Íþróttablaðið - 01.05.1991, Page 23
sumar, eins og hann gerði í fyrra, og
aðrir leikmenn halda uppteknum
hætti, verður liðið örugglega íeinu af
þremur efstu sætunum. Jón Erling
blómstraði í fyrra og má reikna með
að hann geri slíkt hið sama í sumar.
Fram hefur á að skipa fjórum af efni-
legustu knattspyrnumönnum lands-
ins — Ríkharði Daðasyni, Steinari
Guðgeirssyni, Baldri Bjarnasyni og
Antoni B. Markússyni. Nái þessir
strákar að leika eins og þeir hafa getu
til verður gaman að fylgjast með lið-
inu. Pétur Ormslev gegnir lykilhlut-
verki hjá Fram og hann er sá leikmað-
ur sem finnur oftast skráargatið á
vörnum andstæðinganna. Eitt af fá-
um vandamálum Ásgeirs Elíassonar,
þjálfara Fram, verður að koma í veg
fyrir að liðið falli niður í nokkurra
leikja „tap tímabil" eins og gerst hef-
ur undanfarin ár.
Jón Grétar Jónsson leikur að nýju
með Val en hann hefur verið iðinn
við að skora í vorleikjunum.
KR-ingar hafa mjög reyndu liði á
að skipa og til marks um það eiga 7
leikjahæstu leikmenn liðsins samtals
900 leiki að baki í 1. deild. Liðinu
hefur bæst góður liðsstyrkur í þeim
Bjarka Péturssyni, Heimi Guðjóns-
syni og Rafni Rafnssyni og verður
gaman að sjá hvernig bræðrunum
vegnar í sumar. Einsogáður sagði var
liðið hársbreidd frá því að vinna tvö-
falt í fyrra og það hlýtur að skerpa
vígtennurnarenn frekar. RagnarMar-
geirsson átti sittbesta leikár á-íslandi í
fyrra, að mati undirritaðs, og nái aðrir
lykilleikmenn toppári hampar Pétur
Pétursson, fyrirliði KR, örugglega
bikar í sumar. Pétur er mjög mikil-
vægur liðinu og nái hann fullum bata
veltur árangur liðsins mest á frammi-
stöðu hans, Atla, Ragnars, Rúnars og
Ólafs Gottskálkssonar. Að flestra
mati hefur KR dottið í lukkupottinn
Hampar Pétur Ormslev enn einum bikarnum í haust?
hvað varðar þjálfara því Guðni Kjart-
ansson er enginn aukvisi í þeim mál-
um. lan Ross innleiddi ákveðið hug-
arfari í Vesturbæinn sem öllum er
nauðsynlegt en Guðni vinnur á öðru-
vísi nótum — ekki síður árangursrík-
um.
Enginn bjóstvið neinu afVal ífyrra
en liðið sigraði þó í Mjólkurbikar-
keppninni. Það sama er uppi á ten-
ingnum í ár — fæstir búast við titli en
þó getur allt gerst. Nokkrir reyndir
leikmenn hafa róið á önnur mið en
yngri strákar hafa gengið til liðs við
félagið í staðinn. Jón Grétar Jónsson
er kominn í Val að nýju eftir 2 ár hjá
KA og hefur hann leikið vel í vorleikj-
unum. Anthony Karl vann sér verð-
skuldað sæti í landsliðshópnum í
fyrra og verður framlína Vals öflug
með hann og Jón Grétar sem hefur
fundið lyktina af markaskorun. Nái
Sævar Jónsson og Bjarni Sigurðsson
svipuðu glanstímabili og í fyrra smit-
ar það vel út frá sér. Einar Páll er
kominn í hóp sterkustu varnarmanna
landsins en góð barátta er um flestar
stöður í liðinu. Það, sem Valsliðið
hefur vantaði hin síðar ár, er leik-
maður sem stjórnar sóknaraðgerðum
liðsins — nokkurs konar Pétur Orm-
slev. Steinar Dagur Adolfsson og
Gunnlaugur Einarsson eru líklegir til
þess að skila því hlutverki en Steinar
átti við meiðsli að stríða í fyrra.
Gunnlaugur var reyndar skorinn upp
við kviðsliti fyrir skömmu en þessir
tveir leikmenn eru mjög þýðingar-
miklir. Þá verður gaman að sjá hvort
Guðmundur Steinsson leikur ekki
með Pétri Arnþórssyni í sumar —
heldur með Víkingi.
Baldur Bragason fer ekki að springa
út en hann hefur mikla hæfileika sem
hafa blundað of lengi.
Auk þriggja fyrrgreindra liða eru
nokkur önnur líkleg til þess að
blanda sér í toppbaráttuna. Vest-
mannaeyingar léku vel í fyrra en
skörðTómasar Inga ogAndrejs Jerina
verða vandfyllt. Það er ávallt gaman
að horfaá lið ÍBV spilaþvíþegar liðið
sækir taka allir leikmenn liðsins þátt í
því — og hafa gaman af. Liðið skorar
því mörg mörk en fær að sama skapi
á sig mörg mörk. í liðinu er strákar
sem hafagreinilegagaman af þvísem
þeir eru að gera og leika með hjart-
anu. Eyjamenn eru ávallterfiðir heim
að sækja og það er sérstök upplifun
að leika þar „fyrir fullu húsi". í liðinu
er margir mjög góðir leikmenn og
nægir þar að nefna Hlyn Stefánsson,
Inga Sigurðsson og Jón Braga Arnars-
23