Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 35
Lífið getur verið eins og að
spila sömu plötuna aftur og
aftur. Væri ekki gaman
að reyna að spila hinum
megin? Þarf það að vera
alltaf sama starfið, sömu
launin sömu öhyggjurnar?
Efastu stundum um hæfileika þína
til að leika nýtt lag? Sennilega
efast þú ekki um sjálfan þig en
aðrir halda að þú gerir það. Ef til
vill hikar þú við að segja nokkur
orð á fundum, frestar því að taka
ákvarðanir eða mistekst að túlka
skoðun þina á skýran og kröftug-
an hátt. Þú gætir verið að gefa al-
ranga mynd af þér.
Dale Carnegie námskeiðin hafa
þjálfað meira en 2.000.000 ein-
staklinga i því að hugsa, fram-
kvæma og taka árangursríkar
ákvarðanir og við höfum upp-
götvað, að flestir einstaklingar
hafa miklu meiri hæfileika til að
ná árangri heldur en þeir sjálfir
héldu.
Um þetta fjallar Dale Camegie
námskeiðið — kenna þér að kom-
ast áfram á eigin hæfileikum.
Nú, ef þú vilt spila hina hliðina á
plötunni okkar, þá er innritun og
upplýsingar í síma 82411.
Stjómunarskólinn
Konróð Adolphsson
Ásbjörn Magnússon, hjá Flugleiðum,
hefur aldrei komist upp fyrir skíðasleða-
stigið en fullyrðir eftir eigin reynslu að
það sé nóg við að vera fyrir þá sem ekki
eru „skíðahnetur". í hinu undurfagra
landslagi sé enginn vandi að eiga dýrðar-
daga í gönguferðum, á hestasleðum, við
sund, leikhús, tónleika, listsýningar,
verzlunarferðir, dans og kvöldskemmtan-
ir. Það er heldur engin goðgá fyrir byrj-
endur að fara í Alpana til að læra á
skíðum, þvi þar em bestu skíðaskólar
í heimi og ótrúlegt hve fljótt menn taka
framförum, þótt þeir hafi aldrei stigið
á svo mikið sem tunnustafi.
— Það er að vísu best að taka með
sér fatnaðinn, því að þarna í landi er
þetta tískufatnaður og því nokkuð dýr.
Hinsvegar er hægt að leigja sér skíði,
skíðaskó og annað sem til þarf, á hóf-
legu verði og allt era þetta úrvalsvörar.
Annað kæmust menn ekki upp með á
þessum stað, segir Ásbjöm.
— Ég hef sjaldan komið í huggulegri
húsakynni. Það beinlínis ilmar allt af
hreinlæti á gististöðunum og ég tók
sérstöku ástfóstri við Kitzbuhei. Þarna
er fólk á öllum aldri og stemmningin er
svo góð að það verður að reyna til að
skilja. Það skaðar ekki að fulltrúar okk-
ar þarna eru Trans/Alp, sem er sænskt
fyrirtæki og hjá því starfar ungt sænskt
fólk. Það hefur tekið íslendingana sér-
staklega upp á sína arma og það er bók-
staflega ekkert sem það vill ekki fyrir
þá gera. Menn geta því skundað þarna
um með sína skandinavisku, þótt ensku
og ekki síöur þýzkukunnátta sé auðvitað
kostur.
— Það er búið í Hechenmoos, rétt ut-
an við sjálft þorpið Kitzbuhel og þegar
menn koma út á morgnana geta þeir
valið um stórkostlegar skíðabrekkur sem
eru til beggja handa.
Menn geta valið um einnar eða tveggja
vikna ferðir.
Ein vika í Kitzbuhel kostar kr. 34,700
en 2ja vikna ferð 42.90. Vika í Chamonix
kostar 34,900 en tvær 41,900. Gisting er
í tveggja manna herbergjum. Það era
ekki böð í þeim en hinsvegar heitt og
kalt vatn og böð era á stigaganginum.
Þeir sem vilja ákveðið vera í eins manns
herbergjum geta fengið það fyrir auka-
greiðslu, kr. 2500 fyrir eína viku en kr.
5000 fyrir tvær. Innifalið í verði er flug-
farið Keflavík-Luxemburg-Keflavík og
fargjald með sérstakri áætlunarbifreið frá
Luxemburg til skíðastaðanna og til baka
Svo er það gisting í sex eða tólf nætur. í
Kitzbuhel er innifalið morgunkaffi og
kvöldverður öll kvöld, en í Chamonix er
innifalið morgunkaffi og 2 kvöldverðir í
vikuferðum og í tveggja vikna ferðum.
Þá er innifalin þjónusta fararstjóra Trans
Alp meðan á ferðinni stendur.
Skíðalyftureisur eru ekki innifaldar,
en hinsvegar er hægt að kaupa afsláttar-
kort fyrir viku eða lengri tíma, bæði
fyrir skíðalyftur og ,bússa“.
35