Íþróttablaðið - 01.04.1980, Page 9
blaðið fyrst út undir hans stjórn í
janúarmánuði 1943, og síðan
mánaðarlega eftir það. Gekk
rekstur blaðsins allvel, ekki síst
vegna þess að auglýsingastjóri
þess, Kristján Gestsson, sýndi
mikinn dugnað við öflun aug-
lýsinga. Komu út alls 12 tölublöð
á árunum 1943, 1944, 1945 og
1946, en í árslok þess árs lét Þor-
steinn af ritstjórastörfum við
blaðið. Hafði blaðið vaxið mjög
að útbreiðslu meðan hann var
ritstjóri og naut almennra vin-
sælda. Flutti það hið fjölbreytt-
asta efni, viðtöl við íþróttamenn,
greinar um kappmót hérlendis og
erlendis, og fjölþætt fræðsluefni
sem þeir Benedikt Jakobsson,
íþróttaráðunautur Reykjavíkur-
borgar og Þorsteinn Einarsson,
íþróttafulltrúi ríkisins sáu að
mestu um. Á þessum árum var
Þórarinn Magnússon afgreiðslu-
Þorsteinn Jósefsson, ritstjóri
1943—1946.
maður blaðsins, og sýndi hann
mikla árvekni og samviskusemi
við dreifingu blaðsins, og stjórn
innheimtu þess.
Við ritstjórastörfum af Þor-
steini Jósefssyni tók Jóhann
Bernhard, kunnur íþróttamaður
og áhugamaður um íþróttir. Segir
m.a. svo í ávarpi hans í fyrsta
blaðinu sem hann ritstýrir:
„S.l. ár hefur blaðið komið út
annanhvern mánuð, 2 tölublöð í
einu. Hefur þetta haft þær af-
leiðingar að fréttirnar hafa safn-
ast nokkuð saman og sjaldan
verið mjög nýjar af nálinni við
útkomu blaðsins, jafnvel ekki er
það kom út mánaðarlega. Nú
mun verða keppt að því marki að
gera blaðið sem fyrst að mán-
aðarblaði aftur, enda þótt hálfs-
mánaðar- eða vikublað væri að
sjálfsögðu æskilegast. En þetta
tekur sinn tíma og er því aðeins
mögulegt, að íþróttamenn og
íþróttaunnendur geri sitt til að
kaupa blaðið og útbreiða það.“
Jóhann Bernhard var ritstjóri
Öryggishjálmar
opnir og lokaðir
Eigum jafnan mikið úrval öryggishjálma, sem
hlotið hafa viðurkenningu í Evrópu og
Bandaríkjunum sem skíða-, vélsleða-, vélhjóla,
mótorhjóla- og bílarallyhjálmar.
Andlitshlífar úr glæru, reyklitu og
gulu öryggisgleri, einnig mótorhjólagleraugu
og baksýnispeglar r úrvali.
Verðið er ótrúlega lágt.
Sendum gegn póstkröfu.
öryggi á vegum og vegleysum.
amuirL
FALKINN
Suðurlandsbraut 8
9