Íþróttablaðið - 01.04.1980, Qupperneq 72
íþróttablaðið
1973
(Úr viðtali við Hjalta
Þórarinsson, lækni)
„— Sem læknir sérð þú
mun á sjúklingum, sem eru í
góðri líkamlegri þjálfun og
hinum, sem ekki er eins ástatt
um?
— í flestum tilfellum eru
sjúklingar í góðri líkamlegri
þjálfun miklu fljótari að ná sér
eftir aðgerð eða sjúkrahúsvist,
en sú regla er alls ekki algild,
því að endurhæfingarkraftur
mannsins er svo misjafn, en
þeir sem líkamlega eru vel á
sig komnir eru að jafnaði
betur settir en hinir.
— Hvernig er annars
líkamlegt ástand íslendinga?
— Þetta er erfið spurning
að svara, en ef dæma má af
þeim þrekmælingum, sem
gerðar hafa verið, þá efast ég
um að þrekið sé sérlega mikið
hjá þorra fólksins og margir
ungir íslendingar hafa t.d.
þrek á við Svía á aldrinum
40—50 ára, samkvæmt niður-
stöðum þrekmælinga.“
Hjalti Þórarinsson.
Björgvin Þorsteinsson — um árabil í hópi bestu íslensku golf-
leikaranna og margsinnis íslandsmeistari.
(Úr viðtali við Björgvin
Þorsteinsson, golfmann)
„Árið eftir var mótið í Graf-
arholti. Fyrir síðustu 18 hol-
urnar var ég 4 höggum á eftir
vini mínum, Lofti Ólafssyni,
sem þá var 18 ára. Þessum 4
höggum náði ég af honum og 4
höggum betur þegar 13 holur
voru búnar. Ég var því farinn
að sjá glytta í annan íslands-
meistaratitil, en sá draumur
varð að engu á næstu holum.
Þá hitti ég ekki brautina hvað
eftir annað. Loftur náði sér
aftur á móti aftur á strik og tók
þessi högg af mér og gott betur
— og titillinn var hans.
I ár var ég aftur í eldlínunni
á íslandsmótinu, en í þetta
sinn var við fleiri menn að
glíma.
Kjærbo hafði örugga forystu
síðasta daginn. Hann var ein-
um 6 höggum á undan mér
þegar 11 holur voru eftir. Þá
gerðist það sama og árið áður,
nema að nú var það að mér
tókst betur til á lokasprett-
inum. Keppnin var þó ekki af-
ráðin fyrr en á síðustu holunni,
en þar náði ég í titilinn í annað
sinn á þremur árum.“
72