Íþróttablaðið - 01.05.1981, Qupperneq 47
„VÍKINGARNIR VERÐA STERKIR”
— segir mióvöróurinn sterki í Val Dýri Guðmundsson
„Ég hef trú á að þetta
íslandsmót verði bæði
fjörugt og skemmtilegt.
Að mínu mati eru flest
liðin jöfn og jafnari en
áður. Sjáðu til dæmis
KR-ingana. Þeir eru
loksins farnir að spila,“
sagði Dýri Guðmundsson
Val, er við röbbuðum við
hann eftir leik Vals og
KR í Reykjavíkurmótinu
en KR vann þann leik 1:0.
„Við Valsmenn erum stað-
ráðnir í að standa okkur vel.
Við höfum að vísu misst
marga leikmenn en fengið
aðra í staðinn. Ég held að við
verðum í toppbaráttunni í
sumar og við stefnum að sigri
auðvitað. Það er þó öruggt að
það verður enginn hægðar-
leikur að vinna þetta
mót. Hverjir heldur þú að
verði erfiðastir andstæðing-
anna?
Matti markakóngur verður á
fullri ferð í sumar, og atkvæða-
mikill ef að líkum lætur. Magn-
ús Bergs, sem þarna fagnar
með honum er hins vegar
kominn til Þýskalands.
„Það er ekki gott að segja.
Víkingarnir verða mjög sterkir
í sumar og verða örugglega í
toppbaráttunni. Þá reikna ég
með að Breiðablik muni
standa sig betur en undanfar-
ið. Þeir eru með sterkt lið í dag
sem á eftir að gera stóra hluti í
sumar. Nú Framararnir eru
alltaf erfiðir andstæðingar.
Þeir hafa nú fengið nokkra
nýja leikmenn sem munu
styrkja liðið en ég býst ekki við
að það nægi þeim til sigurs í
mótinu.
Ég held að þetta verði
ákaflega erfitt sumar fyrir KA
og Þór frá Akureyri og ég spái
því að það verði þau tvö lið
sem falla í 2. deild.“
Nú eruð þið með tékknesk-
an þjálfara í fyrsta skipti. Er
almenn ánægja með hann?
„Já svona nokkurn veginn.
Það er ákaflega mikill „Júra-
klassi" yfir honum. Hann
stefnir að réttum markmiðum
en ég er ekki viss um að allt
það sem hann er að gera sé
miög skynsamlegt þegar til
skamms tíma er litið. Það er
mjög lítið um þrekæfingar
mun minna en við eigum að
venjast, en hins vegar mikið
um boltaæfingar," sagði Dýri
Guðmundsson.
Spá Dýra er þessi:
1.-3. Fram, Víkingur, Valur
4.-6. KR, Breiðablik, FH
7.-10. KA, ÍBV, Þór, ÍA.
— SK.
ALGERLEGA ÓSKRIFAÐ BLAD”
staðráðinn í að leika með FH í
1. deildinni í sumar, en Hafn-
firðingamir verða lærisveinar
hans í sumar sem kunnugt er.
„FH-liðið verður algerlega
óskrifað blað í sumar og ég get
engu spáð um gengi liðsins í
mótinu. Fangmest uppstokkun
hefur orðið hjá FH-Iiðinu og
aðeins eru þrír eða f jórir leik-
menn sem léku með liðinu í
fyrra,“ sagði Ingi Björn að-
spurður um getu FH í sumar.
„Ég held að þetta verði mjög
jafnt mót og að það verði ekk-
ert lið sem skari fram úr öðr-
um. Það ættu allir að geta
unnið alla og það er nánast
ógemingur að spá um úrslit
svona löngu fyrirfram. Ef við
FH-ingar sleppum bærilega við
meiðsli og þessháttar ættum
við að geta teflt fram vel bæri-
legu liði. Við munum ekki ein-
beita okkur að því að vinna
mótið eða halda okkur uppi.
Þess í stað munum við einbeita
okkur að hverjum leik fyrir sig
og reyna að sleppa sem best frá
hverjum einstökum Ieik,“
sagði Ingi Björn Albertsson.
Hann bætti við að hann vonaði
að FH tækist að sigra í mótinu
en ef sá draumur rættisí ekki
þá væri það eindregin ósk sín
að Valur ynni mótið og kemur
sú yfirlýsing víst fáum á óvart.
Annars er spá Inga Bjöms
þessi en hann vildi ekki hafa
FH með í henni:
1. Valur 2. Fram 3. ÍA 4.
Breiðabiik 5. ÍBV 6. KR 7. KA
8. Víkingur 9. Þór.
— SK.
47