Íþróttablaðið - 01.02.1975, Page 33

Íþróttablaðið - 01.02.1975, Page 33
Skiði Þótt landið okkar heiti ísland er það nú svo að það er langt frá því að hér sé alltaf góður skíðasnjór um vetur og jafnvel þótt svo sé þá eru skíðabrekk- umar í okkar fögru fjöllum ekki eins góðar og gerist sumsstaðar þar sem fólk talar framandi tungu. Nefndu t. d. Alp- ana á nafn og sjáðu hvað „skíðahetjan" kunningi þinn verður dreyminn til augn- anna. En það er því miður heldur dýrara að axla skíðin fyrir alpaferð en sunnudags- ferð upp í Bláfjöll og um margra ára skeið vom það ekki nema alríkustu skíðamenn sem gátu leyft sér að hugsa um slíkan munað. Ekki er það nú orðið beint ódýrt ennþá en þó vel viðráðanlegt ef nægur skíðaáhugi er fyrir hendi. Loftleiðir hf. hafa um nokkurra ára skeið selt það sem þeir kalla skíðapakka í Bandaríkjunum og Flugleiðir h.f. hyggj- ast halda þessu áfram, enda gefið góða raun. Til þess svo að gefa íslenzkum skíðamönnum tækifæri til að bregða sér á skíði í Ölpunum og kannske svona ör- lítið í og með til að selja fleiri farmiða tóku Flugleiðir upp á því að bóka Is- lendinga inn í þessar ferðir frá Banda- ríkjunum til Alpafjalla. Beggja þjóða farþegar em fluttir til Luxemborgar og þaðan upp fjöllin. I Luxemburg bíða farþeganna sérstakir langferðabílar og vel upplýstir og þaul- æfðir fararstjórar halda þeim selskap í tíu tíma ævintýraferð um Mosel, yfir Rín, gegnum Stuttgart, Munchen og fleiri fagra staði og upp í Kitzbuhel eða Chamonix en svo heita skíðastaðirnir. Þetta er engin þreytandi bílferð því það er reynt að gera hana að lystireisu útaf fyrir sig og svo er farið í gegnum sögu- fræg og fögur héruð, sem fararstjóram- ir (allir enskumælandi) lýsa og segja frá. Sem fyrr segir er um tvo staði að velja: Kitzbuhel í Austurríki og Chamon- ix Frakklandi. Á siðasta ári seldu Flug- leiðir 2500 slíka skíðapakka í Bandaríkj- unum og þótt við ýmsa risa sé að keppa, svo sem Alitalia, Air France og Luft- hansa, sem á sinn eigin skika í Ölpunum, hefur Flugleiðapakkinn selst best. í BREKKUM ALPANNA 33

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.