Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 14

Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 14
Gamlir afreksmenn ... Innritun í KR — Og hver var nú byrjunin á íþrótta- mennskunni? „Það má segja að vinur minn, Anton heitinn Björnsson, íþrótta- kennari, sem var nokkrum árum eldri en ég, hafi skipt sköpum í þessu efni. Hann var óþreytandi að draga mig með sér út á Sólvallagötu, þar sem voru grasflatir, kjörnar til íþrótta og leikja. Hámarkið heid ég að hafi þó verið, þegar hann rölti með mig niður í Garðastræti til Guð- mundar „skó“. Þar fór fyrir mér eins og fleirum Vesturbæingum, að ég varð á svipstundu gallharður KR-ingur, og það er ég enn. Ég man að ég var titrandi og með hjartslátt, þegar við héldum til þessa vinalega manns í skósmíðastofunni í kjallaranum í Garðastrætinu". „Anton og ég vorum miklir mátar og máttum vart af hvor öðrum sjá. íþrótta- dellan sameinaði hugi okkar, það var okkar eina áhugamál, eða svo gott sem. Ég kynntist knattspyrnunni, handbolta og skauta- og skíðaíþrótt. Knattspyrnan var algjör della hjá mér fram eftir unglings- árum. Ég var fastur maður sem innherji og útherji í KR í 3., 2. og 1. flokki. Þá var ákveðin utanför til Færeyja. Ég var skilinn útundan. Hversvegna, spyrðu? Ekki veit ég það, — en plássið mitt í liðinu var fyllt af einhverjum öðrum. Ég varð fár við, móðgaðist upp á lífstíð, og kom aldrei framar nálægt knattspymu, enda þótt mig klæjaði sannarlega eftir að sparka bolta“. Blýlóðið — Kannski var það þín mikla heppni í íþróttaiðkun að hafa losnað þannig við fótboltann? „Já, ég er ekki frá því. Upp úr þessu fór ég að stunda frjálsar íþróttir ein- göngu. Við Anton og fleiri strákar höfð- um tekið þann sið talsvert áður að kasta þungu blýlóði, sem við fundum við lýsis- verksmiðju vestur við Mýrargötu. Ég fann fljótt styrk minn, enda þótt ég væri bara smápatti. Ég var nefnilega betri en margir stóru strákanna. Við settum okk- ur það mark að kasta upp á steinvegg þarna, það var ágætis markmið. Ég held bara að veggurinn standi enn og beri menjar þessarar íþróttadellu okkar strák- anna. Anton Björnsson reyndist mér góður og tryggur félagi alla sína tíð, en hann fórst ungur með vélbát, og var það mér mikill vinarsviptir.“ Húseby með Torfa, Magnúsi Jónssyni (óperusöngvara) og Erni Clausen. — Var þetta kannski kveikjan að því sem koma átti? Alveg örugglega, því upp úr þessu fór ég til Benedikts Jakobsson- ar að æfa, var þetta 12—13 ára gamall. Hann var eins og vitamínssprauta. Ég hélt áfram í fótboltanum á þessum ár- um, og í handbolta var ég víst nokkuð hættulegur skotmaður. Það var sagt að ef boltinn hitti, þá lægi það inni, með eða án markvarðarins! í fótboltanum vorum við ósigrandi, KR-ingarnir. Eitt markið, sem ég skoraði er mér minnisstætt. Ég skaut hátt upp i lofti utan frá miðju og boltinn datt niður að baki markvarðarins, sem gat vart annað en klórað sér í höfð- inu. Albert Guðmundsson var þá einn af mótherjunum. Hann var mjög efnilegur þá strax. Síöar þótti okkur frjálsíþrótta- strákunum það einkennilegt að sjá hann dútla með bolta, tímum saman, dag eftir dag, mánuð eftir mánuð, vestur á tennis- vellinum á Melavellinum. En þetta laun- aði sig vel hjá Albert, hann vissi hvað hann var að gera. „Dundað“ ó vellinum — Eitthvað hefur þú víst ,,dundað“ sjálfur þarna vestur frá? „Ekki er því fyrir að synja. Ég varð algjör dellukall, æfði eins og vitlaus mað- ur, vetur og sumar. Svo framarlega, sem ljós logaði í gamla KR-húsinu við Tjöm- ina, þá var maður kominn þar inn, og farinn að æfa, og vestur á Melavelli kast- aði ég tugi og hundrað kasta daglega. Ég var víst ekkert skárri en Albert með það“. — Og hvenær fékkstu svo að sýna þig fyrst á móti? „Það var þetta fyrsta sum- ar, sem ég var hjá Benedikt. Anton, sem var sífellt driffjöðrin, heimtaði að ég yrði skráður í drengjameistaramót þá um sumarið. Ekki gekk þetta þó sem bezt, ég varð víst 6. af 10 keppendum. Ég hlakkaði óskaplega til þessa móts, og reyndar mótanna allra, sem ég átti síðar eftir að vera með í. Tveim sumrum síðar bára æfingar Gunnars loks ávöxt, hann fór að taka 14

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.