Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1980, Page 57

Íþróttablaðið - 01.04.1980, Page 57
(Úr grein Karls Kristjánssonar, aiþingis- manns í íþróttablaðinu: „Kostaðu huginn að herða“ „Að sjálfsögðu vildum við Tryggvi reyna með okkur. Hjálpuðum hvor öðrum til að leysa af okkur byrðarnar, — og völdum okkur hjarnfönn til þess að glíma á. Gengið var til glímunnar af báðum eins og mikið væri í húfi, þótt enginn væri áhorf- andinn. Ekki var þarna aðeins um persónulegan metnað að ræða, sem að vísu var ærinn. Þarna áttust við fulltrúar: þorpsbúi og sveitabúi, sá fyrr- nefndi glímuskólaður en óskólagenginn hinn. Engu máli skiptir fyrir efni þessarar greinar, hver úrslitin urðu. Það mundj bara trufla að ég færi að segja frá þeim. Hitt er aðalatriði, að þetta var áreiðanlega þroskandi stund fyrir okkur báða. Þarna átti sér stað leikur, sem tvímæla- laust styrkti heilbrigði skap- gerðar beggja hlutaðeigandi. Við tókumst í hendur að loknum leik, eins og íslenskar glímureglur skylda til. Bund- um baggana hvor á annan þannig að þeir færu sem best. Og kvöddumst svo í bróðerni. Þetta var veturinn 1906—1907. Um það leyti og alllengi eftir það gátu svipuð atvik þessu gerst víðsvegar um land. Glíman var arfur, sem æskumenn vildu ávaxta. Ungmennafélagshreyfingin vann að því eftir að hún kom til sögunnar. Glímufrægð var í hávegum höfð hjá þjóðinni. Jóhannes Jósefsson flutti þá frægð vítt um lönd og álfur.“ (Úr viðtali við Jóhannes Sæmundsson, íþrótta- þjálfara) —„Hvað viltu segja um hæfileika íslenskra íþrótta- manna? — Ég er ekki í vafa um að íslensk æska er hraust og hér er nóg af efnilegum íþrótta- mönnum. Með betra skipulagi og meira fjármagni er mögu- legt að skapa hér blómlegt íþróttalíf. Aðalatriðið er ekki að sigra ávallt í keppni við er- lenda íþróttamenn. Þýðingar- meira er að mæta vel þjálfaður til líkama og sálar, taka sigri með jafnaðargleði og tapa með sæmd. Við skulum vona að framundan sé meiri skiln- ingur og betra og árangursrík- ara starf, þó að margt hafi verið vel gert til þessa.“ íþróttablaðið (Úr viðtali við Þórarin Eyþórsson, handknatt- leiksþjálfara) — Telur þú kæruleysi leik- manna í leik vera að aukast eða telur þú vonir til þess að þetta fari batnandi. Blandar þú saman kæruleysi og mark- græðgi? — Með kerfisbundnari leik en áður, hefur tekist að nema burt það kæruleysi, sem ann- ars er hætt við að skjóti upp kollinum þegar lið leika of frjálst. Ég tel því að kæruleysi leikmanna í leik fari minnk- andi. Oft getur markgræðgi stafað af kæruleysi einstak- lings, sem hefur það sjónar- mið að skora sem mest, upp á það að einstaklingurinn í ein- feldni sinni haldi að sá sé bestur sem skorar flest mörk- in. Nei og aftur nei, enginn er góður liðsmaður síns liðs, sem ekki getur spilað fyrir heild liðsins.“ íþróttablaðið Gerist áskrif- endur Símar 82300 82302 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.