Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Blaðsíða 48
31. janúar 2020
5. tölublað 110. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Í DAG, Á MORGUN LAUGARDAG OG
SUNNUDAG, 31. JANÚAR TIL 2. FEBRÚAR
HANS J. WEGNER,
ARNE JACOBSEN,
BORGE MOGENSSEN,
PHILIPPE STARCK,
ERIK MAGNUSSEN, OFL.
Allt að sjötíu prósenta
afsláttur af sýningarvörum
Skeifan 6 / 5687733 / www.epal.is
Enn einn
trúverðugur
íslenskur
krimmi?
Ellý
teiknar
Söru
S
pákonan, flotþerapist-
inn og fjöllistakonan
Ellý Ármannsdóttir hef-
ur síðustu misseri vak-
ið athygli fyrir teikningar sínar
og málverk af nöktum kvenlík-
amanum. Sumar myndir hafa
verið ansi djarfar, sem á þó
ekki við um nýjasta verkefni
hennar. Hún fékk það verkefni
að teikna mynd fyrir umbúð-
ir á nýju poppi, svokölluðu
próteinpoppi, sem kemur úr
smiðju crossfit-stjörnunn-
ar Söru Sigmundsdóttur. Ellý
ákvað að teikna mynd af Söru
sjálfri en þó ekki nak-
inni eins og Ellý
sérhæfir
sig í.
L
eik- og söngkonan Bryn-
dís Ásmundsdóttir og
hennar heittelskaði, Karl
Magnús Gústafsson,
settu upp hringa nú undir lok
janúar. Stóra og veglega dökka
hringa sem Bryndís birti mynd
af á Instagram. Við myndina
stóð einfaldlega: „Við“. Ham-
ingjan ljómar af parinu en
þau opinberuðu samband
sitt um jólin 2018. Síðan þá
hefur Bryndís, sem af mörg-
um er talin vera holdgerving-
ur Tinu Turner, birt ófáar
myndir af bónda
sínum og þrem-
ur börnum, sem
hún á úr fyrra
sambandi, og
því ljóst að
framtíðin
er björt.
Settu upp
hringa
N
ý íslensk þáttaröð, Sisterhood, lítur dags-
ins ljós á næsta ári, en serían er framleidd af
Sagafilm í samstarfi við sjónvarpsrisann Sky
Studios og verður sýnd á Viaplay og í Sjón-
varpi Símans. Um er að ræða þáttaröð í sex hlutum,
en þetta er fyrsta verkefnið sem kemur úr samstarfs-
og dreifingarsamningi Sagafilm við breska fyrirtækið
Sky Studios sem skrifað var undir síðasta haust.
Jóhann Ævar Grímsson og Björg Magnús dóttir
skrifa handritið en leikstjórn er í höndum Silju Hauks-
dóttur. Þáttaröðin fjallar um Veru, rannsóknarlög-
reglukonu sem fær í hendurnar dularfullt mál þegar
beinagrind ungrar stúlku sem hvarf sporlaust fyr-
ir tuttugu árum finnst í smábæ á Íslandi. Samstarfs-
félagar Veru telja málið einfalt en annað kemur á
daginn þegar hópur af konum kemst í uppnám við
fund beinagrindarinnar, hópur sem hefur þagað yfir
ljótu leyndarmáli um morðið á þessari ungu stúlku.
„Með því að gera aðalumfangsefnið fullorðnar
konur sem frömdu hryllilegan glæp í fortíðinni verð-
ur Sisterhood undirtegund glæpaseríuflokksins, sem
margir hafa spreytt sig á,“ segir Jóhann Ævar í viðtali
við Variety. Pálmi Guðmundsson, hjá Símanum,
segir í sömu grein að hann innsigli sjaldan samn-
inga þegar seríur eru enn á frumstigi en að hann
hafi gríðarmikla trú á sögunni og karakterunum
á bak við Sisterhood. n
Sjónvarpsrisi veðjar á Símann og Sagafilm
Silja Hauksdóttir