Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1981, Síða 49

Íþróttablaðið - 01.05.1981, Síða 49
„Það munu « allir plokka stig af öllum” Og ég tel að mótið verði mjög spennandi segir Diðrik Ólafsson Flestir knattspyrnu- unnendur kannast örugg- lega við Diðrik Ólafsson markvörðinn snjalla í liði Víkings. Hann er nú að hefja sitt 13. keppnis- tímabil með meistara- flokki Víkings og hefur í gegnum árin verið einn af þeirra bestu og traustustu leikmönnum. Diðrik hafði þetta að segja um nýhafið íslandsmót. „Þetta mót leggst vel í mig sem aðra Víkinga og ég á von á að okkur takist að verða í einu af fjórum efstu sætunum þegar upp verður staðið í haust. Ég vona bara að þetta sé hófleg bjartsýni. Við erum búnir að æfa vel undir stjórn Júri Sedov en hann þjálfaði okkur einnig í fyrrasumar. Við höfum haldið okkar mann- skap nema hvað Hinrik Þór- hallsson fluttist norður og það er að sjálfsögðu blóðtaka fyrir okkur. Við höfum fengið einn nýjan leikmann í staðinn, en sá er Hafþór Helgason bróðir Helga Helgasonar. Ég tel að þetta mót verði mjög spennandi og öll liðin geti plokkað stig hvert af öðru. Það eiga allir eftir að vinna alla. Víkingar verða sterkir i sumar segja margir, og sjálfsagt eru þeir Róbert Agnarsson og Magnús Þorvaldsson, sem þarna eru í hálfgerðum stígu- dansi líka á þeirri skoðun. Ég á von á að Fram, Valur, ÍA og Breiðablik verði með okkur í baráttunni um ís- landsmeistaratitilinn að þessu sinni. Varðandi knattspyrnuna sem slíka í sumar vil ég segja það, að ég held að hún eigi eftir að verða betri í sumar en áður. Mér hefur fundist liðin leika betri knattspyrnu það sem af er en áður og þá á ég sérstaklega við lið KR og Ðreiðabliks. En aðalplúsinn hjá okkar í sumar tel ég vera, að við höldum því sem næst sama mannskap og eins verð- um við með sama þjálfara. Þess vegna einna helst te! ég okkur standa vel að vígi í sumar,“ sagði Diðrik. Spá hans er þannig en hann vildi ekki hafa Víking með í þeirri spá: 1. Fram 2. Breiðablik 3. ÍA 4. Valur 5. KA 6. KR 7. FH 8. ÍBV 9. Þór. — SK. 49

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.