Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2020, Side 23
MATUR 23DV 9. APRÍL 2020
S igurjón Ernir Sturluson er afreksíþróttamaður, þjálfari og faðir. Hann
hefur bullandi áhuga á hreyf-
ingu og næringu, enda þarf
hann að vera með þau atriði á
hreinu til að geta hlaupið 128
kílómetra fjallahlaup með
7.500 metra hækkun.
En hvað borðar maður sem
þarf að hafa orkuna í há-
marki? Ef þú vilt vita hvað
maðurinn sem getur hlaupið
128 kílómetra í senn, æfir
tvisvar á dag og fer í ísbað
á kvöldin lætur ofan í sig, þá
skaltu halda áfram að lesa.
Hefðbundinn dagur
Hefðbundinn dagur í lífi
Sigurjóns Ernis er vel skipu-
lagður enda nóg að gera. Hann
starfar sem markaðs- og
kynningarfulltrúi hjá Sport-
vörum og heldur úti Fjar-
þjálfun Sigurjóns Ernis. Við
báðum hann um að lýsa venju-
legum degi í sínu lífi.
„Eftir að ég eignaðist dóttur
mína, Líf, þá leyfi ég mér að
sofa aðeins lengur en áður
fyrr. Svefninn er án efa okkar
mikilvægasta athöfn. Ég fer í
háttinn klukkan 22 og vakna
yfirleitt á milli 6:30-7:00. Ég
reyni að ná góðum teygjum
með kaffibollanum og blað-
inu á morgnana. Á sama tíma
reyni ég að gera ungu döm-
una klára í leikskólann. Eftir
að sú stutta er komin í leik-
skólann reyni ég að ná stuttri
æfingu sem er yfirleitt inter-
val hlaupaæfing eða hjól með
laufléttu styrktarsetti í lokin,“
segir hann.
Sigurjón Ernir vinnur í
Sportvörum klukkan 9-17 og
tekur yfirleitt aðra æfingu
rétt fyrir kvöldmat. Eftir
kvöldmat vinnur hann í fjar-
þjálfunarrekstri sínum og
endar síðan daginn á 3-4 mín-
útna ísbaði.
Borðar fjögurra osta pitsu
fyrir krefjandi keppnir
Ég hef lengi
notast við föstur
í minni daglegu
rútínu.
Sigurjón Ernir
Sturluson er
einn fremsti
fjallahlaupari
Íslands. Við
fengum að
vita hvað hann
borðar á venju-
legum degi.
Sigurjón Ernir Sturluson hefur verið grænmetisæta í þrjú ár. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Orkumikið salat
Hráefni
Bygg
Tófú (eða annað
sojakjöt)
Ferskt grænmeti
Hnetur
Vínber
Edamame-baunir
Avókadó
Mæjónes
Terranova Life Drink
Aðferð
Fyrst sýð ég bygg í potti í 45 mín-
útur, sýð yfirleitt mikið magn til að
eiga. Um leið steiki ég tófú á pönnu
í nokkrar mínútur. Á meðan sker
ég ferska grænmetið og blanda
því í skál með salati, hnetum, vín-
berjum, tómötum, edamame-baun-
um og avókadó. Að lokum set ég
mæjónes og Terranova Life Drink
út á og borða með bestu lyst.
Fylgstu með Sigurjóni Erni á
samfélagsmiðlum
Instagram: @sigurjonernir
Snapchat: @sigurjon1352
Facebook: Fjarþjálfun Sigurjóns
Ernis
Þetta borðar
Sigurjón Ernir
á venjulegum degi
Morgunmatur
Ég hef bara ekki borðað morgun-
mat í nokkur ár og aldrei verið
betri, minn morgunmatur er 300-
500 ml af vatni og góður kaffi-
bolli, ef ég tek ekki vatnsföstu.
Hádegismatur
Hafragrautur með grófum höfrum,
chiafræjum, sólblóma fræjum,
hampfræjum, hnetumixi, 3 te-
skeiðar af grófu hnetusmjöri og
Foodspring próteindufti. Einnig
verður oft góður
réttur á Spír-
unni fyrir
valinu.
Millimál
nr. 1
3 3 0 ml
kolvetna-
skert Hleðsla
með tveimur lág-
kolvetna brauðsneiðum með
smjöri og osti. Eða Hleðsla og
hreint skyr með hnetumixi og
chiafræjum.
Millimál nr. 2
Foodspring prótein út í 330 ml
möndlumjólk, banani og Food-
spring próteinstykki.
Kvöldmatur
Orkumikið salat með Terranova
Life Drink út á. Eftirréttur er oftar
en ekki grísk jógúrt með próteini
og dass af hnetumixi.
í minni daglegu rútínu og nota
form af föstu sem er kallað
16/8. Þá borða ég ekkert á
milli klukkan 20-12 og borða
svo fjórar máltíðir á milli 12-
20. Ég hef einnig bætt við 24
klukkustunda föstu alltaf einu
sinni í viku frá sunnudags-
kvöldi til mánudagskvölds.
Yfir daginn er ég að innbyrða
um 3.000-3.500 kaloríur. Ég
er grænmetisæta í dag og
hef verið það í þrjú ár. Ég
legg áherslu á að borða holl
matvæli og passa að fá nóg
af próteini og fitu í gegnum
mataræði mitt.“
Uppáhaldsmáltíð
„Það er engin ákveðin mál-
tíð mín uppáhaldsmáltíð. Ég
reyni að hafa fjölbreytni og
hollustu í fyrirrúmi. En mín
uppáhalds-svindlmáltíð er
sennilega fjögurra osta pitsa
sem verður oftar en ekki líka
fyrir valinu hjá mér kvöldið
fyrir krefjandi keppni, mikil
orka í slíkri máltíð. En fastan
hefur hjálpað mér að þjálfa
líkamann í að þola stórar
og orkumiklar máltíðir sem
er mikill kostur fyrir ultra
hlaup. Þar er mikilvægasti
hlutinn af keppninni að næra
sig vel í gegnum hlaupið.“
„Ég er með kaldan pott
heima. Ísbaðið hjálpar mér
með endurheimt og betri
svefn.“
Einn fremsti
Spartan-hlaupari Íslands
Sigurjón Ernir er með fremri
fjallahlaupurum á Íslandi og
er einn fremsti Spartan-hlaup-
ari landsins. Spartan-hlaup
snúast um að hlaupa ákveðna
vegalengd og klára ýmsar
krefjandi hindranir og þrautir
í gegnum hlaupið.
„Mín keppnishlaup eru allt
frá 5 km götuhlaupi yfir í 128
kílómetra fjallahlaup með
mikilli hækkun. Spartan-
hlaupin eru allt frá 8-12 kíló-
metrum með 15-25 hindrunum
til 50+ kílómetra með yfir 60
hindrunum,“ segir hann.
Fastar í sólarhring vikulega
„Ég hef lengi notast við föstur
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is