Íþróttablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 45
Cruyfff —
Framh. af bls. 19
Fadrhonc vi'ki sem hjálfari landsliðsins.
Cruyff var þá staddur á Spáni en brá
við skjótt og sendi skeyti til hollenska
knattspvmusambandsins. ,,Ef Fadrhonc
rekinn — Cruyff hættur.“ Stuttaralegur
símskeytastíll en árangursríkur samt.
Þannig launaði Cruyff, Fadrhonc frá
Tékkóslóvakíu, sem ávallt mótaði leik
liðsnis nieð Cruyff í huga.
Þrátt fyrir að Cruyff er stöðugt í fullri
þjálfun óttast hann að meiðast illa í
knattspyrnuleik. Flann minnist þess, er
Pelé meiddist svo illa í heimsmeistara-
keppninni 1966, að hann var úr leik fyrir
lokaumferð keppninnar.
„Flingað til hef ég sloppið heill á húfi
frá leikjum, sama hvernig andstæðingam-
ir hafa reynt að stöðva mig. Sannarlega
ekki alltaf með neinum vettlingatökum.
En hve lengi verða heilladísirnar mér
hliðhollar?“, spyr Cruyff.
Alfredo di Stefano fyrirmyndiii
Alfredo di Stefano er sá knatt-
spymumaður, sem hann dáir mest. „Flvíta
örin“, sem vann aðdáun allra knattspyrnu
áhugamanna þau tíu ár, sem hann leiddi
Real Madrid frá einum sigrinum til
annars.
„Hann var stórkostlegur leikmaður,
ofurmenni með ódrepandi kraft. Hann
er mín fyrirmynd,“ segir Johan Cruyff.
Meðspilarar Cruyff dá hann og virða.
Gott dæmi um það era orð Arie Haan,
sem lék með honum hjá Ajax. „Það er
eins og að berjast fyrir góðan hershöfð-
ingja. Þegar eitthvað bjátar á, leitar mað-
ur til Cruyff, fær hans fyrirmæli og fer
eftir þeim. Ef eitthvað gengur ekki eins
og áætlað var, tekur hann á sig sökina.
Þannig hefur hann alltaf verið. Jafnvel
leikmenn Feyenoord — erkióvinarins —
viðurkenna Cruyff sem foringjann.“ óG.
Stuttur ferill —
Framh. af bls. 23
ar mundir. Og keppnin var svo sann-
arlega hörð í upphafi. Landi Morris,
Robert Clark tók forystu eftir fyrri
daginn, hann vann sérlega góð afrek í
100 metra hlaupinu og langstökkinu. í
fyrstu grein síðari dags, 110 metra grinda
hlaupi. náði Morris forystunni og hélt
henni til loka. Hann átli þó frekar lé-
legar greinar síðari daginn. stangarstökk.
þar sem hann var síðastur og spjótkast,
en þar varð hann níundi. Tugþrautinni
lauk hann með ágætu 1500 mctra hlaupi.
þar sem hann hljóp á 4:33,2 mínútum,
hans besti tími. Annar í tugþrautinni
var landi Morris, Robert Clark með
7601 stig og þriðji .lack Parker, einnig
Bandarík junum með 7265 stig. Bæði
Morris og Clark náðu betri árangri en
gamla staðfesta heimsmetið.
Eftir Olympíuleikana tók Glenn
Morris þátt í nokkrum íþróttamótum
og á einu þeirra, sem fram fór í Stokk-
hólmi ágústkvöld eitt gerðist sorgleg-
ur atburður. Eins og áður segir var
Morris aumur i lærvöðva og þau
meiðsli háðu honum í Olympíukeppn-
inni. Morris hafði hlaupið 110 metra
grindahlaup á 14,6 sek. og stokkið 6,73
m í langstökki í Stokkhólmi og þá
gerðist óhappið. íþróttafélagarnir báru
konung íþróttanna út af leikvanginum,
Það var ekki aðeins Olympíuleikvang-
urinn í Stokkhólmi, sem hann yfirgaf
í þetta sinn, hann náði sér aldrei til
fulls, þetta var hans síðasta keppni.
Sorglegur endir á glæstum íþrótta-
ferli.
