Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 26

Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 26
staðan var lengi vel 2-0 fyrir þá. En Cristal náði að jafna 2-2 og var þá 21 mínúta til leiksloka. Boca setti þá allt sitt í sóknina og leikurinn fór að mestu fram inn- an vítateigs Christal. Og þegar sex mínútur voru til leiksloka braut einn leikmaður Christal svo augljóslega af sér að víta- spyrna virtist sjálfsögð. Dómari leiksins, Alejandro Otero frá Uruguay var hins vegar á öðru máli og dæmdi ekkert. Og þá sauð líka verulega uppúr. Fyrirliði Boca Juniors, Sune að nafni lýsti því sem skeði: „Við vorum fjúkandi illir yfir því að vinna ekki leikinn. Ég missti stjórn á mér og óð að þeim leikmanni andstæðinganna sem var næstur mér, miðherjananum Gallardo. Hann var sýnilega dauðhræddur og bað mig að slá sig ekki. Ég er viss um að hefði ég lamið þá hefði ég drepið mann- inn. En í hálfgerðu fáti sparkaði hann í áttina til mín svo hátt, að ég fékk löppina á honum í and- litið. Síðan hljóp hann frá. Ég ætlaði á eftir honum, en þegar ég snéri mér við stóð þar einhver maður sem ég sló umsvifalaust niður. Síðan fékk ég að vita að maður þessi hefði verið lögreglu- maður. Blóðið sem lak úr andliti Sune virtist æsa aðra leikmenn upp og brátt logaði allt í slagsmálum á vellinum. Dómarinn kepptist við að reka leikmenn útaf, og var búinn að sýna 18 leikmönnum rauða spjaldið, þegar þeir snéru sér að honum. Hann fékk lög- reglufylgd út af vellinum, en meðan lögreglan var að hjálpa honum snéru leikmenn Boca sér að línuverðinum. Hann reif upp hornfánann til þess að verja sig og tókst að halda æstum knatt- spyrnumönnunum í fjarlægð þangað til hjálp barst. Móðir línuvarðarins sem fylgdist með leiknum í beinni útsendingu varð hins vegar svo mikið um það er hún sá leikmennina ráðast á son hennar að hún fékk hjartaslag og lést. Þegar lögreglan hafði komið á kyrrð og ró voru allir leikmenn beggja liðanna settir í fangelsi að undanteknum Sune og einum öðrum sem fluttir voru á sjúkra- hús. Sune fékk síðar hálfs árs fangelsisdóm og tveir leikmenn Boca 16 og 14 mánaða fangelsi, en þeir voru þó allir fljótlega náðaðir. Stúdentar í ruddaskap Alex Stepney sem lengi var markvörður enska liðsins Manchester United fjallaði í bók er hann ritaði um þá lífreynslu sína að taka þátt í heimsbikar- keppni félagsliða 1968. „Við kepptum við Estudiantes, en það nafn þýðir stúdentamir. Það sýndi sig strax í leiknum í hverju þeir voru stúdentar — mdda- Verzlunin HEIMAVER Vestmannaeyjum Kjöt og nýlenduvörur Veriö velkomin Kvöldsala frá 6—9 Gleðilegt sumar! Verzlunin HEIMAVER Hólagötu 40 Sími 1707 26

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.