Íþróttablaðið - 01.05.1967, Page 6
Hannes Þ. Signrðsson, dómari, heils-
ar fyrirliðum Vals og FH fyrir úr-
slitaleikinn í 1. deild. T.v. Guðbjörg
Árnadóttir, t.h. Sylvía Hallsteins-
dóttir.
landsmótinu væri raunverulega lok-
ið, sigurgöngu FH fengi ekkert
hróflað. En Adam og Eva voru ekki
ein í aldingarðinum, og svo bregðast
krosstré sem önnur. Þegar FH-liðið
mætti liðum Hauka og Víkings í
seinni umferð, var það óþekkjanlegt
fyrir sama lið. Það leikandi létta og
hraða spil, sem einkennt hafði liðið,
var komið í glatkistuna, en skipu-
lagsleysi og leikfýla virtist öllu ráð-
andi, og liðsmenn stóðu ráðþrota við
leikgleði liða, sem sigruð höfðu ver-
ið með miklum yfirburðum fyrr um
veturinn. Og báðum þessum leikjum
tapaði FH með tveggja marka mun.
Hvað olli svo þessari breytingu?
Það var talað um ofþjálfun og leik-
þreytu, sem var þó harla ósennileg
skýring, enda féll hún um sjálfa sig,
þegar liðið kom til leiks við Val
nokkru seinna og eins í leikjunum
við Fram í lokin. Vanmat andstæð-
inganna var hugsanleg skýring, því
að margt liðið hefur um dagana
hlotið skell af því að telja sér sigur
vísan fyrirfram. En það gerist
naumast hjá jafnreyndum mönnum
tvisvar í röð og reyndar varla nema
einn hálfleik. Ég er ekki svo hnút-
um kunnugur, að ég geti skorið úr,
hvar skórinn kreppti að, en svo mik-
ið er víst, að í þeim leikjum, sem FH
átti óleikna í mótinu stjórnaði nýr
maður skiptingum hjá liðinu og það
sýndi sitt rétta andlit á ný, en nú
var það um seinan, þeir höfðu þegar
misst af strætisvagninum. Ingólfur,
Gunnlaugur & Co. voru komnir í
þjálfun og baráttuhug.
Meistaraflokkur karla 1. deild:
Fram F.H. Haukar Valur
Fram X 14:17 26:14 13:16
15:15 24:19 17:15
F.H. 17:14 X 26:19 24:15
15:15 20:22 25:15
Haukar 14:26 19:26 X 16:15
19:24 22:20 24:22
Valur 16:13 15:24 15:16 22:24 X
15:17 15:25
Víkingur 19:22 13:21 17:14 18:21
16:31 16:14 14:26 14:19
Ármann 9:33 13:30 16:29 17:34 18:36 20:25
12:27 21:31
Úrslitaleikur: Fram—FH 16:12.
Fyrri umferð Seinni umferð Úrslit
Vikingur Ármann Mörk Stig Mörk Stig Mörk Stig
22:19 33:9 108: 75 6
31:16 27:12 114: 77 9 222:152 15
21:13 30:13 118: 74 10
14:16 31:21 105: 89 5 223:163 15
14:17 29:16 92:100 4
26:14 34:17 125: 97 8 217:197 12
21:18 36:18 103: 89 6
19:14 25:20 96:100 4 199:189 10
X 23:13 20:13 90: 91 4 80:103 4 170:194 8
13:23 13:20 X 69:151 0 83:137 0 152:288 0
Auðunn Óskarsson skýtur á markið hjá Þorsteini Björnssyni, sem sýndi
afbragðs vörzlu á marki Fram. Á myndinni sést, hve húsið var þéttskipað
áhorfendum (Ljósm. Sjónvarp).
Lið Hauka þótti ekki efnilegt
framan af. Það var ekki skipað nein-
um stjörnum og tapaði þremur fyrstu
leikjum sínum í mótinu. En þá sner-
ist blaðið við. Þeir unnu Val, sem
unnið hafði þrjá fyrstu leiki sína,
með eins marks mun, og úr því tap-
aði liðið engum leik, nema ieik sín-
um við Fram. 1 liðinu var að vísu
einn maður, sem bar af, markvörð-
urinn Logi Kristjánsson, sem með af-
burða markvörzlu vann sig upp í
landslið, en styrkur liðsins var fyrst
og fremst leikgleði þess og þrek,
þegar líða tók á veturinn. Þeir höfðu
líka þjálfara, Jóhannes Sæmundsson,
sem að vísu aldrei hafði komið ná-
lægt handknattleik áður, en sá fljótt,
að leikurinn var ekki sá galdur, að
ekki gilti sama lögmál og um aðrar
íþróttagreinar: Því meiri þrekþjálf-
162