Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Blaðsíða 22
Sérblað 31. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ
BOÐLEIÐ:
Notendavænar heildarlausnir
fyrir öll fyrirtæki
Boðleið hefur lengi sérhæft sig í síma- og netmálum fyrir fyrirtæki og stofnanir
af öllum stærðum. Þá býður
Boðleið upp á nokkrar útfærslur af
myndfundarlausnum og kappkostar
að veita fyrirtækjum heildarþjónustu
og ráðgjöf á öllum tengdum sviðum.
„Við bjóðum upp á heildarlausnir
þar sem hægt er að fá sem
flest á einum stað; netkerfi,
internet, símanúmer, símkerfi,
tölvubúnað, hugbúnað og allt
fyrir fundarherbergið. Fyrirtæki
geta fengið farsímanúmer,
landsímanúmer og netið allt hjá
okkur. Við erum einbeitt fyrirtæki
með lausnir fyrir allt sem fyrirtæki
þurfa,“ segir Þorvaldur Harðarson,
framkvæmdastjóri Boðleiðar.
Aukinn áhugi á myndfundarbúnaði
„Undanfarið höfum við fundið fyrir
auknum áhuga á myndfundarbúnaði
hjá okkar viðskiptavinum. Fyrirtæki
eru farin að huga meira að
umhverfinu og reyna m.a. að fækka
flugferðum eins og hægt er. Þar
kemur Boðleið inn með öflugar
fundarlausnir frá Yealink.“ Yealink er
með góðar og þægilegar lausnir fyrir
Microsoft Skype/Teams og Zoom,
sem eru mikið notaðar fundarlausnir
í dag. Þessi kerfi eru sjálfstæðar
einingar og afar einfaldar í notkun.
„Einnig erum við með lausnir sem
byggjast á BYOD (bring your own
device). Allur búnaður sem þarf til
að halda myndfund er frá Yealink,
en myndfundarhugbúnaðurinn er í
tölvu hvers og eins.“
Myndfundarlausnir sem henta flestum
Þorvaldur segir að enn sem komið
er sé enginn framleiðandi kominn
með eitt myndfundarkerfi sem
talar við öll önnur myndfundarkerfi.
„Við erum með lausnir sem henta
flestum. Þá erum við með svokallaða
myndfundarbrú eða torg sem
fyrirtæki leigja aðgang að til lengri
eða skemmri tíma. Þetta verður þá
þeirra einkafundartorg sem hægt
er að tengjast með flestum gerðum
hefðbundinna myndfundarkerfa.“
Myndfundarbúnaðurinn frá Boðleið
er afar notendavænn en fyrirtækið
er með breiða línu sem hentar öllum
stærðum af fyrirtækjum. „Við erum
með lausnir fyrir allt frá tveggja
manna fundarherbergjum upp í 100
manna sal.“
3CX-símkerfi
Frá upphafi hefur Boðleið lagt ríka
áherslu á símkerfi fyrir fyrirtæki.
3CX-símkerfi eru orðin afar útbreidd
hér á landi og í notkun hjá bæði
smáum fyrirtækjum sem og mörgum
af stærstu fyrirtækjum landsins.
Boðleið selur bæði og leigir 3CX-
kerfið og er það til í þremur útgáfum.
„Hægt er að byrja á fríu kerfi en
eftir því sem fyrirtækið stækkar þá
vex kerfið. Í Pro-útgáfu kerfisins er
allt innifalið eins og þjónustuver,
skýrslukerfi og rauntímaupplýsingar
fyrir skjáborð, skiptiborð, upptökur,
farsímatengingar, tenging við CRM-
upplýsingakerfi, tenging við Office
365, vefspjall við t.d. þjónustudeild
og að sjálfsögðu myndfundarkerfi.
Ef fyrirtæki þitt vantar einhverja
lausn þá eigum við hana yfirleitt
til á lager. Ef þig vantar símkerfi,
myndfundarkerfi, netlausnir eða hvað
sem er, þá finnum við bestu lausnina
fyrir þig, fljótt og örugglega,“ segir
Þorvaldur að lokum.
Nánari upplýsingar má nálgast á
heimasíðunni bodleid.is
Akralind 8, 201 Kópavogi
Sími: 535-5200
Tölvupóstur: sala@bodleid.is
Facebook: Boðleið