Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Blaðsíða 38
38 31. janúar 2020STJÖRNUSPÁ
stjörnurnar
Spáð í
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 2.–8. febrúar
Ekki eyða tíma þínum í að vera reið/ur.
Þótt ríkt hafi eitthvert ósætti á milli þín
og einhvers þá er best að grafa stríðs-
öxina og horfa fram á veginn. Stundum er
ágætt að setja sig í spor annarra og þá sér
maður að viðkomandi meinti ekkert illt
heldur er að berjast við eigin djöfla.
Þig vantar smá fjör í lífið og leitar til
vina og vandamanna til að skipuleggja
einhverja stórkostlega ferð eða viðburð.
Hér er skipulagt stutt fram í tímann og
því ljóst að þetta stuð fer fram í nánustu
framtíð. Á meðan þú bíður skaltu reyna
að komast að því hvaðan þessi leiði þinn
kemur.
Þetta er klárlega vikan þar sem þú finnur
fyrir mikilli velgengni í vinnunni. Á vinnu-
staðnum hefur verið mikill samdráttur og
þú hefur sloppið vegna vinnusemi þinnar
og dugnaðar. Það er því súrsætt að ganga
svo vel á meðan aðrir þurfa að taka
pokann sinn. Reyndu samt að njóta þess
og halda áfram á sömu braut.
Ef þú átt inni smá sumarfrí þá skaltu
taka það út núna þar sem hausinn þinn
er úti um allt þessa vikuna. Þú þarft að
fá lausan tauminn til að gera það sem þú
vilt, ekki það sem yfirmaðurinn vill. Þú
átt erfitt með að sitja kyrr og finnur fyrir
mikilli ólgu innra með þér, sem er samt
mjög jákvæð.
Lofuð ljón eru byrjuð að skipuleggja
Valentínusardaginn og eru uppfull af þrá
og ástríðu. Hins vegar virðist makinn ekki
vera á sömu blaðsíðu og því er mikilvægt
að þið talið vel saman svo enginn verði
fyrir vonbrigðum. Einhleyp ljón eru ná-
kvæmlega það – ein. Þetta er einfaldlega
ekki réttur tími fyrir ástina og hún kemur
þegar þú ert tilbúin/n.
Þú finnur fyrir nýju öryggi og festu og
hefur nóg sjálfsöryggi til að segja maka
þínum hvað þig dreymir um í svefnher-
berginu. Út frá því taka við margar nætur
af ástríðu og girnd, sem er einmitt það
sem þú þurftir í lífinu. Ekki hafa áhyggjur
af hversdagslegu hlutunum – njóttu bara
undir sænginni.
Þú setur þér raunhæf heilsumarkmið
sem þú stendur við. Þú finnur einhverja
hreyfingu eða mataræði sem hentar þér
og kroppurinn blómstrar, án þess að þú
þurfir að segja nei við öllu sem þú elskar.
Þetta er þinn tími, kæra vog. Það eru
miklar breytingar í gangi en þú ætlar ekki
að bugast.
Lofaðir sporðdrekar eru í daðurstuði
en þú skalt passa þig á einu – ekki láta
vænlegan vonbiðil renna þér úr greipum
því þú þykist vera of merkileg/ur eða
hafa of mikið að gera. Stundum er ekki
gott að láta ganga á eftir sér og ef þú ert
tilbúin/n í eitthvað meira en daður skaltu
láta vita.
Þú leitar í öryggið og hlýjuna heima hjá
þér og nennir varla að fara út úr húsi
nema til að gera það allra nauðsynleg-
asta. Þú nýtur tímans í örygginu og hefur
enga löngun til að upplifa ævintýri. Þetta
er tímabil og svo lengi sem þér líður vel þá
má það vara eins lengi og þú vilt.
Það er rosalega mikið að gera hjá þér og
þú tekur að þér alls kyns aukavinnu. Það
þýðir að þú hefur minni tíma fyrir vini og
fjölskyldu, en það er allt í lagi við og við.
Þegar vinnutímabilinu lýkur skaltu leggja
áherslu á að hafa gaman, bjóða í mat og
hlæja svolítið mikið.
Þú leggur mikið upp úr því að koma
fjármálunum í lag og febrúarmánuður
er akkúrat rétti tíminn til að gera það.
Mánuðurinn er aðeins styttri en hinir,
þótt hann sé langur í ár, og því nærð þú
að rétta vel úr kútnum ef þú skipuleggur
þig, eyðir ekki umfram efni og skipuleggur
framtíðina – sem þarf ekki alltaf að vera
leiðinlegt.
Það geislar af þér sjarmi og kynþokki
þessa vikuna, en þú vilt ekki eyða þessari
orku í eitthvað sem skiptir ekki máli.
Notaðu hana og beislaðu til að fá þínu
framgengt og láta ástvinum þínum líða
vel í kringum þig. Þú hefur marga fjöruna
sopið og nú er kominn tími til að þú njótir
lífsins út í ystu æsar.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Afmælisbörn vikunnar
Lesið í tarot Guðmundar
Á eftir bolta kemur ást
- Svona eiga þau saman
Ringulreið, einmanaleiki og ístöðuleysi
E
in stærsta frétt vikunnar var brotthvarf Guð
mundar Gunnarssonar úr bæjarstjórastólnum
í Ísafjarðarbæ. Ljóst er að öll kurl eru ekki
komin til grafar í því máli og margt ósagt. Því
ákvað DV að leggja tarotspil fyrir Guðmund til að
sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. Lesendum DV er
bent á að þeir geta dregið sín eigin tarotspil á vef DV.
