Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 9

Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 9
GOLF: Sigurður — ungur og vaxandi golfleikari Golfmaður ársins 1974 er ungur að árum. Sextán ára gamall er Sigurður Thorarensen, Kópavogsbúi, sem kynntist golfíþróttinni fyrst, þegar hann dró golfkerruna fyrir föður sinn, Grím Thorarensen frá Sigtúnum. Síðar fór drengurinn að reyna að handleika kylfurnar. Og áður en varði var hann farinn að hitta, — vel. Og þá var það fyrst að ná föður sínum í leikni, og síðan hverjum af öðrum. Sigurður tók þátt í landsmóti full- orðinna s.l. sumar, og þrátt fyrir æsku sína varð hann 6. í röðinni. Um þess- ar mundir er hann á Spáni ásamt Júlíusi Júlíussyni og Sigurjóni Gísla- syni, félögum sínum úr Keili í Hafn- arfirði. Sigurður kvaðst hafa ætlað að æfa handknattleik, en endalok ferils hans í þeirri grein urðu snögg. Hann hand- leggsbrotnaði fljótlega, og gaf þá í- þrótt á bátinn. Sigurður er nemandi í Menntaskóla Kópavogs. Foreldrar hans eru þau Grimur Thorarensen og Bryndís Guð- laugsdóttir. HANDKNATTLEIKUR: Viðar — jafnaði hjá heimsmeisturunum Handknattieiksmaður ársins 1974 er Viðar Símonarson. Viðar þarf vart að kynna, svo kunnur er hann íþrótta- áhugafólki. Viðar er rétt nýlega orð- inn þrítugur, og á þessum vetri munu landsleikir hans líklega verða orðnir 80 talsins. Ekki er ósennilegt að hann verði einn þeirra leikmanna, sem ná yfir 100 landsieikjum. Viðar leikur fyrir FH, en lék um árabil með Haukurn. Handboltinn var honum í blóð borinn eins og öðrum Hafnfirðingum. Með félagsliðunum og landsliðinu hefur Viðar reynzt traustur leikmaður, ágætur vamar- maður og skytta svo af ber. Sennilega muna margir eftir því þegar Viðar skoraði jöfnunarmarkið í Laugardalshöllinni gegn heimsmeist- urum Rúmena, — íslenzku strákarnir voru þá búnir að vinna upp 5 marka forskot heimsmeistaranna og náðu jafntefli. Viðar er kvæntur Halldóru Sigurð- ardóttur og búa þau í hinum nýja Norðurbæ Haftiarfjarðar. JUDÖ: Sigurður KR. — verður áhorfandi á NM 75 Sigurður Kr. Jóhannsson, bygginga- tæknifræðingur var Jiídómaður ársins 1974. Hann er 31 árs starfar hjá ís- lcnzkum aðalverktiikum á Keflavíkur- flugvelli, en starfaði áður í 5 ár hjá Reykjavíkurborg. Nokkrum dögum eftir útnefninguna varð Sigurður fyrir því óláni í keppni, að andstæðingur hans féll ofan á fót hans og slasaðist Sigurður svo illa að hann verður frá keppni í allan vetur. Lá hann á sjúkrahúsi í 2 daga, en hef- ur síöan verið heima í göngugipsi. „Þetta var einstök óhcppni, ég hef aldrei fvrr meiðst að ráði í júdó, dýnurnar voru of mjúkar hjá okkur“, sagði Siguröur, sem hefur æft af kappi í vetur, enda cr Norðurlanda- mótið í Júdó hér í Reykjavík 19—20. apríl n. k. og Sigurður var álitinn koma til greina sem einn af beztu mönnum í sínum þyngdarflokki á mótinu, enda stóð hann sig mjög vel á Norðurlandamótinu í fyrra. „Ég byrjaði á júdóinu með þeim fyrstu, var þá 17 ára gamall, og þá var upphaflega æft jiu-jitsu. Eftir ein 3 ár fór ég utan til Stavangurs að læra byggingatæknifræði og þá varð hlé á æfingum. I*að var ekki fyrr en 1968 að ég fór raunverulega að æfa, og hef gert það nær óslitið síðan“, sagði Sigurður. Hann er 1. dan með svart bclti og hefur unnið sér inn 15—16 alþjóðleg stig í keppni viö erlenda andstæðinga. Þjálfari Sigurðar er Tékkinn Michal Vachun, 4. dan, mjög fær þjálfari og lærður íþróttakennari, sem starfar fyrir Júdósamband íslands. Eiginkona Sigurðar er Lilja Óskars- dóttir og búa þau í Kópavogi. Sig- uröur taldi að okkar mcnn ættu að eiga góða möguleika á Norðurlanda- mótinu, cn í fyrra náði íslenzka sveit- in silfurverðlaunum í kcppni við Finna um gulliö. En að þessu sinni veröur Sigurður því miður á áhorfendabekkj- unum. 9

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.