Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 5
Skytta bak við búðarborðið
Fyrirliði handboltalandsliðsins stýrir sportvöruverzlun, — og
þar fæst ekkert sem hægt er að nota í handbolta, ekki enn
sem komið er. Hinsvegar er þar allt til að skjóta svo um mun-
ar, byssur og skotfæri allskonar. Við ræddum við Ólaf H.
Jónsson. — Sjá bls. 31.
Hann Gunnar
Gunnar Huseby þekkja allir, — af afspurn. Tvívegis varð hann
Evrópumeistari. Hróður hans barst víða um lönd. En hvað
varð af þessari gömlu og góðu kempu, sem menn eiga svo góð-
ar endurminningar eftir? Við hittum Gunnar á dögunum og
ræddum við hann um fyrri dýrðardaga, — og það sem hann
hefur fengið út úr lífinu, — eða mistekizt að ná út úr lífinu,
ættum við e.t.v. að segja. — Sjá bls. 13.
íþróttamenn ársins
Útnefning íþróttamanna ársins fór fram öðru sinni snemma
á þessu ári. Að venju voru valdir fulltrúar hverrar greinar fyr-
ir sig, af fulltrúum viðeigandi sérsambanda. Þessi útnefning
hefur þegar notið mikilla vinsælda, — meðal íþróttafólksins
og forystumannanna. — Sjá bls. 6.
Hvert á að fara á skíði?
Skíðaíþróttin nýtur óhemju mikilla vinsælda. Um það verður
vart deilt. En hvert skal halda? Er rétt að hlífa gjaldeyrissjóðn-
um og halda til Akureyrar, eða . . . ? Við kynnum ýmsa mögu-
leika í þessu efni í íþróttablaðinu að þessu sinni. — Sjá bls. 31.
íþróttir eru fyrir alla!
Þann misskilning að íþróttir séu fyrir fáa og útvalda er sífellt
verfið að berja niður, — sem betur fer. Á myndinni hér til
hliðar eru t, d. vangefnir frá Bjarkarási í æfingum undir
stjórn Sonju Helgason. — Sjá nánar á bls. 21.
Streytan
Streyta eða stress. Er það sjúkdómur, eða eitthvað annað?
Það ætti ekki nokkur maður að láta henda sig að verða streyt-
unni að bráð. íþróttimar eru meðalið, — og það þarf helzt
að taka ÁÐUR en illa fer. 1 þessu blaði er að finna grein um
STRESS, — sjá OPNU.
i Maðinu