Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 29

Íþróttablaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 29
Gunnar Bender skrifar um útilíf: NÓG AÐ SKOÐA í NÁGRENNI BORGARINNAR Þegar sólin skein hvað skærast um páskana mátti sjá fjölmarga íslendinga á öllum aldri á ferð- inni úti í veðurblíðunni. Ekkert páskahret var sjáanlegt, og því um að gera að njóta verðurblíð- unnar og hreyfa sig. Það er greinilegt að hverskonar útilíf á vaxandi vinsældum að fagna, hvort sem um er að ræða hesta- mennsku, veiðiskap, gönguferðir, fjallgöngur, trimm eða hvað það nú allt heitir. Ungir sem aldnir stunda hreyfingu og útiveru og er gott til þess að vita, þar sem slíkt er hverjum manni hollt og frítími fólks sem nú er meiri en áður er vel varið til útivistar og hreyfing- ar. Þeir sem á annað borð fara að stunda útilíf kynnast því líka fljótt að fátt er skemmtilegra — margt nýstárlegt ber alltaf fyrir augu og margt er til að skoða. Oft heyrist að næsta nágrenni Reykjavíkur sé ekkert augnayndi og víst er að sums staðar eru ein- ungis blásin holt og berir melar. En víki menn út af alfaraleið í nágrenni höfuðborgarinnar breytir landið fljótt um svip. Það er unnt að velja margar leiðir t.d. leiðina frá Gufunesi að Korp- úlfsstöðum, fjöruna út frá Salt- vík, þar sem oft má sjá seli spóka sig upp undir fjöruborðinu. Og Esjan setur sinn svip á þetta um- hverfi, er sannkallað stolt höfuð- borgarbúa. Fleira er vert að nefna, eins og t.d. Vífilfellið, sem auðvelt er að komast að frá Sandskeiðinu að ógleymdum Reykjanesfólkvanginum sem nær frá Heiðmerkurgirðingu í Vífilsstaðahlíð suður á Krísuvík- urbjarg og frá Höskuldarvöllum, norðaustan Keilis austur í Grindaskörð, en þar tekur hinn rómaði Bláfjallafólkvangur við. Já, það er margt að skoða og sjá í nágrenni borgarinnar, og það þarf ekki endilega að vera sólskin og logn til þess að njóta náttúr- unnar — veðrið er oft betra en það sýnist út um bílgluggann, — það þarf bara að búa sig vel og drífa sig svo af stað. En það eru sumir sem vilja fara lengra en aðeins upp fyrir borg- ina. Oft hefur maður heyrt minnst á fossinn Glym í Botnsdal og hve fagur hann sé. Nú kunna einhverjir að spyrja. Glymur, hvar er sá foss? Þessu er til að svara að Glymur er hæsti foss landsins og flestir sem hann hafa augum litið hafa hrifist af hrika- leika fossins þar sem hann steyp- ist nær 200 metra niður af fjalls- brúninni. í gilhömrunum við fossinn má sjá múkka í þúsunda- tali sem þarna eiga sér griðarstað, og ekki er óalgengt að sjá hrafna og aðra fugla flögra þarna um. Fyrir ofan Glym taka við Skjálf- andahæðir og norðan Hvalfells og Botnssúlna er Hvalvatn, sem er næst dýpsta vatn landsins, 160 metra djúpt. Sunnan við vatnið vottar fyrir mannvistarummerkj- um. Eru þær þar í litlum hellis- skúta. Þarna hafðist Arnes Páls- son við á sínum tíma, en hann var Lognsléttur Hvalfjörður býr yfir mikilli fegurð. 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.