Íþróttablaðið - 01.04.1980, Side 47
Fyrsta íslenska körfuknattleikslandsliðið, sem lék við Dani árið 1959.
(Frásögn íþróttablaðsins
af fyrsta körfuknattleiks-
landsleik íslendinga)
„íslendingar kepptu við
Dani í körfuknattleik hinn 16.
þ.m. og fór leikurinn fram í
Kaupmannahöfn. Þetta var
fyrsti landsleikur Islendinga í
þessari iþróttagrein, en 40.
landsleikur Dana.
íslenska landsliðið var
skipað þessum leikmönnum:
Ingi Gunnarsson ÍFK,
fyrirliði, Birgir Ö. Birgis, Á,
Guðni Guðnason, ÍS, Þórir
Arinbjarnarson, ÍS, Jón
Eysteinsson, ÍS, Kristinn
Jóhannsson, ÍS, Þorsteinn
Hallgrímsson, ÍR, Lárus
Lárusson, ÍR, Ingi
Þorsteinsson, KFR, Ólafur
Thorlacius, KFR og Friðrik
Bjarnason, ÍFK. Þjálfari
landsliðsins er Ásgeir
Guðmundsson.
Fyrir landsleikinn höfðu
danskir iþróttafréttaritarar
spáð Dönum yfirburðasigri í
keppninni. Sú varð þó ekki
raunin, því að Danir unnu
mjög nauman sigur, 41 stig
gegn 38 stigum. Kristinn
íþróttablaðið
1959
Jóhannsson skoraði oftast
fyrir íslenska liðið eða 10 stig.
í dómum sínum um leikinn
segja Kaupmannahafnar-
blöðin að íslendingar hafi sýnt
góða tækni og betri en Dan-
irnir, sem léku hörkulega og
líkar handknattleik. Blöðun-
um ber saman um að íslend-
ingar hefðu eins vel getað
sigrað, því þeir voru í mikilli
sókn síðari hluta leiksins.
Það má því segja, að ís-
lensku körfuknattleiksmenn-
irnir hafi staðið sig með prýði í
þessari fyrstu stóru þolraun,
og orðið landi sínu til sóma.
Eftir landsleikinn hefur lið-
ið leikið tvo leiki. Þann fyrri
við Svendborg Basketbold-
klub á Fjóni, en honum lauk
með glæsilegum sigri íslend-
inganna, 70:30, Jón og Birgir
skoruðu 17 stig hvor í þeim
leik. Seinni leikurinn var við
Danmerkurmeistarana, Eftir-
slægren í Kaupmannahöfn, og
lauk honum með sigri Dana,
40:32.“
íþróttablaðið
Gerist áskrifendur
Símar 82300 — 82302
47