Fréttablaðið - 11.07.2020, Side 2

Fréttablaðið - 11.07.2020, Side 2
Við höfum til dæmis rekist á tvær hrossagrafir sem eru frá nítjándu öld. Vala Garðarsdóttir, fornleifa- fræðingur Veður Hæg suðlæg átt í dag, skýjað á landinu og dálítil súld V-til. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á A-verðu landinu. SJÁ SÍÐU 30 Tilfinningaþrungin stund á Þingvöllum Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og nafni fyrrum forsætisráðherra sem lést í bruna á Þingvöllum fyrir fimmtíu árum, hélt tilfinninga- þrungna ræðu við minningarathöfn sem haldin var á brunastað í gær. Þjóðarsorg ríkti eftir að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fórst, ásamt konu sinni Sigríði Björnsdóttur og barnabarni þeirra, Benedikt Vilmundarsyni. Bjarni Ben. eldri var afabróðir Bjarna Ben. yngri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Í blaði gærdagsins birtist á baksíðu pistill höfundar sem ekki er í starfsmannahópi blaðsins. Innihald hans og efnistök eru ekki í samræmi við þau viðmið sem blaðið setur um slíkt efni. Þótt pistillinn sé á ábyrgð þess sem hann skrifaði, biður Fréttablaðið hlutaðeigandi afsökunar á birtingunni. ATHS. RITSTJ.  GÓÐA FERÐ INNANLANDS   TAX FREE* af förðunarvörum, ilmvötnum og völdum húðvörum *19,35% verðlækkun Gildir 15. júní - 27. júlí 2020 í verslunum og í netverslun Ly STJÓRNSÝSLA 56 þúsund manns hafa sótt stafræn ökuskírteini í síma, eða rúmur fjórðungur allra bílstjóra á Íslandi. Útgáfa stafrænna ökuskírteina hófst þann 1. júlí síð- astliðinn og jafngildir skírteinið hefðbundnu ökuskírteini, en meg- intilgangurinn er að notendur geti sannað ökuréttindi sín gagnvart lögreglu. Stafræna ökuskírteinið er einungis gilt á Íslandi. Árið 2019 hlutu 741 ökumaður sem ekki hafði ökuskírteini með- ferðis við akstur sekt. Langflestar voru sektirnar á höfuðborgar- svæðinu, 399 talsins, því næst á Suðurnesjum, 108 sektir, en fæstar í Vestmannaeyjum, einungis fjór- ar. Sé ökuskírteini ekki meðferðis við akstur ökutækis getur sekt varðað 10 þúsund krónum. Sektir við slíku broti fyrir árið 2019 jafn- giltu því um sjö og hálfri milljón króna. – bdj Tugþúsundir ökuskírteina komin í símann FORNLEIFAR „Þetta er mjög spenn- andi og virkilega áhugaverður staður,“ segir Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur, en hún fer fyrir fornleifauppgreftri á Stjórnarráðs- reitnum í Reykjavík. Tilgangur uppgraftarins er að kanna mann- vistarleifar á lóð Stjórnarráðsins vegna fyrirhugaðra framkvæmda á svæðinu. Uppgröfturinn hófst í september í fyrra og hafa ýmsar fornminjar nú þegar komið í ljós. Vegfarendur sem eiga leið um svæðið geta til dæmis rekið augun í eitthvað sem líkist hlöðnum steinvegg. Aðspurð um hvaða fornminjar sé að ræða segir Vala að fundist hafi drenlögn sem líklega sé frá árinu 1870. „Við bjuggumst alveg við því að finna einhvers konar lagnir hérna af því hér stóð stórt hús með kjallara en það sem er óvanalegt er hversu mikið er lagt í drenið. Að það sé ekki bara hola í jörðinni eða skurður,“ segir Vala og telur ástæðuna fyrir dreninu veglega tvíþætta. „Húsið var í miklum halla hérna og hér bjó landshöfðingi svo þetta er mjög veglegt. Þetta er alveg tvöföld grjót- hleðsla og mjög fallegt mannvirki,“ útskýrir hún. „Við erum búin að rífa burt hús hér sem var byggt árið 1904 og við byggingu þess var það, sem var hér fyrir, nýtt sem grunnur fyrir hluta hússins. Nú höldum við áfram að grafa og erum farin að sjá glitta í eitthvað eldra hérna,“ segir Vala og bætir við að um sé að ræða vegg sem við fyrstu sýn virðist vera frá því fyrir árið 1500. „Ég sé gjósku frá 1226 í torfinu en ég sé ekki gjósku frá árinu 1500 svo það er vísbending um að þetta sé eldra en allt annað sem er hérna, en ég þarf að skoða þetta betur,“ segir hún. Þá segir Vala að ýmislegt hafi komið í ljós við uppgröftinn á Stjórnarráðsreitnum sem hún hafi ekki búist við að finna. „Það er alls konar sem fylgir mönnunum og er ekki skráð, við höfum til dæmis rekist á tvær hrossagrafir sem eru frá nítjándu öld,“ segir hún. „Hestarnir hafa verið felldir og svo grafin hola sem þeir voru settir í, bara í miðjum íbúðargarði.“ Enn er unnið að því að grafa upp bein hrossanna en farið verður í að skoða þau betur eftir helgi. „Við látum beinin liggja aðeins eins og staðan er núna, en holurnar eru mjög djúpar,“ segir Vala. Uppgröfturinn stendur y f ir næstu tvo mánuði og segir Vala virkilega spennandi að sjá hvað leynist á svæðinu þegar grafið verður enn dýpra. Að uppgreftr- inum loknum er áætlað að skrif- stofubygging rísi á svæðinu og að fornminjarnar verði fjarlægðar. birnadrofn@frettabladid.is Hafa fundið drenlögn og tvær hrossagrafir Fornleifauppgröftur hefur staðið yfir á Stjórnarráðsreitnum frá því í fyrra- haust. Ýmsar fornminjar hafa fundist á svæðinu, til dæmis vegleg drenlögn og hrossagrafir. Ráðgert er að uppgröfturinn standi í tvo mánuði til viðbótar. Hér má sjá drenlögnina sem Vala segir einkar veglega. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR EFNAHAGSMÁL Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stuðningslán á Ísland.is. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Stuðningslán eru hluti af aðgerðum stjórnvalda og er ætlað að styðja við smærri og með- alstór fyrirtæki sem orðið hafa fyrir miklu tekjufalli vegna COVID-19. Fram kemur að stuðningslán geti numið allt að 10 prósentum af tekjum fyrirtækis á rekstrarárinu 2019 en lán til hvers fyrirtækis getur að hámarki numið 40 millj- ónum króna. Full ríkisábyrgð er á lánunum upp að 10 milljónum króna og 85 prósenta ríkisábyrgð er á lánum umfram það. Markmið stjórnvalda með því er að tryggja að stuðningslán verði veitt á lágmarks- vöxtum. Tekið er á móti umsóknum um stuðningslán á Ísland.is, en stjórn- völd hafa samið við Arion banka, Íslandsbanka, Kviku, Landsbank- ann og Sparisjóðina um fram- kvæmd lánanna. Fyrirtæki fá því lán afgreidd hjá sínum viðskipta- banka. – jþ Stuðningslánin nú aðgengileg Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. 1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.