Íþróttablaðið - 01.03.1973, Qupperneq 34

Íþróttablaðið - 01.03.1973, Qupperneq 34
EMIL ZATOPEK — pólitísk martröS. Þegar Emil Zatopek tók þátt í keppni var hlaupastíll hans líkastur því að sporðdrekar væru í báðum skóm hans. Eftir að hann sigraði í 5000 metra hlaup- inu og 10000 metra hlaupinu á Ólympíuleikunum í London 1948 skrifaði einn íþróttafréttaritari svohljóðandi um hlaupastíl hans: „Löngu eftir að áhorfendur voru búnir að gleyma hinum keppnis- greinunum kom það fyrir að menn hrukku upp með andfæl- um eftir að hafa dreymt þegar Zatopek kom í mark í 10000 metrunum, að því er virtist dauð sjúkur, stynjandi og blásandi, með hendur um magann, eins og hans síðasta stund væri runnin upp“. Zatopek var frægur fyrir hversu vel hann lék sem væri hann hreinlega að sálast úr kvöl- um, er hann kom í mark sigur- vegari. Hann fékk brátt viður- nefnið „Emil hinn hræðilegi", því að fólk hélt hvað eftir annað að hann myndi detta niður dauð- ur er hann kæmi í mark. Þessi leikaraskapur hans reis hæst, er hann sigraði á Ólympíuleikun- um í Finnlandi í 5000 metra hlaupi, 10000 metra hlaupi og maraþonhlaupi. Slíku hafði eng- inn maður áður afrekað og Zato- pek var talinn algert ofurmenni. Þegar maraþonhlaupið var á enda sagði Zatopek við frétta- menn, eftir að hafa hvílt sig í nokkrar mínútur: „Þetta er hundleiðinleg keppnisgrein". Blaðamaðurinn var furðulostinn, því að Zatopek hafði þá engst svo sundur og saman af kvölum að allir héldu að hann væri að deyja og blaðamaðurinn var við- staddur til að heyra síðustu orð hans. f viðtali við brezkt blað árið 1967 talaði Zatopek um Ólym- píuleikana og sagði: „Ólympíu- leikarnir 1948 voru fyrir mig einskonar frelsun andans. Eftir öll hin svörtu styrjaldarár, allar sprengjuárásirnar og öll manns- lífin, sem styrjöldin tók var endurvakning Ólympíuleikanna eins og sólarupprás. Það var stór kostleg tilfinning að ganga um í Ólympíuþorpinu og sjá allt þetta fólk frá þjóðum, sem höfðu verið svarnir fjandmenn, um- gangast hvort annað í vináttu". Zatopek var um árabil ofursti í her Tékkóslóvakíu og hetja í kommúnistaflokknum. Þegar hann gekk um götur Prag safnaðist fólksfjöldi í kringum hann til að hylla hann. Svo kom árið 1968. Zatopek var einn þeirra, sem undirritaði 2000 orða yfirlýsinguna og eftir að Sovét- menn og bandamenn þeirra höfðu brotið með skriðdrekum á bak aftur „vorboðann“ í Tékkóslóvakíu var Zatopek kominn í ónáð. Hann var rek- inn úr flokknum og settur í varalið hersins á smánarlegum eftirlaunum. Um tíma vann hann við að rannsaka vatns- brunna, en var rekinn úr því starfi. Hann fékk því næst vinnu við sorphreinsun, en fólkið þekkti hann og heimtaði að fá að bera sorptunnurnar fyrir hann. Þetta var túlkað sem and- staða gegn stjórnvöldum og hann var rekinn. Árið 1971 gaf hann yfirlýsingu þar sem hann tók aftur og for- dæmdi sínar eigin frjálslyndu skoðanir og flokkurinn tók hann aftur í sátt. Eðlilega reitti þessi yfirlýsing almenning í Tékkó- slóvakíu mjög til reiði, en Gustaf Husak formaður kommúnista- flokksins gaf opinbera yfirlýs- ingu, þar sem hann sagðist bera mikla virðingu fyrir Zatopek sem miklum manni. Zatopek er nú í góðu starfi hiá Jarðfræðistofnun Tékkó- slóvakíu og vinnur við að rann- saka svæði, þar sem olía er talin finnast og fær að koma til Prag hálfsmánaðarlega, en nú flykk- ist ekki lengur fólk að honum, er hann gengur um götur borg- arinnar. A.BEBE BIKILA — lenti í hjólastól. Hinn heimsfrægi hlaupari, Abebe Bikila frá Eþíópíu sat í heiðursstúkunni á Ólympíuleik- unum í Munchen í sumar, en hann sat ekki í stúkusætunum, eins og hinir heiðursgestirnir, heldur í hjólastól sínum. Bikila varð heimsfrægur á Rómarleik- unum, er hann sigraði í Mara- Abebe Bikila þonhlaupinu og varð fyrsti Af- ríkubúinn til að vinna gullverð- laun. Fáir viðstaddra munu nokkru sinni gleyma því er Bik- ila hljóp berfættur um götur Rómar síðasta spölinn að leik- vanginum. Hann sigraði aftur í Tókíó og var talinn sigurstrang- legur í Mexíkó, en þá meiddist hann á ökla og gat ekki lokið keppni. f dag situr þessi afreks- maður í hjólastól, en hann lenti í bílslysi árið 1969 og lamaðist frá mitti og niður úr. Bikila er 39 ára að aldri og heldur enn tign sinni sem foringi í her Eþícpíu. Hann var óbreyttur her- maður er hann hóf hlaupaferil sinn, en var hækkaður í tign eft- ir því sem gullpeningarnir bætt- ust í safnið. Blöðin segja að þögn hafi slegið á eþíópísku þjóðina er fréttist um bílslysið. Haile Selassie Eþíópíukeisari sendi sérstaka flugvél með Bik- ila til Bretlands, svo að hann gæti notið umönnunar færustu lækna og keisarinn sjálfur gerði sér sérstaka ferð til Bretlands til að heímsækja Bikila á sjúkra- húsið. En læknar gátu ekkert fyrir Bikila gert og þeir segja að möguleikarnir á því að hann geti nokkru sinni stigið í fæt- urna séu milljón á móti einum. Bikila tekur örlögum sínum af æðruleysi. Hann býr ásamt konu sinni og 4 börnum í einbýlishúsi í útjaðri Addis Abeba og þar tekur hann á móti fjölda gesta, sem koma daglega til að hylla 34

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.