
Farðu í þægilegri föt, farðu
að dóla þér í heimilisverkum,
hringdu í ástvini og láttu
vinnuna eiga sig þar til vinnu-
dagur hefst að nýju. Alveg
eins og áður þarf líkami þinn
og hugur frítímann til að end-
urhlaða sig. n
TÆKLAÐU FJARVINNUNA EINS OG
SANNUR FAGMAÐUR MYNDI GERA
Stór hluti
fólks vinnur nú
heima að dag-
legum verkefn-
um sínum. Það
getur mörgum
reynst áskorun.
Erla Dóra Magnúsdóttir
erladora@dv.is
Tækin við höndina í vinnu heima eru oftar en ekki, fartölva, farsími og kaffibollinn. MYND/GETTY
18 PRESSAN 9. APRÍL 2020 DV