Íþróttablaðið - 01.04.1981, Side 68
Á útivelli
Borg og Pele
í New York
Bjöm Borg kemur víða við á
ferðum sínum og hittir frægt
fólk. Á dögunum kom hann við
í New York og meðal þeirra
sem hittu þennan fræga
tennisleikara og spjölluðu við
hann var enginn annar en hinn
heimsfrægi Pele. Virtist fara
vel á með þessum tveimur
íþróttakóngum. Konan til
vinstri á myndinn er eiginkona
Bjöms Borg, Marianna Borg,
en hin konan er hin þekkta
Brodway-leikkona Patti La
Bone.
Margur
hefur
hlotið
harðan
skell
í vetur hefur borið óvenju-
lega mikið á þvi að skíða-
kappar sem taka þátt í brun-
mótum fái slæmar byltur.
Sérfræðingar segja margar
ástæður fyrir þessu, m.a. að
brautirnar séu alltaf að verða
erfiðari og erfiðari, að hin ný-
tískulegu skíði renni betur og
þar af leiðandi sé meiri ferð á
köppunum og síðast en ekki
síst er það tilnefnt sem ástæða
að skíðamennirnir taki alltaf
meiri og meiri áhættu í von
um að ná betri árangri. Með-
fylgjandi mynd er af Banda-
ríkjamanninum John Ene-
guess, sem er um það bil að
lenda ómjúklega eftir mikil
loftköst á gífurlegum hraða.
Er rétt að láta það fylgja með
að hann slapp við meiri háttar
meiðsli.
Blóð-
Suðurlandabúar þykja blóð-
heitir og fljótir að skipta skapi,
ef eitthvað hendir sem þeim
líkar ekki. Blóðhitinn kemur
ekki hvað síst fram í íþróttum,
þar sem menn eru ekki alltaf
vandir að meðlununum, og láta
reiði sína oft bitna á dómur-
unum. Möltubúar eru engin
undantekning i þessum efnum
og það fékk júgóslavneski
knattspymudómarinn Maksi-
movic heldur betur að reyna er
hann dæmdi leik í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar
milli Möltu og Póllands í
Valetta.
Leikurinn gekk sæmilega
fyrir sig allt þar til stundar
fjórðungur var til leiksloka,
en þá skoraði Lipka annað
mark Póllands í leiknum.
Hann var greinilega rangstæð-
ur, og flaggaði línuvörðurinn
ákaft. Maksimovic lét sem
hann sæi ekki til línuvarðarins
og dæmdi markið gilt. Leik-
menn Möltu voru að vonum
afskaplega óhressir og mót-
mæltu þessum dómi. Þegar
dómarinn lét ekki segjast fóru
áhorfendur að ókyrrast og
kasta grjóti og flöskum inn á
68