Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 54

Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 54
„Andinn í KR-liöinu er mjög góöur” — segir Stefán Jóhannsson markvörður KR-inga Hjá vesturbæjarliðinu KR tókum við markvörðinn Stefán Jóhannsson tali en hann hefur vakið mikla at- hygli fyrir góða markvörslu í Reykjavíkurmótinu og eins lék hann vel með liði sínu í fyrra. Hann hafði þetta um íslandsmótið að segja. „Mér líst mjög vel á þetta íslandsmót sem nú er að hefjast. Ég held að við í KR munum koma til með að standa okkur betur en í fyrra. Andinn í liðinu er mjög góður og það eru allir leikmenn liðsins staðráðnir í að standa sig. Við erum með þýskan þjálfara, Manfred Steves, og ég held að hann eigi eftir að gera góða hluti með liðið. Mér líst mjög vel á hann og æfingamar eru mjög góðar og skemmtilegar hjá honum. Hann er nokkuð öðruvísi en þeir þjálfarar sem við höfum verið með að undanförnu. Þetta er meginlandsþjálfari af bestu gerð. Varðandi hin liðin í 1. deild- inni er ég ansi hræddur um að Breiðablik eigi eftir að koma á óvart í sumar. Þeir eru sterkir núna og ég held að þeir verði mjög ofarlega. Annars er mjög erfitt að segja til um þetta svona fyrirfram. Þetta skýrist strax eftir fyrstu leikina á grasinu. Það er eiginlega ómögulegt að segja nokkuð til um þetta fyrr en maður hefur séð hin liðin leika á grasi. Ég tek ekki mikið mark á þessum vorleikjum á mölinni,“ sagði hinn ungi og efnilegi markvörður Stefán Jóhannsson. Spá Stefáns lítur þannig út. 1. KR 2. Fram 3. VBíkingur 4. Breiðablik 5. ÍA 6. KA 7. Valur 8. ÍBV 9. FH 10. Þór. — SK. „Aldrei eins vel undirbúnir” „Mér líst sérsaklega vel á þetta hjá okkur í sumar. Ég hef trú á því að við verðum með sterkt lið í sumar. Við höfum feng- ið nýja leikmenn og ég held að þeir muni koma til með að passa vel inn í leik okkar. Flestir eru þetta miðjumenn en miðjan hefur einmitt verið okkar veika hlið undanfarin ár,“ sagði Marteinn Geirsson fyrir- liði Fram í stuttu rabbi við íþróttablaðið fyrir skömmu. „Ekkert að marka vorleikina“ Ert þú ánægður með frammistöðu Fram í Reykja- víkurmótinu? „Ég veit varla hvað ég á að segja. Ég tek aldrei neitt mark á þessum vorleikjum. Þetta er bara æfingamót fyrir íslands- mótið og liðin taka þetta mis- jafnlega alvarlega, og ég held að það sé ekkert að marka úr- slitin í leikjunum. Ármann vann til dæmis Val 2:1 og svo vinnum við Ármann 9:0. Það getur ekki verið neitt að marka þetta.“ „Við verðum á toppnum ásamt Víkingunum“ Marteinn heldur áfram: „Undirbúningur okkar hefur aldrei verið betri en nú. Við erum búnir að æfa stanslaust frá áramótum og ég held að ég megi fullyrða að lið frá Fram hafi aldrei komið betur und- irbúið en einmitt nú. Þar af leiðandi hlýt ég að vera bjart- sýnn á gengi okkar í sumar. — segir Marteinn Geirsson, fyrirliöi Fram Og ég hika ekki við að spá okkur einu af efstu sætunum og ef til vill því efsta. Einnig held ég að Víkingamir verði sterkir í sumar. Lið Breiða- bliks er spumingamerki en ég hef trú á að Valsmenn verði ekki ofarlega. Þá verður þetta erfitt sumar fyrir Akureyrar- liðin tvö KA og Þór.“ Við báðum Martein að spá um úrslit íslandsmótsins og spá hans er á þessa leið: 1. Fram 2. Víkingur 3. ÍA 4. Breiðablik 5. Valur 6. KR 7. ÍBV 8. KA 9. FH 10. Þór. — SK. 54

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.