Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1981, Qupperneq 39

Íþróttablaðið - 01.05.1981, Qupperneq 39
íslenskir kylfingar þurfa að fá fleiri tækifæri eyðir Hannes miklum tíma á golfvellinum. Hvað gerir hann þá þegar hann er ekki í golfi? „Ég reyni að sinna fjölskyld- unni eftir bestu getu. Ég hef einnig verið að gera upp gamla íbúð í nokkuð langan tíma og það hefur tekið á taugarnar því ég er ekki besti smiður í Evrópu. En ég vona að þetta bjargist einhvern veginn. Konan hefur allavega ekki neitað að búa í ibúðinni ennþá. En fyrst við erum farnir að tala um konuna mína þá langar mig til að létta aðeins á þungri samvisku gagnvart henni. Það gefur auga leið að þegar maður æfir eins stíft eins og ég hef gert hlýtur það að bitna á ýmsan hátt á henni. En hún hefur reynst mér frábærlega vel og ég á henni mikið að þakka þann ár- angur sem ég hef náð í golfinu. Mér finnst það með ólikindum hvað hún hefur sýnt mér mikla þolinmæði í gegnum árin. Þetta golfvesen á mér síðustu ár hefur vissulega bitnað á henni.“ „Ég er ekki besti golfleikari á íslandi“ Við höldum áfram að ræða saman um Hannes Eyvindsson. Ég spyr hann hvort hann sé hissa á frama sínum á golfvellinum, þ.e. hversu fljótur hann hefur verið. „Já, ég verð að segja það. Ég átti ekki von á því þegar að ég var að byrja í þessu. Ég hélt að þetta myndi allt saman taka mjög langan tíma og jafnvel mjög mörg ár.“ Ert þú besti golfleikari á ísiandi í dag? „Ég hef ágætis hugarfar í golf- ið og er yfirleitt passlega bjart- sýnn en ég er ekki besti golfleik- ari á íslandi i dag. Þeir eru mjög góðir Björgvin Þorsteinsson, Ragnar Ólafsson, Sigurður Pét- ursson og þeir Sigurður Haf- steinsson, Geir Svansson og Ein- ar L. Þórisson koma ekki langt þar á eftir. Ég veit hins vegar ekki fyrir víst hvar í röðinni ég er.“ Nú sigraðir þú á íslandsmótinu í sumar, og þá lagðir þú alla þessa kappa að velli með glæsibrag. „Jú það, er rétt. Ég vissi samt engu að síður fyrir mótið hverjir myndu koma til með að berjast um titilinn. Það kom mér nokkuð á óvart að ég skyldi ná að sigra þá sem næstir komu en þrátt fyrir að það háfi tekist er ég ekki besti golfleikari á íslandi í dag. Ég get ekki sagt það með vissu hver er bestur.“ Hvar stendur þú í golfinu á al- þjóðlegan mælikvarða að þínu mati? „Ef ég dæmi af þeim mótum Golf er kannski ekki allra besta stofuíþróttin, en ungi maöurinn er samt farinn að bera sig til að slá boltann og nýtur leiðsagnar föðurs síns. 39
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.