Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 28

Íþróttablaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 28
----------------\ Hver selur hvað? Þegar þú þarft að afla þér upplýsinga um hver hafi umboð fyrir ákveðna vöru eða selji hana þá er svarið að finna í (SLENSK FYRIRTÆKI sem birtir skrá yfir umboðsmenn vöruflokka og þjónustu sem íslensk fyrirtæki bjóða upp á. Sláið upp í ÍSLENSK FYRIRTÆKI og finnið svarið. ISLENSK FYRIRTÆKI Ármúia 18. Símar 82300 og 82302 v__________________y við aðeins að halda því áfram er við vorum byrjaðir á þegar við mættum Celtic. Einhvem tímann í leiknum tók félagi minn, Basil hinn litla rauðhærða skota, Jimmy Johnstone í bakaríið. Það var ljótasta brot sem ég hef sé á ævi minni Basil fékk strax rauða spjaldið og þá blandaði ég mér í leikinn. Með hendur fyrir aftan bak gekk ég í rólegheitum að Johnstone þar sem hann lá og stundi á vellinum og sparkaði í hann eins fast og ég gat. Af hverju? — Jú, hann átti sök á því að Basil var vikið af leikvelli. 30—40 aukaspymur í leik Það er mjög algengt í knatt- spyrnunni í Suður-Ameríku að dæmdar séu 30—40 aukaspymur á lið í leik, og það eru fáir leik- menn í liðum þar sem ekki eru reknir útaf a.m.k. einu sinni á hverju keppnistímabili. Já, og ef ekki vill betur til er dómarinn tekinn í karphúsið. Þannig fékk t.d. einn leikmanna Boca Juniors hálfs árs keppnisbann árið 1978 fyrir að reyna að kyrkja dómara meðan á leik stóð. Hafa ekkert skánað Knattspyrnuyfirvöld í Suður- Ameríku hafa haldið marga fundi um hörkuna í knattspym- unni í löndum þeirra og leiðir til úrbóta. Það má þó geta til gam- ans að þeir fundir hafa ekki gengið þegjandi og hljóðalaust fyrir sig og þess dæmi að leiðtog- amir hafi látið hendur og fætur skipta. Nú er fullyrt að mikilvæg skref til að útrýma ruddaskapn- um hafi verið tekin, m.a. með því að dæma leikmenn í keppnis- bann eða jafnvel í fangelsi fyrir gróf brot á leikvöllunum. En slíkar hegningar gleymast í hita leiksins, og áhorfendur láta heldur ekki segjast. A.m.k. var keppnin ekki tíðindalaus árið 1979. Aldrei urðu eins mikil læti og í leik milli Olimpia Asuncio frá Paraguay og Wilsterman frá Bolivíu og munaði litlu að þar yrði maður drepinn. Fyrri hálf- leikur gekk reyndar svo til hljóðalaust fyrir sig Paraguay- búamir skoruðu eitt mark og einu sinni sýndi dómarinn gula spjaldið. En í seinni hálfleiknum var auðséð að Bolivíuleikmenn- irnir mættu til leiks undir kjör- orðinu „að sigra eða deyja“. Lætin byrjuðu snemma í hálf- leiknum með áflogum tveggja leikmanna sem báðir voru reknir útaf. Tæplega var leikurinn haf- inn að nýju þegar einn leikmaður Wilsterman sparkaði andstæðing sinn niður og fékk rauða spjaldið. Ekki varð þetta til þess að róa liðið. Enn einum Bolivíumanni var vikið af leikvelli fyrir gróft brot, og þá réðist einn leikmaður liðsins á dómarann, sem sleppti honum með áminningu. Og nú létu áhorfendur til sín taka. Þeir hentu grjóti, öldósum og flöskum inn á völlinn og þá ákvað dómarinn að stöðva leik- inn. Eftir 12 mínútna þjark lét hann til leiðast að halda leiknum áfram með því skilyrði að 120 lögreglumenn sem voru við- staddir röðuðu sér kringum völl- inn. Olimpia jók forystu sína fljótlega 2-0 og varð það ekki til að minnka spennuna á áhorf- endapöllunum. Þegar svo dóm- arinn rak enn einn Bolivíumann útaf fyrir stóhættulegt brot, sauð upp úr. Mannfjöldinn reif niður girð- ingu milli áhorfendasvæðisins og vallarins og ruddist í gegnum lögreglumannaþyrpinguna og ætlaði að jafna um dómarann. Hann slapp inn í búningsher- bergi sitt og þóttist hafa sloppið vel. En skríllinn lét ekki staðar numið. Hann réðist á hurð bún- ingsherbergsins sem var hin ramgerðasta, og hætti ekki fyrr en heppnast hafði að brjóta hana upp. Dómarinn var dreginn út á völlinn, og nokkrir áhorfendanna leituðu um allt að reypi til þess að Framhald á bls. 68. 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.