Svartsýni villir sýn
Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Guðmundi er
Tunglið. Ringulreið einkennir líf hans og hann finn
ur fyrir einmanaleika, jafnvel ístöðuleysi. Hann hef
ur virkilega elskað að gegna stöðu bæjarstjóra og
það er ekki með góðu sem hann hverfur á braut.
Guðmundur hefur á
tilfinningunni að
hann ráði ekki
við þessar
breytingar
en það er
fjarri sanni. Hann má ekki staldra of lengi við í von
leysinu heldur rífa sig á fætur og takast á við fram
haldið. Guðmundur er jákvæður að eðlisfari en
þessar snöggu umbreytingar í lífi hans hafa vak
ið upp ójafnvægi og svartsýni innra með honum.
Það getur villt honum sýn. Hann þarf að horfa bet
ur í kringum sig og leyfa sér að njóta í núinu áður
en hann stekkur á næsta starf. Framtíðin er björt og
ekki tími fyrir leiðindi.
Próf fyrir næsta kafla
Næst er það Myntgosi. Það gæti farið svo að Guð
mundi leiðist þann tíma sem hann slakar á og ákveð
ur næstu skref. Hann verður hins vegar að sýna þol
inmæði því þá uppsker hann. Hann má ekki missa
móðinn því þessi ringulreið í lífi hans er eins konar
próf þar til næsti kafli hefst. Þessi kafli er undirbún
ingur fyrir eitthvað stærra og meira, risastórt næsta
skref sem Guðmundur er um það bil að taka. Guð
mundur er duglegur, vinnusamur og metnaðarfull
ur. Hann stefnir hátt og nær árangri fyrr en síðar.
Flytur frá Ísafirði
Loks er það 6 sverð. Guðmundur mun ekki dvelja
lengi fyrir vestan og flytur fljótt á næsta stað – stað
sem ber með sér mikla möguleika og getur svalað
metnaði hans. Eftir þennan leiðindakafla tek
ur nýr og stórkostlegur kafli við, laus við
áhyggjur og vanlíðan. Guðmundur þarf
samt að hafa hugfast að öll vandamál
eru ekki leyst á einum degi heldur
munu aðstæður lagast með tím
anum. Möguleikar hans eru
óendanlegir og Guðmundur veit
að hann hefur hæfileika til að láta
alla drauma sína rætast. Því má hann
aldrei gleyma. n
n 2. febrúar María Ólafsdóttir söngkona, 27 ára
n 3. febrúar Guðrún Dögg, fyrrverandi fegurðardrottning, 29 ára
n 4. febrúar Bergrún Íris Sævarsdóttir rithöfundur, 35 ára
n 5. febrúar Ásta Guðrún Helgadóttir stjórnmálakona, 30 ára
n 7. febrúar Ívar Örn Sverrisson leikari, 43 ára
n 7. febrúar Smári McCarthy stjórnmálamaður, 36 ára
n 8. febrúar Jóhann Hjartarson skákmaður, 57 ára
Kolbeinn og Hildur.
Mynd: Skjáskot
Instagram
@hildurhilmars
K
nattspyrnukappinn Kolbeinn Sig
þórsson hefur fundið ástina í örm
um Hildar Hilmarsdóttur, fyrrver
andi flugfreyju hjá WOW. DV lék því
forvitni á að vita hvernig þau eiga saman,
ef litið er til stjörnumerkjanna.
Hildur er krabbi en Kolbeinn er fiskur.
Þetta ástarsamband er virkilega jákvæður
hittingur tveggja sála. Bæði merkin eru
umburðarlynd og full af samkennd og fisk
urinn dregur sína orku úr hugmyndaauðgi
krabbans. Fiskurinn getur opnað augu
krabbans fyrir andlegum málefnum og
hagsýni krabbans getur leitt til þess að fisk
urinn nær að láta alla drauma sína rætast.
Krabbinn elskar það efnislega og þráir
að eiga íburðarmikið heimili. Hann hins
vegar skilur ekki alltaf þá ánægju sem fylgir
naumhyggjulífsstílnum sem fiskurinn þrá
ir. Þó að merkin vinni að mismunandi
markmiðum þá ná þau vel saman á tilf
inningalegum skala og geta þróað með sér
virkilega þýðingarmikið samband.
Þetta samband getur orðið fullt af ævin
týrum og stuði. Fiskurinn og krabbinn ná
að hífa hvort annað upp og skapa svo djúpa
tengingu að ekkert getur spillt henni. n
Hildur
Fædd: 1. júlí 1991
krabbi
n þrjósk
n hugmyndarík
n traust
n tilfinningavera
n skapstór
n óörugg
Kolbeinn
Fæddur: 14. mars
1990
fiskur
n ástúðlegur
n listrænn
n vitur
n blíður
n vill flýja
raunveruleikann
n treystir of mikið