Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 17
Hollendingurinn fljúgandi —
ohan
»>’ ■
Tuttugu og sjö ára er Johan Cruyff,
þjóðhetja í tveimur lönduni, Hollandi og
Spáni. Knattspyrnuáhugamenn beggja
landanna mega vart vatni halda fyrir
hrifningu og aðdáun, þegar Cruyff og
knattspyrnusnilli hans berst í tal.
Stjarna hans rís ekki aðeins hátt á
Spáni og í Hollandi, allur hinn stóri
knattspyrnuheimur viðurkennir yfir-
burði hans og hæfileika. Síðan Pélé,
brasiliska perlan hætti keppni á alþjóð-
vettvangi er Cryff sá knattspyrnumaður,
sem mestan áhuga vekur.
Knattspyrnan er leikur ellefu samherja
á móti ellefu andstæðingum. Hingað til
hefur það verið viðurkennd regla, að
enginn einstakur leikmaður væri eða ætti
að vera ráðandi um gengi síns liðs og
úrslit leikja.
Johan Cruyff — Hollendingurinn fljúg-
andi — kollvarpaði þeirri gömlu gull-
vægu reglu. Hann var potturinn og pann-
an í sigri Ajax, þrisvar í röð, í Evrópu-
bikarkeppninni, auk þess sem hann leiddi
liðið einu sinni til sigurs i heimsmeistara-
keppni félagsliða.
315 milljónir, sem borguðu sig á einu ári.
Þegar Cruyff kvaddi félaga sína í Ajax
og hélt til Spánar voru áhrifin ekki lengi
að koma í ljós. Hollandsmeistaratitiliinn
rann úr höndum Ajax til Feyenoord og
liðið féll úr Evrópubikarkeppninni i ann-
arri umferð.
Barcelona þurfti aftur á móti ekki að
sjá eftir að hafa greitt 355 milljónir
króna fyrir manninn, sem líkt hefur ver-
ið við rússneska balletdansarann Nurejev.
Aldrei hefur knattspyrnumaður verið
keyptur fyrir jafnháa upphæð — en
kaupin hafa borgað sig nú þegar.
Barcelona liðið, sem átti í miklum
erfiðleikum varð Spánarmeistari í fyrsta
skipti í 14 ár. Allt var það Johan Cruyff
að þakka — hann hreinlega snéri vörn
í sókn og meðleikmenn hans fylltust bar-
áttuhug og krafti eftir langa og bitra bar-
áttu neðarlega í spænsku deildinni.
Fjárhagslegur ávinningur félagsins læt-
ur ekki á sér standa. Eftir aðeins rúm-
lega árs veru hjá Barcelona er hið
90.000 manna áhorfendasvæði við leik-
völl félagsins orðið of lítið. Unnið er að
stækkun þess, þannig að þar rúmist
110.000 manns. Allt er þetta vegna
Cruyff — Spánverjar vilja sjá Hollend-
inginn og eru tilbúnir að greiða hátt
verð fyrir.
Hinn öruggi heimsmaður.
Johan Cruyff er á engan hátt hinn
dæmigerði atvinnuknattspyrnumaður —
hvorki í útliti né framkomu. Honum hef-
ur verið lýst, sem hinum fullkomna
heimsmanni, grannur, kraftmikill — lífs-
krafturinn geislandi í allar áttir. En meg-
in einkenni hans er öryggið — það bregst
honum aldrei — hvorki í hópi æstra að-
dáenda né aðgangsharðra fréttamanna. Á
leikvellinum er það sjaldgæft að jafn-
vægi hans raskist hve hart sem andstæð-
ingarnir sækja að.
Þrátt fyrir að Cruyff sé dáður af mill-
jónum um allan heim og geti sjaldan um
frjálst höfuð strokið á ferðum sínum,
tekur hann öllu með ró og spekt. „Ég
veit að margir — mjög margir, vilja
af mér frétta — og hverjar skoðanir mín-
ar eru, sem knattspymumanns,“ segir
hann. „Þeir eiga líka kröfu á að fá að
vita það‘. Þetta fólk tekur þátt í að
greiða mér laun og ég er tilbúinn til að
ræða um hvað sem er — nema einkalíf
mitt.“
löndum
atv_______
17