Morris talaði sjálfur um að ef hann
myndi ná sér árið eftir myndi hann
þreyta keppni á ný, hann stefndi að
því að ná 8300 stigum árið 1937. Að
því loknu ætlaði hann að hætta. Haust-
ið 1936 áformaði hann að gifta sig. Að-
eins eitt ár í viðbót — en ekki meira.
Þetta var takmark hans, en örlögin
gripu í taumana. Eftir sigurinn á 01-
ympíuleikunum streymdu tilboðin til
Glenn Morris um framtíöaratvinnu.
Hann lét sér þó fátt um- finna-st, hann
var lítillátur áfram, dáður maður, sem
óskaði þess að ná árangri í lífinu vegna
hæfileika sinna sem maður, en ekki
vegna afreka í íþróttum. Hin heims-
fræga útvarpsstöð National Broadcast-
ing Corporation bauð honum starf sem
íþróttafréttamanni og það stóðst hann
ekki. Morris fékk fína skrifstofu og
mahóní-húsgögn og naut starfsins
mjög.
í desember 1936 hlaut Glenn Morris
Sullivan styttuna eftir harða keppni við
Jesse Owens. Það eru ein fræknustu
verðlaun, sem bandarískum íþrótta-
manni geta hlotnast. Hann virtist og
vera á batavegi í fætinum. Morris hafði
heilið að keppa fyrir Frjálsíþróttafélag
New York borgar á næsta keppnistíma
bili. Hann var orðinn vel metinn og hátt-
skrifaður i Rotarykiúbbi. Gæfan virtist
brosa við honum hvert sem litið var.
Tarzan, atviiniumaður!
En ekkert er fullkomið. Útvarps-
maðurinn kunni ekki við sig í stór-
borginni. Hir.ar hörðu götur tóku fjað-
urmagnió úr fótunum og mengað Ioftið
hafði slæm áhrif á hann. Hann fann
það, að með sama áframhaldi rættist
ekki draumurinn um 8300 stig í tug-
þraut.
Nú kom annað til sögunnar, hinn
frægi og margfaldi heimsmethafi í
sundi, Johnny Weissmúller, sem leikið
hafði Tarzan í kvikmyndunum í nokk-
ur ár var að missa álit kvikmynda-
jöfranna. Það varð því að fá nýjan
Tarzan. Fyrst beindust hugir kvik-
myndastjóranna að ,,baseball“ hetj-
unni Lou Gehrig, en frá því var horf-
ið fljótlega, og þá kom upp nafnið
Glenn Morris. Honum voru boðnar
háar fjárhæðir — og hann þáði boðið.
Það varð aðeins ein kvikmynd —
Hefnd Tarzans.
Elenor Holm lék hvítu stúlkuna, en
hún varð olympíumeistari í baksundi
á OL í Los Angeles. Holm var aftur
á móti dæmd frá keppni fyrir OL í
Berlín, því að á leiðinni yfir hafið
dvaldi hún um of á barnum. Myndin
fékk mjög slæma dóma og frægð í
kvikmyndum var úr sögunni. íþrótta-
ferill Glenn Morris var á enda. Daniel
J. Ferris, hinn kunni leiðtogi banda-
riskra frjálsíþróttamanna sagði að
hann hefði notað frægð sína sem
íþróttamaður til að hljóta frægð í
kvikmyndaiðnaðinum. Hann var dæmd-
ur atvinnumaður í íþróttum, já strag-
ar voru reglurnar í þá daga.
Það varð hliótt um Glenn Morris,
en haustið 1938 skildi hann. Haustið
1938 tók hann þátt í keppni í fótbolta
með atvinnumannafélaginu Hollywood
Stars. En síðan kom styrjöldin og Glenn
Morris fór í flotann. Þar með lauk hin-
um stutta, en viðburðarríka ferli þessa
frækna íþróttamanns.
Eins og áður er getið keppti Glenn
Morris aðeins þrívegis í tugþraut og ár-
angur hans var sem hér segir í einstök-
um greinum:
100 III langstökk kiíluvarp hástökk 400 in 110 ni grind kringla stöng spjót 1500 m Árangur
10,6 6,96 13,50 1,79 50,9 15,2 41,14 3,40 55,47 4:52.3 7576 st.
10,7 6,85 14,45 1,86 50,7 14,9 43,10 3,45 56,06 4:48.1 7880 st.
11,1 6,97 14.10 1,85 49,4 14,9 43,02 3,50 54,52 4:33.2 7900 st.
45