Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 11
SIGLINGAR:
Daníel — byrjaði snemma
að sulla í pollunum!
Siglingamaður ársins 1974 er ungur
Kópavogsbúi, Daníel Friðriksson, 22
ára að aldri. Daníel segist hafa haft
gaman af að „sulla“ í sjónum allt frá
því að hann var 9 ára að aldri, enda
uppalinn við sjávargötu í sunnan-
verðum Kópavogi. Að auki er hann
skipasmiður að atvinnu, starfar hjá
Stálvík, en notar gjarnan frístundirn-
ar í eigin þágu.
Siglingar eru dýrt sport, um það
þarf vart að fjölyrða. En falleg er
þessi íþrótt og glæsileg. Siglingaíþrótt-
in er ung að árum hér, og virkir með-
limir í klúbbunum Ými í Kópavogi
og Brokey í Reykjavík eru e.t.v. ekki
ýkja margir enn.
Samt eru alvörumótin byrjuð, og
keppendur hafa farið utan. „Við
kynntumst því í Travemiinde að við
eigum margt ólært“, sagði Daníel.
Hér á landi eru einkum notaðir Fire-
ball-siglarar, Eldknettir eru þeir
reyndar kallaðir hjá strákunum. „Þetta
verður alveg vita ólæknandi della hjá
þeim sem kynnast þessu“, sagði
Daníel. Ekki er Daníel einn á báti.
Mjög mikið atriði er fyrir stýrimann-
inn að hafa góðan háseta. Valdimar
Karlsson hefur verið í því hlutverki
hjá Daníel, en í það starf þarf tnikla
nákvæmni við að halda jafnvægi á
siglingunni.
SKÍÐI:
Magnús — að sjálfsögðu
úr Fljótunum, hvað annað?
Magnús Eiríksson, skíðamaður árs-
ins 1974 hefur undanfarið verið ósigr-
andi eða því sem næst í skíðagöngu,
þeirri ágætu íþróttagrein. Magnús er
að sjálfsögðu Fljótamaður. Þaðan
koma allir beztu göngumennimir,
eins og alkunna er.
Magnús er að verða 23 ára og er
fluttur til Siglufjarðar og býr þar á-
samt konu sinni, Guðrúnu Pálsdóttur,
sem var ágæt sundkona og var á tíma
í landsliði okkar í bringusundi. Eiga
þau eina dóttur, sem er á fyrsta ári.
Magnús hcfur haldið uppteknum
hætti í vetur og sigrað í sifellu. „Ég
hef ekki æft eins og í fyrra“, sagði
Magnús, sem nemur trésmíðar nyrðra.
Hann vandist sinni íþróttagrein
snemma heima fyrir. Fyrr á árum
voru gönguskíðin raunar hclzta sam-
göngutæki Fljótafólks, en sveitin er
afskaplega snjóþung á vetrum eins og
kunnugt er. Hætt er við að nýtízku-
legri farartæki liafi nú leyst skíðin af
hólmi. En engu að síður taldi Magnús
að gangan yrði þar enn um sinn vin-
sæl afþreying.
SUND:
Þórunn — sjö vikur
við þjálfun í Alabama
Þórunn Alfreðsdóttir, sundmaður
ársins 1974, er aðeins 14 ára gömul,
nemandi í Hvassaleitisskóla og félagi
í Sundfélaginu ÆGI.
Þórunn hefur æft sund í Ægi í fjög-
ur ár og í stuttu spjalli við íþrótta-
blaðið sagði hún okkur m. a., að hún
æfði að staðaldri allt að 6 sinnum í
viku, \Yi—2 klst. í senn. Þjálfarar
Þórunnar eru hinir góðkunnu sund-
menn, Guðmundur Gíslason og Sig-
urður Ólafsson. Á s. I. ári átti Þórunn
þess einnig kost að dvelja um 7 vikna
tíma í Alabama í Bandaríkjunum við
þjálfun hjá fyrrv. þjálfara sínum,
Guðmundi Þ. Harðarsyni sem dvelur
þar við framhaldsnám og sund-
kennslu. Á árinu 1974 skaraði Þór-
unn mjög fram úr bæði á Sund-
meistaramóti íslands og Bikarkeppni
Sundsambandsins vann hún beztu af-
rekin.
Uppáhalds grein hennar er 200 m.
flugsund. Setti hún nýtt íslandsmet í
þeirri grein á sundmeistaramótinu, 2.
31.9 mín. En Þórunn er ekki sú eina
í fjölskyldunni sem sundið heillar.
Bræður hennar þrír, Ólafur, Axel og
Hermann hafa allir lagt fyrir sig sund
og sundknattleik og keppt fyrir ÆGI.
Það má því með sanni segja að for-
eldrar þeirra, hjónin Unnur Ólafs-
dóttir og Alfreð Eymundsson að
Stóragerði 34, hafi lagt fram mikinn
og góðan skerf til ÆGIS og sund-
íþróttarinnar í heild.
11