Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Blaðsíða 24
Sérblað 31. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ KRÚSKA: Næring fyrir líkama og sál Hjá Krúsku við Suðurlandsbraut færðu meinhollan og ljúffengan skyndibita gerðan frá grunni af ást og umhyggju. Skyndibiti, og þó? Maturinn á Krúsku er eingöngu skyndibiti í þeirri merkingu að þú færð matinn fljótt. „Maturinn er að mestu leyti tilbúinn í borðinu hjá okkur. Stundum þarf rétt að skella á pönnu til þess að steikja eða hita upp. Stuttur biðtími gerir Krúsku að hinum fullkomna hádegisverðarstað. En við erum líka með opið á kvöldin til kl. 21.00. Að öðru leyti á maturinn fátt skylt við hefðbundinn, óhollan og feitan skyndibita,“ segir Guðrún Helga, framkvæmdastjóri Krúsku. „Stefnan hjá Krúsku er og hefur ávallt verið að gera allt frá grunni og nota einungis hreint og næringarríkt hráefni í matinn. Uppskriftirnar eru þróaðar af Steinari Þóri Þorfinnssyni, matreiðslumeistara og eiganda Krúsku. Allt brauð, allar sósur og allar maríneringar eru gerðar á staðnum. Fiskurinn kemur á hverjum morgni og við vitum aldrei hver fiskur dagsins er, fyrr en fisksalinn kemur með hann í hús. Með því að borða hreint þá líður okkur betur í líkamanum.“ Meiri umhverfisvernd og minni matarsóun Það er ekki bara gott fyrir líkamann að snæða matinn hjá Krúsku heldur er það ekki síður gott fyrir sálina. „Við hjá Krúsku vinnum gegn matarsóun með því að nýta allt hráefni sem til er og henda helst engu. Þá er okkur annt um umhverfið og notum eingöngu endurnýtanlegar og umhverfisvænar umbúðir. Við viljum halda plastnotkun í algeru lágmarki og erum t.d. ekki með plastpoka í ruslatunnunum okkar.“ Spennandi og síbreytilegur matseðill Matseðillinn á Krúsku er síbreytilegur, en í grunninn er um sömu réttina að ræða sem víxlast dag frá degi. „Við erum með nokkrar grunnuppskriftir að kjúklingi, nokkrar af súpum og líka grænmetisréttum, en svo skiptum við út réttum á matseðli eftir því sem til er hverju sinni. Á hverjum degi bjóðum við upp á rétt dagsins á 1.790 kr. Hann er aldrei sá sami, enda erum við þá að nýta það hráefni sem við eigum til.“ Skoðaðu matseðil dagsins á vefsíðunni kruska.is. Mötuneyti og fyrirtækjaþjónusta Krúska sér um mötuneyti í nokkrum framhaldsskólum og grunnskólum. „Stefnan er alltaf sú sama hjá okkur. Hreint og næringarríkt hráefni, allt gert frá grunni, hollur og góður matur fyrir ungmenni sem eru að vaxa og þroskast.“ Einnig býður Krúska fyrirtækjum upp á mataráskrift. „Þá eldum við matinn og sendum til hinna ýmsu fyrirtækja. Við bjóðum starfsmönnum upp á fjölbreyttan matseðil með alls konar mat sem höfðar til flestra. Þetta er að sjálfsögðu allt gert á staðnum úr besta hráefni sem hægt er að fá.“ Veisluþjónusta Krúska sér einnig um veislumat fyrir fyrirtæki og einstaklinga. „Við sjáum um allt frá mat fyrir fundarhöld til veislukrása fyrir brúðkaup og stærri veislur. Hver einasti biti frá okkur er handgerður úr besta mögulega hráefni. Þú finnur hvergi bakka frá okkur með frosnum heildsölusnittum. Þetta er alvöru matur úr alvöru hráefni.“ Á vefsíðunni má finna tillögur að veislumat fyrir ýmiss konar tilefni. „En við tökum að sjálfsögðu við öllum séróskum. Þá er bara að hafa samband við okkur í síma 557-5880 eða í tölvupósti kruska@kruska.is og við gefum þér verðhugmynd.“ Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni kruska.is Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík. Opnunartími: 11–21 alla virka daga. Sími: 557-5880 kruska@kruska.is Facebook: Krúska ehf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.