Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 43
Feróalög
í febrúar 1974 opnaði verzlunin Úti-
líf h.f. í Glæsibæ og hefur eins og við
var að búast gengið nokkuð glæsilega
síðan. Eins og nafnið ber með sér er
einkum höndlað með þær vörur sem
fólk þarf til að geta stytt sér stundir við
leiki eða útilegur úti í guðsgrænni nátt-
úrunni.
— Þó er kannske lögð mest áhersla á
að gera því til hæfis með það sem það
þarf þegar Guðs náttúra er hvít, því skíði
og skíðabúnaður er það sem mest áhersla
er lögð á.
Bjarni Sveinbjörnsson gekk með okk-
ur um verzlunina til að sýna okkur það
helsta sem hann hefur á boðstólum.
— Við erum með Blizzard, Elan og
Spalding skíði, en það eru leiðandi
merki í skíðaiðnaðinum í dag. Þá erum
við einnig með finnsk og norsk göngu-
skíði. Ég hef reynt eftir bestu getu að
vera með skíði fyrir alla og ég held að
það hafi tekist nokkuð vel. Það geta
allir fundið skíði við sitt hæfi hér, hvort
sem þeir eru ungir eða gamlir, byrjendur
eða eldklárir. Fyrir jólin seldum við t.d.
mikið af barnaskíðum, á börn frá 3—6
ára.
— Það er að verða mjög ánægjuleg
þróun í skíðamálunum hér. Þetta er að
verða fjölskylduíþrótt og það fer vel á
því. Þetta stafar auðvitað af því að það
hefur orðið gerbreyting á aðstöðunni.
Við höfum verið 30 árum á eftir tíman-
um í þessu efni, það hefur bókstaflega
ekkert verið gert fyrir skíðamenn þar til
núna.
Aukin skíðakennsia, til dæmis í Kerl-
ingafjöllum hefur líka lengt skíðatímann
til muna og það er nú orðin nokkuð
jöfn sala allt árið. Töluvert á sumrin
líka.
— Nú, hestamennska er einnig vin-
sælt sport og ég hef hér í búðinni allt
sem til hennar þarf, nema sjálfa hest-
ana. Ég er með hnakka, beisli, tauma,
svipur, áhöld til að járna og þar fram-
eftir götunum. Það er töluverð hreyfing
i þessu enda eru ófáir hestar hér innan
borgarmarkanna.
Þar fyrir utan býður Útilíf upp á fjöl-
breytt úrval af allskonar annarskonar
íþróttavörum. Þar eru t. d. föt til nær
hverskonar íþrótta, þar eru handboltar,
útilif
fótboltar, skautar, borðtennis og badmin-
tonspaðar. Sportjakkar og ýmiskonar
annar sportfatnaður.
Þá er einnig hægt að fá þar fullkom-
in viðleguútbúnað, með útigrilli og til-
heyrandi.
Þá er í tengslum við verslunina rekin
Skíðaþjónustan. Þar er hægt að fá gert
við hverskonar skíðaútbúnað, bindingar
settar á og þar frameftir götunum og
það er útlærður maður sem annast þetta
enda segir Bjarni að þetta sé fullkomn-
asta skíðaviðgerðaverkstæði norðan
Alpafjalla.
1 skíðaþjónustunni er einnig rekin um-
boðssala fyrir notuð skíði, skíðaskó og
annað skíðadót og er þar hægt að gera
góð kaup.
¥
¥
ERUM
FLUTT
AÐ LAUGAVEGI 15
hf
V*.
LITIÐ INN OG SKOÐIÐ OKKAR MIKLA
OG VANDAÐA VÖRUÚRVAL.
VÖRUR FYRIR ALLA~ VERÐ FYRIR ALLA
lilil.-
KBISHLI
Laugaveg 15 sími 13111
43