Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 3

Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 3
Ritstjórnarspjall Ný og betri íþróttamannvirki Á afmælisdegi Í.S.Í. 28. jan. s.l., þegar fram fór afhending viður- kenninga til íþróttamanna drsins 1974 í hinum ýmsu greinum, flutti Gísli Halldórsson forseti Í.S.Í. ræðu, sem vakti verðskuldaða athygli, ekki síst sd þdttur hennar er fjallaði um byggingu íþróttamannvirkja. Að vísu gætti nokkurs misskilnings í fréttaflutningi af þessum fundi og því sem forseti Í.S.Í. sagði, en það hefur verið leiðrétt. Forseti t.S.I. tók það réttilega fram, að unnið væri að því að fd fleiri og stærri íþróttahús, þörfin fyrir þau væri ótvíræð og í hvert sinn sem nýtt hús hefði verið tekið í notkun, hefði eftirspurn verið svo mikil, að nægt hefði til að fylla tvö hús. En íþróttahús væru dýr og af þeirri dstæðu hefðu þau oft verið byggð of lítil, enda miðuð til afnota fyrir skóla. Á íþróttaþingi Í.S.Í. s.l. haust var mdl þetta rætt og gerð um það samþykkt og í framhaldL hennar var menntamdlaráðherra skrifað bréf þar sem eindregið var hvatt til þess að fyllstu hagsýni yrði gætt um samnot íþróttahúsa fyrir hina frjálsu íþróttahreyfingu og skól- ana. Hæstvirtur menntamálaráðherra hefur tekið þessu afar vel og fyrir nokkru boðaði hann fulltrúa frá Í.S.Í. og U.M.F.Í. ásamt íþrótta- fulltrúa ríkisins á fund með nefndinni og lét þar í Ijós vilja sinn á því að sameiginlega yrði staðið að þessum málum til hagsbóta fyrir alla. Í.S.Í. vinnur nú að tillögugerð, þar sem lagt verður til, að ef þeim 80 íþróttahúsum sem í náinni framtíð er áformað að reisa, verði 27 þeirra með sal af stærðinni 22x44 m. og nokkru áhorfendarými. Er ekki ásfæða fil að ætla annað en að hin ríkisskipaða nefnd og mennta- málaráðherra taki þeirri tillögugerð af skilningi og velvilja. Einnig greindi forseti Í.S.Í. frá því, að líkur væru á, að fljótlega yrðu lagðar hlaupabrautir hér á landi með „tartan" eða öðru gúmmí- efni og veruleg fjölgun væri framundan í uppsetningi skíðalyftna. Alger forsenda fyrir öllum þessum framkvæmdum er að sjálfsögðu stóraukið fjármagn. Mikil og ánægjuleg breyfing hefur líka orðið í þeim efnum á skömmum tíma. Á s.l. fjórum árum hefur framlag Alþingis til íþróttasjóðs aukisf úr 5.0 millj. króna í 77.0 millj. króna. Mörg byggðafélög hafa líka aukið fjárframlög sín til að skapa íþróttaaðstöðu. Það er líka mála sannast sem oft hefur verið nefnt, að fjárframlög til uppbyggingar íþróttaaðsföðu er ein allra besta fjár- festing sem ríki og sveitarfélög ráðast í. Þeffa var m.a. staðfest í umræðuþætti í Sjónvarpinu nýlega, þar sem umræður fóru fram við fulltrúa sveitarstjórna á Vesfurlandi. Formaður sambands sveitar- félaganna á Vesturlandi svaraði spurningu stjórnanda Sjónvarps- þáttarins um fjárframlög til félagslegrar aðstöðu á þá leið, að fjár- framlög til íþróttamannvirkja væru ein besta fjárfesting sem sveitar- félögin réðust í. Tilkoma íþróttaleikvangs, íþróttahúss og sundlaugar í hverju sveitarfélagi gjörbreytti öllu viðhorfi til búsetu og ætti sinn stóra þátt í að gera landsbyggðina eftirsótta og skapaði öðru frernur möguleika til þroskandi og ánægjulegra viðfangsefna. Fjárframlag ríkisins til kennslumála íþróttafélaganna mun tvöfald- ast á þessu ári og framlag til Í.S.Í. hækkar verulega. Þetta ber allt vott um vaxandi skilning á gildi og þýðingu íþrótta- starfsins. Málgagn íþróttasambands íslands Ritstjóri: Sigurður Magnússon Fulltrúi Frjáls Framtaks við útgáfuna: Jón B. Pétursson Skrifstofa ritstjórnar: íþróttamiðstöðinni Laugardal Útgefandi: Frjálst framtak hf. Framkvæmdastjóri: Jóhann Briem Skrifstofa og afgreiðsla: Laugavegi 178 Símar 82300, 82302 Blaðið kemur út annan hvern mánuð Árgjald kr 1770.00 Setning og umbrot: Prentstofa G. Benediktssonar Prentun: Flafnarprent hf. Héraðssambönd innan ISÍ: Héraðssamband Snæfellsness- og Hnappadalssýslu Héraðssamband Strandamanna Héraðssamband Suður-Þingeyinga Héraðssamband Vestur-fsfirðinga Héraðssambandið Skarphéðinn fþróttabandalag Akraness fþróttabandalag Akureyrar fþróttabandalag Hafnarfjarðar fþróttabandalag tsafjarðar fþróttabandalag Keflavíkur íþróttabandalag Ólafsfjarðar fþróttabandalag Reykjavíkur Iþróttabandalag Siglufjarðar fþróttabandalag Suðurnesja fþróttabandalag Vestmannaeyja Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands Ungmennasamband A.-Húnvetninga Ugmennasamband Borgarfjarðar Ungmennasamband Dalamanna Ungmennasamband Eyjafjarðar Ungmennasamband Kjalarnessþings Ungmennasamband N.-Þingeyinga Ungmennasamband Skagafjarðar Ungmennasamband V.-Húnvetninga Ungmennasamband V.-Skaftfellinga Ungmennasambandið Úlfljótur Sérsambönd innan ISf: Badmintonsamband (slands Blaksamband fslands Borðtennissamband fslands Fimleikasamband fslands Frjálsíþróttasamband fslands Glímusamband íslands Golfsamband fslands Handknattleikssamband fslands Júdósamband fslands Knattspyrnusamband fslands Körfuknattleikssamband fslands Lyftingasamband fslands Siglingasamband fslands Skíðasamband fslands Sundsamband fslands 3

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.