Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 21
íþróttrir lamaóra
Dagana 11.—16. des. s.l. efndi Í.S.Í.
til fyrsta alhliða leiðbeinendanámskeiðs
hér á landi fyrir leiðbeinendur í íþrótt-
um fatlaðra. Alls voru 23 þátttakendur
á námskeiðinu víðsvegar af landinu,
langflestir þeirra íþróttakennarar. Aðal-
kennari og stjórnandi námskeiðsins var
Magnús H. Ólafsson en honum til að-
stoðar voru Guðmundur Þórarinsson, til-
nefndur af íþróttakennarafélaginu og Ella
Kolbrún Kristinsdóttir tilnefnd af félagi
sjúkraþjálfara. Auk þess voru flutt á
námskeiðinu ýmiskonar erindi um mál-
efni fatlaðra, bæði af læknum svo og af
forystuaðilum í samtökum öryrkja.
Námskeiðið stóð yfir hvem dag frá
kl. 9—5. Bókleg kennsla fór fram í
Hlíðaskóla en verkleg kennsla í íþrótta-
húsi Álftamýrarskóla. Af viðtölum við
þátttakendur má ráða, að námskeiðið
hafi heppnast vel. Lögð var áhersla á
að kenna hvernig fatlaðir geta lagt stund
á flestar hinna venjulegu iþróttagreina,
en auk þess kynntar ýmsar nýjar grein-
ar, sérstaklega við hæfi fatlaðra en áður
óþekktar hér á landi. Er það nánast
ótakmarkað sem fatlaðir geta haft gagn
og gaman af íþróttaiðkun, ef rétti-
lega er að staðið.
Til þess að fá sem besta innsýn í hlut-
skipti fatlaðra fóru nokkrir þátttak-
enda í bæjarferð í hjólastól eða með
spelkur og hækjur. Myndin er úr einni
ferðinni og skýrir sig að öllu leyti
^ ^ sjálf.
Að námskeiðinu loknu hlutu allir þátttakendur viðurkenningarskjal. Myndin er frá
kaffisamsæti, þar sem forseti ISI afhendir viðurkenningarskjölin.
„Curling" er ný og skemmtileg íþrótt sem nýtur hvarvetna vaxandi vinsælda. Þátt-
takendur leika hér „curling" úr hjólastói og einnig voru þeir settir í spelkur til að
fá sem nánust kynni af getu og viðbrögðum fatlaðra.
Borðtennis er vinsæl hjá fötluðum eins og öðrum. Hér leiðbeinir Hjálmar Aðal-
steinsson tveim þátttakenda og fjær er Óskar Sigurpálsson að veita tilsögn í lyft-
ingum.
Jóhann Guðmundsson læknir, sérfræðingur í
meðal þeirra sem fluttu fróðlegt erindi. Fjallaði
semdir í baki og hryggjarliðum.
bæklunarlækningum var
erindi hans um mein-
21