Íþróttablaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 50
,,Ég hef ’ann" gæti Sigurður Haraldsson markvörður Vals verið að segja. Sigurður verður í eldlínunni með
félögum sínum í sumar, og þeir eiga titil að verja. Baráttan við að halda honum verður ekki auðveld fyrir
Valsmenn.
„VIÐ VERÐUM UM MIÐJA DEILD”
„Við erum ekkert of
bjartsýnir en heldur ekki
svartsýnir Eyjamenn,“
sagði markakóngurinn
Sigurlás Þorleifsson ÍBV
er hann var spurður álits
á nýbyrjuðu íslandsmóti.
„Þetta verður erfitt mót,
ekki einungis fyrir okkur
heldur líka fyrir hin liðin.
Liðin verða mjög jöfn í sumar
og eins og staðan er í dag er
erfitt að gera upp á milli
þeirra.
Við höfum misst fjóra góða
leikmenn frá í fyrra. Tómas
Pálsson fór í FH, Óskar Val-
týsson hætti, Sveinn Sveinsson
fór til Svíþjóðar og Sighvatur
Bjarnason gekk í Fram. Þetta
er töluverð blóðtaka fyrir
okkur. Samt bætir það úr skák
Sigurlás Þorleifsson ÍBV
að við höfum endurheimt
Valþór Sigþórsson sem lék
með FH í fyrra. Þá hafa tveir
aðrir leikmenn gengið í ÍBV
en það eru þeir Ingólfur Ing-
ólfsson sem lék með Breiða-
blik í fyrra og Vopnfirðingur-
inn Ingólfur Sveinsson,“ sagði
Sigurlás.
Hvaða lið heldur þú að muni
berjast um titilinn?
„Ég er viss um að Víking-
arnir verða ofarlega og eins
eru Framararnir sterkir núna.
Þá eru Skagamenn alltaf
harðir en ég veit ekki með Val.
Þeir eru með gerbreytt lið og
ég er ekki viss um að þeim
muni ganga jafn vel í sumar
og oft áður.
Á hinum endanum, fallbar-
áttunni, verða örugglega Ak-
ureyrarfélögin tvö. FH-liðið
er algert spumingarmerki. Það
er ómögulegt að segja hvað
þeir gera.
Nú varðandi okkur Eyja-
menn þá verðum við líklega
um miðja deild eða jafnvel
ofar, það er ekki gott að segja.
Það setur stórt strik í reikn-
inginn hjá okkur að margir af
leikmönnunum eru mjög
uppteknir við vinnu og margir
vinna allt að 20 klst. í hverjum
sólarhring þannig að augljóst
er að ekki er mikill tími eftir
fyrir knattspymuna. En við
gerum okkar besta,“ sagði
Sigurlás. Kjartan Másson
þjálfar ÍBV í sumar.
Spá Sigurlásar er þannig:
1. Víkingur 2.—3. Fram, lA
4.—6. ÍBV, Valur, Breiðablik,
7.-9. KA, KR, FH, 10. Þór.
—Sk.
50