Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 37

Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 37
Hlíðarfjall freistar margra — Til að fólk sæki skiðastað þarf það að kunna á skíðum. Til að kunna á skíðum þarf það að læra. Þess vegna fórum við af stað með skíðaskóla hér í Hlíðarfjalli í fyrra. Skólinn gekk mjög vel og raunar miklu betur en við þorð- um að vona. Við sjáum þegar árangur af þessu starfi í aukinni sókn í fjallið. Þannig fórust Ivari Sigmundssyni orð, þegar íþróttabiaðið átti tal við hann fyrir skömmu, en ívar er forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar í Hlíðarfjaili við Akureyri. Starfsemin í Hlíðarfjalli hefur farið vaxandi frá ári til árs og það gerist æ oftar að yfir 1000 manns leggur leið sína þangað á góðviðrisdegi og notfærir sér aðstöðuna, sem fer síbatnandi. — 1 fjallinu geta allir fundið brekkur við sitt hæfi, sagði ívar, enda hefur verið lögð áhersla á að uppbyggingin yrði mið- uð við þarfir almennings. Skíðaíþróttin er ein af þeim iþróttagreinum, sem hæfir öllum aldurshópum, en slíkt verður ekki sagt um margar aðrar íþróttagreinar. Þegar litið er upp í brekkurnar í kring um hótelið ber mest á börnum og ungl- ingum. Manni verður því á að spyrja hvar hinir aldurshóparnir halda sig? ívar: í dag er miðvikudagur og mán- aðarfrí í skólum bæjarins. Það er því eðlilegt að yngri kynslóðin sé áberandi. Hins vegar er því ekki að neita að hún er alltaf í meiri hluta þó að aðsókn full- orðinna sé mikil um helgar. Þetta stafar líka af því að skíðaíþróttin er ung íþrótt og það tekur í raun og veru kynslóðir að gera íþrótt að almenningsíþrótt. Upp- byggingin í Hlíðarfjalli hófst árið 1962 og var sóknin í fjalið fyrstu árin afar lítil. Núna eru unglingarnir sem þá komu hingað farnir að koma í fjallið með börn- in sín. Þannig mun þetta halda áfram að hlaða utan á sig. íþr.bl. — Getur aðsóknin ekki ráðist líka af tískusveiflum? Ivar: — Ég held að það séu þrír þætt- S. HELGASON HF. Steiniðja Einholti 4 SÍMI 26677 Gluggakistur ÚR BLÁGRÝTI OG GRÁSTEINI, OG EINNIG ÚR ETERNIT. 37

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.