Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Blaðsíða 34
34 FÓKUS 31. janúar 2020
Í stríði við fjár-
magnsaðila Þegar
réttur til endurgerðar er
tryggður er það sjald
an samasemmerki á
bratta framleiðslu. Það
vakti þó fljótt athygli
í kringum jólin 2018
þegar leikkonan og leik
stjórinn Jodie Foster
tryggði sér réttinn á
kvikmyndinni Kona
fer í stríð frá Benedikt
Erlingssyni. Heimild
ir herma að Foster hafi
kolfallið fyrir upp
runalegu myndinni og
hyggst hún leikstýra,
framleiða og leika að
alhlutverkið. Fjár
mögnun þessa verk
efnis hefur hins vegar
gengið hægar en aðstandendur hafa kært sig um.
Verkefnið ku þó enn vera í pípunum hjá Foster og
hennar teymi, en biðin gæti orðið lengri en upp
haflega var ætlað.
Þ
að er talið vera ákveðinn
heiður fyrir kvikmynd
ir þegar hlutlausir aðilar
tryggja sér réttinn til að
endurgera verkið fyrir stærri
markað. Í íslenskri kvikmynda
gerð er oft slegist um þennan
heiður og hafa ófáar endurgerð
ir á íslenskum verkum verið sett
ar á teikniborðið undanfarin ár.
Þekktustu dæmin eru sennilega
Contraband, Prince Avalanche
og Benji the Dove svo dæmi séu
nefnd, en til hefur staðið að blása
til fleiri endurgerða á vestrænum
velli. Skoðum aðeins þetta um
rædda teikniborð og verkefnin
sem eru bæði í vinnslu og limbói.
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Endurgerðir í limbói
Hvar eru Hollywood-endurgerðirnar sem okkur var lofað?
Ekki réttur tími Stórrisarnir hjá 20th Century Fox tryggðu sér
réttinn á sjónvarpsþáttaröðinni Réttur frá Saga Film. Þróun þessa
verkefnis hófst árið 2012 og er í höndum framleiðandans Howards
Gordon, sem kom meðal annars að gerð þáttanna 24 og Homeland.
Búið var að gefa upp að heiti þáttanna yrði Ritter, en nokkrum árum
síðar tók NBC við verkefninu og nefndi þættina Infamous. Sjón
varpsstöðin gerði prufuþátt og var hann í umsjón þeirra sem standa
á bak við þættina This is Us. Prufuþátturinn var afhjúpaður snemma
árið 2017 og fékk ekki samþykki til áframhaldandi framleiðslu. n
Fangar selja Sjón varps serí an Fang ar er fyrsta ís lenska
sjónvarpsserí an sem verður end ur gerð í Hollywood, en rétt ur inn
var ný lega seld ur þangað. Fangelsisdramaþættir hafa verið sérlega
vinsælir undanfarin ár og hefur hvert framleiðslufyrirtækið á fætur
öðru slegist um að tryggja sér eitthvað nýtt í þeim efnum. Staða
endurgerðar er enn í fullum gangi og verður áfram, nema í ljós
komi að bóla prísundardramageirans springi á næstu misserum.
Úr rökkri í dagsljósið Íslenska hrollvekjan
Rökkur verður endurgerð af framleiðslufyrir
tækinu Orion Pictures fyrir bandarískan mark
að, en Erlingur Óttar Thoroddsen, leikstjóri og
handritshöfundur upprunalegu myndarinnar,
skrifar nýju útgáfuna. Kvikmyndaverið Orion
Pictures var nokkuð stórt á níunda og tíunda
áratug síðastu aldar og framleiddi gæða
myndir á borð við The Silence of the Lambs,
Platoon, The Terminator, Amadeus og fleiri.
Endurgerð myndarinnar verður dreift af fyrir
tækinu United Artists og er framleiðsla búin
að vera á fullu skriði, þótt enn eigi eftir að til
kynna frumsýningardag.
Hvað varð um erlendan Erlend? Árið 2008 seldi Baltasar
Kormákur réttinn á endurgerð kvikmyndarinnar Mýrin. Þetta var
tveimur árum eftir útgáfu myndarinnar hér á landi og var það
bandaríska framleiðslufyrirtækið Overture Films sem eignaði sér
þennan rétt. Erlendis ber kvikmynduð saga Arnalds Indriðasonar
nafnið Jar City og hefur ítrekað verið reynt að koma þessu verkefni
af stað en verkfall handritshöfunda í Hollywood árið 2008 hafði
mikil áhrif á þróun þessarar myndar.
Síðar fór Overture Films á hausinn og tók David Linde við kefl
inu, en hann var eitt sinn í forsvari fyrir Universal og kvikmynda
fyrirtækið Focus en hefur nú stofnað nýtt framleiðslufyrirtæki.
Árið 2012 var blásið nýju lífi í verkefnið og kom til greina að ráða
Brian Kirk sem leikstjóra, en hann er þekktur fyrir aðkomu sína að
Game of Thrones og spennumyndinni 21 Bridges. Staða banda
rísku Mýrarinnar er enn óljós en upprunalega myndin hefur hlot
ið jákvætt umtal og eignast sterkan aðdáendahóp á liðnum árum.
Ekki hefur komið til tals hvaða erlendu leikarar koma til greina í
hlutverk lögreglumannsins Erlends, sem Ingvar Sigurðsson túlkaði
eftirminnilega.