Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1980, Page 99

Íþróttablaðið - 01.04.1980, Page 99
Hermann Hermannsson — Framhald af bls. 25 Valur átti annan eins snilling og Jón Kristbjörnsson var. En árið 1933 skeði það sorglega slys í byrjun úrslitaleiks að Jón var borinn út af veilinum og dó tveimur dögum seinna. Eg kom inn sem varamaður Jóns og unnum við leikinn með 6 mörkum gegn 3, en ég hefi aldrei tekið þátt í jafn tauga- æsandi leik sem þessum. Ef til vill hefur þessi leikur ráðið úrslitum um staðsetningu nrína á vellinum. Ég var kom- inn að því að hætta við markið og byrja að leika frammi á vellinum, enda hafði ég leikið nokkrum sinnum áður sem framherji í 2. flokki. En þannig atvikaðist það samt sem áður, að í slimar hefi ég unnið 10. meistaraorðuna í knattspyrnu. Ennfremur hef ég með hinu ágæta knatt- spyrnufélagi Val, verið með í að vinna 8 Reykjavíkurmót, 3 Walterskeppnir, 2 Tuliniusar- mót og Vísisskjöldinn.“ Viðtal við Gunnar- Framhald af bls. 50 meira verður gert í knatt- spyrnulegu uppeldi frá barns- aldri, því að aldrei er gert of mikið af því að kenna fótum og líkama í heild að hlýða viðbrögðum knattarins, þann- ig að hann verði fyllilega undirgefinn að lokum. — Hvað viltu segja um stjórn knattspyrnumálanna? — Það er hægt að finna að mörgu. Hvernig stendur t.d. á því að við fjölgum landsliðs- nefndarmönnum upp í fimrn, þegar aðrar þjóðir gera einn mann ábyrgan og allsráðandi? Hví eru heimsóknir, utanferð- ir, aukaleikir og viðamikilli landsleikjaskrá gert hærra undir höfði, en höfuðmóti okkar, I. deildar keppninni, sem hreinlega er gerð horn- reka á stuttu sumri. Jafnvel þó játa beri, að ellefu bestu leik- menn okkar þurfi að reyna á sig, þá held ég að hér heima beri fyrst að auka starfið, áður en við færum út kvíarnar óþarflega mikið.“ Umsögn um — Framhald af bls. 41 1949 í Árósum 5:1, 1953 í Kaupmannahöfn 4:0, sem sagt allir endað með sigri Danmerkur. Þeirsem kepptu í íslenska landsliðinu voru: Helgi Daníelsson, Val, Krist- inn Gunnlaugsson, ÍA, Hall- dór Halldórsson, Val, Sveinn Teitsson, ÍA, Einar Halldórs- son, Val, Guðjón Finnboga- son, ÍA, Halldór Sigurbjörns- son, ÍA, Ríkharður Jónsson, ÍA, Þórður Þórðarson, ÍA, Al- bert Guðmundsson, Val, Ólafur Hannesson, KR. Næsti leikur Dana var við Akranesliðið styrkt með Einari Halldórssyni, Hreiðari Ársælssyni, KR og Ólafi Eiríkssyni, Víkingi. Þennan leik vann Akranes með 2:1 eftir skemmtilegan og vel leikinn leik og var þetta besti leikur þessarar heimsóknar. Þó þarna væru 7 menn úr landsliðinu var ekki hægt að sjá að það væru sömu menn- irnir. Nú var barist og leikið frá manni til manns.“ Úr frásögn um — Framhald af bls. 43 hlaupinu að hann bætti við og á sínum gamla góða enda- spretti, sem margan harðan keppinaut hefur bugað, seig hann fram úr, dálítið vagg- andi og þreyttur, en þó alveg öruggur sigurvegari. Þá var gaman að vera Is- lendingur, þessir 2 metrar sem Þórir varð á undan nægðu til að keppninni lyktaði með 6 stiga sigri okkar. Menn föðm- uðust og óskuðu hverjir öðr- um til hamingju, sumir vot- eygir, en landar úr hópi áhorfenda bættust í hópinn og fögnuðu sigrinum, þ. á m. Sigurður Nordal, ambassa- dor.“ Blaðið unnið - Framhald af bls. 17 braut blaðið um fyrir prentun- ina. Það hefur víst verið nóg að gera. Við spurðum hann að lokum að því hvort Trimm- herferðin hefði ekki verið komin á einhvern rekspöl. „Jú, mikil ósköp, einmitt á þessum tíma var verið að undirbúa þá herferð og mikill hugur í mönnum. Ég vil að lokum koma á framfæri þökk- um til stjórnar ÍSÍ fyrir ánægjulegt samstarf.“ Krónurnar voru - Framhald af bls. 12 Norðurlandameistari í tug- þraut í Finnlandi.“ Og fjárhagurinn hefur verið þröngur? „Ójá, það held ég að hafi verið en hann kom okkur rit- stjórunum ekkert við sem slík- ur. En krónurnar voru fáar, afarfáar.“ —TT. Jónas Halldórsson- Framhald af bls. 24 fylgdist með því af mikilli at- hygli, hvernig hann lét nem- endur sína æfa sig. Er ég þótt- ist svo öruggur, að hann sæi ekki til mín, brá ég fyrir mig skriðsundinu. En eitt sinn fór svo þessi leyniæfing mín út um þúfur. Ég hafði ekki farið nógu gætilega. Jón hafði komið auga á mig og tók mig tali og bað mig að synda fyrir sig skriðsund. 99
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.