Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 26

Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 26
Handknattlerikur FYRST ÞURFTI AD RÉTTA FJÁR- HAGINN „Nei, það er af og frá að við höfum á nokkurn hátt misst andlitið“, sagði Sigurður Jónsson, formaður Handknatt- leikssambandsins, þegar við hittum hann nýkominn frá Norðurlandameistaramót- inu í handknattleik, sem fram fór í Kaupmannahöfn í febrúarbyrjun. „Við erum eiginlega furðu lostnir yfir þeim blaðaskrifum, sem átt hafa sér stað eftir mótið“, sagði Sigurður. Blöðin hafa haft uppi stór orð um getuleysi landsliðsins í leikjunum gegn Svíum og Dönum, en báðum lauk leikj- unum með tapi okkar manna, í bæði skiptin var um að ræða 2 marka tap. „Við viljum gjarnan vinna sem flesta leiki“, sagði formaðurinn, „en óskhyggjan má ekki ganga of langt. Staðreyndin er sú, að við höfum oftast verið mun lak- ari en þessar tvær þjóðir í handknattleik, ekki mikið, en nóg til þess að við stát- um af fáum sigrum gegn þeim, ekki sízt þegar við erum að heiman“. Sigurður Jónsson tók við formennsku með stjórn sinni í júlí mánuði s. 1. „Pað er strax í upphafi eitt helzta málefni okk- ar að athuga með erlendan þjálfara til að undirbúa landsliðið okkar fyrir komandi átök og undirbúning fyrir forkeppni Ol- ympíuleikana í Montreal 1976. Þetta tókst ekki og kom þar þrennt til. Við vorum of seint á ferðinni fyrir haustið, góðir þjálfarar voru allir samningsbundn- ir. Þá er að nefna aðstöðuleysið fyrir æf- ingar landsliðsins. Okkur var úthlutað miðvikudagskvöldum í Laugardalshöll- inni. Svo virðist sem Höllin sé upptekin 3 af hverjum 4 miðvikudagskvöldum vegna keppni, þetta er orðin keppnishöll fyrst og fremst, en um önnur hús til æf- inga er ekki að ræða fyrir landsliðið. Þá kemur annað til, félögin hafa hreint og beint ekki gefið eftir sína menn, eins og við höfum þurft á að halda. Eflaust hefur spennandi íslandsmót haft sitt að segja í þessu tilliti. í þessu efni þarf einhverju að breyta, og má geta þess að stjórn HSÍ er nú að endurskoða keppnistímabilið með það fyrir augum að þarna verði ráðin bót á, að árekstrar eigi sér ekki lengur stað milli félaganna og landsliðsins. Vonum við að endurbæturnar verði hægt að gera þegar fyrir næsta keppnistímabil. Félögin verða að skilja að landsliðið verður að fá beztu menn þeirra til æfinga og keppni, þegar á þeim þarf að halda. Það hljóta allir að viðurkenna að er aðeins sann- gjörn krafa. Nú, þá er það þriðja og ekki veiga- minnsta atriðið, sem ég komst að, þegar ég tók við formannsembættinu í júlí. Skuldirnar voru upp á 3 milljónir króna. Góður þjálfari hefði kostað 1.5 milljón- ir króna. Fjárhagslega var þetta hrein- lega útilokað, eins og á stóð. Starf okkar hefur því verulega beinzt að því að leysa fjármálahnútana, og það sýnist mér að æth að takast. Reyndar má sega að þau mál séu komin í höfn að miklu eða mestu leyti, og að endahnúturinn á þau mál verði bundinn á næstu vikum. — Og hvað er framundan í starfinu? „Að sjálfsögðu höldum við áfram að reyna að útvega góðan þjálfara. Við höfð- um samband við hinn rúmenska lands- liðsþjálfara Kunst. Hann benti okkur á að reyna fyrir okkur í Tékkóslóvakíu. Þar komumst við í samband við Mares, þann fræga leikmann, sem nú er ágætur þjálf- ari. Hann hentar okkur vel að því við teljum, hefur góða menntun í þjálfun og talar að auki ensku ágætlega vel. Að vísu er ekki búið að ganga endanlega frá samningum, við bíðum eftir lokasvari frá honum og væntum þess að fá hann í haust til okkar í lokaundirbúninginn fyrir forkeppni OL“. — Verður landsliðið við æfingar í sumar? „Já, það verður gert, og í júlí verður ísland í góðum félagsskap í Júgóslavíu, þar keppa heimamenn, Rússar, A-Þjóð- verjar, Tékkar og íslendingar í Trophy Cup. Þetta verður sterkt mót. Þá ætlum við að halda svipað mót hér heima í september, hingað koma Svíar, Tékkar og Svisslendingar. Þetta mót ætlum við að reyna að gera að árlegum viðburði hér heima. Nú, það sem eftir er af leik- tímabilinu eru 6 landsleikir eftir, Júgó- slavar í febrúarlok, Tékkar í marzbyrjun og loks Danir um mánaðamót marz og apríl. Öll landsliðin leika tvo landsleiki hér og ættu að rétta verulega við fjár- haginn hjá okkur“. Sigurður kvað forkeppni OL fara fram í október n. k. en dregið verður í apríl um hvaða lið leika saman. Væntanlega mun ísland fá eitt af liðunum, sem voru í 2.—8. sæti á síðustu leikum, og annað land, sem líklega verður lakara að gæð- um. — Hvað hefur verið gert varðandi unglingastarfið, Sigurður? „Unglingastarfið er að sjálfsögðu geysi- mikilvægt, og við höfum reynt eftir beztu getu að hlynna að því. Þar höfum við ágætan mann, Hilmar Bjömsson, sem var ráðinn í haust til að sinna unglingamál- efnunum. Meðal annars hefur hann þýtt og látið Ijósprenta svokallaðan Mark- varðaskóla, sænska kennslubók, sem ætti að koma að miklu gagni. Þá hefur Hilm- ar gert úttekt á þjálfun yngri flokkanna og verið í sambandi við þjálfara þeirra. Því miður er allt of víða pottur brotinn í þjálfuninni, fjölmenni allt of mikið á æfingum til að hægt sé að vinna nokkuð af viti, þetta allt upp í 50—60 manns á einni 45 mínútna æfingu. Þá höfum við aukið starfsemi kvenna- landsliðsins. Þær léku landsleiki við Bandaríkin á dögunum, og nú er rætt um Bandaríkjaferð okkar liðs og sömuleiðis hefur verið rætt um ferð til Norðurlanda og Hollands næsta vor. Þá er trúlegt að Norðmenn komi hingað með sitt kvennalandslið, og einnig Færeying- ar“. — Og hvað kostar starfsemi eins og sú, sem HSJ þarf að standa undir? „Starfið kostar vart undir 8 milljón- um á ári miðað við núgildandi krónur, þar koma á móti landsleikir hér heima, sem gefa okkur mest í aðra hönd til að mæta þessum kostnaði", sagði Sigurður Jónsson að lokum. — JBP — 26

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.