Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1967, Page 17

Íþróttablaðið - 01.05.1967, Page 17
Armann varð glímukóngur í fimmtánda sinn Kormákr segir frá Islandsglímunni 1967 Sunnudaginn 30. apríl 1967 fór íslandsglíman fram að Há- logalandi og hófst klukkan 4 e. h. Glímudeild KR sá um mótið í umboði Glímusambands Is- lands, Kjartan Bergmann Guð- jónsson, form. GLl, setti glím- una, og glímustjóri var Guð- mundur Ágústsson, en yfirdóm- ari Sigurður Sigurjónsson. Þegar komið var í gamla hjallinn að Hálogalandi, var að- koman hálf ömurleg, því kyndi- kerfi hafði bilað, og var hitastig í húsinu eitthvað niður undir frostmarki, eða a.m.k. mátti á- horfendum, sem voru allmargir, finnast það. Hins vegar var ný- lokið viðgerð, svo að eitthvað hlýnaði, meðan á keppni stóð, þótt engan veginn gæti talizt bjóðandi keppendum — og enn síður áhorfendum og starfsliði. En nóg um það, glímumenn áttu ekki í annað hús að venda, Sýningarsamtök atvinnuveg- anna höfðu þegar tekið við Iþróttahöllinni í Laugardal, en í húsi félagsins, sem um glímuna sá, stóð yfir Islandsmeistaramót í badminton. Nú var í fyrsta skipti keppt í Islandsglímunni, síðan nýjar reglur um þátttökurétt tóku gildi. Stefna þær reglur að því, að aðeins beztu glímumenn landsins taki þátt í keppninni um Grettisbeltið, því menn verða að hafa unnið til verðlauna í Landsflokkaglímtmni eða á fjórðungsglímumótum til þess að öðlast þátttökuréttinn. Nú voru skráðir til leiks 11 keppendur, allir knáir og sumir allmiklu meira en í meðallagi, en einn keppandi mætti ekki til leiks. Var það Guðmundur Stein- dórsson, HSK, og var að honum sjónarsviptir. Annar keppandi rauk burt í fússi við dómarana, ISLANDSGLlMAN 1967 — VINNINGASKRÁ: 1. Ármann J. Lárusson, UBK 2. Sveinn Guðmundsson, HSH 3. Steindór Steindórsson, HSK 4. íngvi Guðmundsson, UV .. 5. Sigtryggur Sigurðsson, KR 6. Ivar Jónsson, UBK ........ 7. Már SigurfSsson, HSK .... 8. Rögnvaldur Ólafsson, KR . 9. Einar Kristinsson, KR .... 123456789 Alls Xllllllll 8 0X1111111 7 00X101111 5 000X11101 4 0010X1011 4 00000X111 3 000010X11 3 0001000X1 2 OOOOOOOOX 0 svo að þeir urðu 9, sem glím- unni luku. Óneitanlega varð vart tals- verðs spennings fyrir þessa Is- landsglímu. Glímukóngur Is- lands, Ármann J. Lárusson, UBK, hafði rétt með naumind- um bjargað sigri sínum í Lands- flokkaglímunni rúmum mánuði fyrr, og því virtist þess einhver von, að einveldi hans væri nú að ljúka, en hann hafði verið glímukóngur óslitið frá 1954 og þar áður einu sinni, 1952, að- eins tvítugur að aldri. Einhver von, segi ég, því ein- valdar verða alltaf óvinsælir af valdi sínu einu, og vissulega bendir það til ónógrar grózku í þeirri íþróttagrein, sem sami maður getur sigrað í á lands- meistaramóti hálfan annan tug ára — en vart verður honum sjálfum um kennt. Enda hefur Ármann mætt til keppni, hvern- ig sem æfingarástandi hans hef- ur verið háttað og því gefið hverjum þeim, sem þrek og dug hafði nóg, tækifæri til að leggja sig. En þar er skemmst frá að segja, að Ármann sýndi það ó- tvírætt í þessari Islandsglímu, að hann ber enn höfuð og herð- ar yfir alla aðra glímumenn (Sjá bls. 176) 173

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.