Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 24

Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 24
Knattspy rnustyrj öld í Suður-Ameríku Knattspyrnan hefur jafnvel orsakað styrjöld milli þjóða. Það gerðist fyrir heimsmeistara- keppnina í Mexikó. Tvö Suður— Amerikuríki, Honduras og E1 Salvador kepptu um að komast í lokakeppnina. E1 Salvador hafði betur 3-2 eftir framlengdan leik. Eftir nokkra daga braust út styrj- öld milli landanna sem stóð í fimm daga og var talið að um 300 manns hefðu fallið á degi hverj- um. Er ekki ótrúlegt talið að knattspyrnan hafi þarna kostað tæplega 2000 manns lífið, auk þess sem ótaldir liðu miklar þján- ingar og skort vegna þessa. Bæði þessi lönd voru bláfátæk og máttu ekki við þeim miklu út- gjöldum sem þessi styrjöld kost- aði. Sir Winston Churchill, fyrr- verandi forsætisráðherra Breta hafði ekki minnsta áhuga á knattspyrnu eða íþróttum yfir- leitt. Hann lét þó einu sinni svo ummælt, að betra væri að þjóð- irnar útkláðu mál sín á íþrótta- völlunum en á vígvöllunum. I sama streng tók vestur-þýski sál- fræðiprófessorinn Fritz Stemme í bók sem hann skrifaði. Hann taldi að þjóðir hefðu metnað til þess að sýna yfirburði sína yfir öðrum þjóðum, og að íþróttirnar væru vettvangur fyrir þann metnað. Af öllum íþróttum taldi hann knattspyrnu besta til þess að fá útrás fyrir þjóðarmentað- inn, fyrst og fremst vegna þess að þetta væri drengileg íþrótt. Ekki knattspyma, heldur stríð Þótt Evrópubúar séu oft skammaðir fyrir óþarfa hörku í knattspyrnuleikjum sínum, og kvartað sé yfir óspektum og lát- um áhorfenda, þá eru þeir hrein börn miðað við Suður-Ameríku- búa. Því kynntust menn best í hinni svokölluðu heimsbikar- keppni, þar sem félagslið úr Evr- ópu og Suður-Ameríku reyndu með sér. „Þetta er ekki knatt- spyrna — þetta er stríð,“ sagði t.d. Johan Cruyff eftir að lið hans Ajax frá Amsterdam hafði sigrað argentínska liðið Independiente í úrslitaleik ársins 1972. Þetta var raunar í fyrsta og eina skiptið sem Ajax tók þátt í þessari keppni, þótt liðið ynni sér alloft rétt til þátttöku í henni. I Suður-Ameríku er ár hvert haldin meistarakeppni Suður- Ameríkuliða „Copa Libertadores de America“ kallast keppnin. Og í henni má sjá fleira ljótt á knatt- spyrnuvellinum en í nokkurri annarri keppni. Þar ræður hark- an og hnefarétturinn mestu, og það viðist meira mál að vera vel að sér í slagsmálum en í knatt- spyrnu í keppninni. Alla vega hafa brasilísk lið aðeins sigrað í MR 50 hjólið frá Yamaha er án efa eitt glæsi- legasta og sterkbyggðasta 50 cc motocross hjól- ið á markaðnum í dag. Yamaha MR 50 er með tvígengisvél með sjálfvirkri olíuinnspýtingu, þannig að ekki þarf að blanda olíu saman við benzínið. Gírkassinn er 5 gíra og heildarþyngd aðeins 70 kg. Komið, hringið eða skrifið og biðjið um nánari upplýsingar. BÍLABORG HF Smiðshöfða 23, sími 812 99. 24

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.