Íþróttablaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 36
Hlaut sinn fyrsta golf-
meistaratitil árið 1974
— Fyrstu kynni mín af
golfinu voru þegar ég fór út
á golfvöllinn í Hafnarfirði
með félögum mínum. Ég var
þá 12 eða 13 ára. Ferðin í
strætisvagninum gekk ágæt-
lega, og ég man enn þann
dag í dag eftir fyrsta högg-
inu mínu á golfvellinum. Ég
notaði járnkylfu númer sex,
og var bara nokkuð ánægð-
ur með höggið — fannst það
lofa góðu. Og áhuginn
vaknaði — ég fékk delluna.
Það er íslandsmeistarinn
í golfi, Hannes Eyvindsson,
sem segir þannig frá sínum
fyrstu skrefum á golfvöllun-
um, en þau eru nú orðin
nokkuð mörg. Það var lengi
búið að vera í undirbúningi
að fá Hannes til viðtals í
íþróttablaðinu, og loks varð
af framkvæmdum. Við
mæltum okkur mót á veit-
ingahúsi einu í borginni,
pöntuðum okkur kaffi, sem
reyndist svo ódrekkandi,
þannig að það tafði okkur
ekki frá því að spjalla um
feril Hannesar, sem er orð-
inn hin glæsilegasti, og gott
dæmi þess hvemig æfing
skapar meistarann.
Unglingameistari 1974
Ekki var biðin löng hjá Hann-
esi eftir fyrsta meistaratitlinum.
Árið 1974 tók hann þátt í sínu
fyrsta stórmóti og árangurinn lét
ekki á sér standa. Unglinga-
meistaramótið 1974 verðurHann-
esi lengi minnisstætt.
„Ég var frekar taugaóstyrkur
þegar ég mætti út á völl og átti að
fara að taka þátt í mínu fyrsta
stórmóti í golfi. Unglingameist-
aramótið í þá daga var með
nokkuð öðru sniði en gerist í dag.
Allir bestu unglingarnir voru þá í
Meistaraflokki og tóku því ekki
þátt í Unglingameistaramótinu.
Þess vegna var þessi árangur
minn í þá daga ekki eins mikill og
hann er í dag. En þrátt fyrir að
bestu unglingarnir lékju með
Meistaraflokki skyggði það ekki
á ánægjuna yfir titlinum. Hann
hafði sín áhrif og meðal annars
þau að frá golfinu varð ekki snú-
ið.“
Engin alvara á ferðum
fyrr en 1976
Hannes heldur áfram en er
greinilega leiður yfir því að kaffið
skuli ekki vera betra en raun ber
vitni. Það hvarflar þó ekki að mér
að reyna að gera bót þar á enda
veit ég að næsta víst er að kaffið
verður ekki bætt úr þessu. Svo
virðist mér sem Hannes sé að
komast í stuð og þá er um að gera
að leyfa honum að halda áfram:
„Ég byrjaði ekki að æfa golf fyrir
alvöru fyrr en árið 1976. Og þá
var líka æft svo um munaði. Ég
var á golfvellinum alla daga og
yfirleitt margar klukkustundir á
dag. Ég gerði mér grein fyrir því
að ég æfði eins og vitlaus maður.
Ég hugsaði með mér að fyrst ég
Til þess að ná árar
fremst eitt: Að æf<
36