Fréttablaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 47
Freyðiefni í sjampói eru ónauðsyn-
leg aukaefni sem plata þig til þess
að nota meira en þú þarft.
Allar líkur eru á því að þú sért að nota allt of mikið af sjampói í hárið. Margir
telja að magn hársápu fari eftir
lengd og magni hárs. Staðreynd
in er sú að þegar við „þvoum á
okkur hárið“, eigum við ekki að
vera að þvo hárið, heldur hár
svörðinn.
Gefum okkur að f lestir sem
nota hársápu noti hana nokkuð
reglulega, hvort sem það er einu
sinni á dag, tvisvar í viku eða
tvisvar í mánuði. Hársérfræðing
ar mæla með því magni af hár
sápu í hársvörðinn sem nemur
um það bil tveimur ertum. Sápan
skolast svo í gegnum hárið og
hreinsar það örlítið í leiðinni.
Nú eru f lestir með svipaðan
fersentimetrafjölda af hársverði
og því ættu tvær ertur af sjampói
að duga í þinn hársvörð.
Við notum allt of
mikið af sjampói
Malala Yousafzai er orðin 23 ára.
MYND/GETTY
Á þessum degi, 12. júlí árið 1997, fæddist Nóbelsverðlaunahafinn Malala
Yousafzai í Pakistan. Árið 2012
var hún skotin í höfuðið af talí
bönum, en læknum tókst að
bjarga lífi hennar. Eftir árásina
varð Malala áberandi talskona
fyrir réttindum pakistanskra
stúlkna til að sækja sér menntun
og varð hún f ljótt heimsþekkt
fyrir þraut seigju sína og hug r
ekki. Árið 2014 fékk hún Nób
elsverðlaunin og varð þar með
yngsta manneskj an sem hlotnast
hefur sá heiður.
Peningaverðlaunin sem hún
fékk notaði hún til þess að byggja
skóla fyrir stúlkur í Pakistan.
Malala útskrifaðist nýverið úr
Oxford og sagði af því tilefni á
Instagram að nú væri kominn
tími á smá Netf lix, lestur og
svefn.
Hetja fagnar
afmæli
Sumir vilja meina að það ætti alltaf
að nota sólarvörn, líka þegar það er
skýjað. MYND/GETTY
Sólarvörn verndar húðina gegn skaðlegri útfjólublárri geislun sólarinnar. Við vitum
öll að það borgar sig að nota sólar
vörn til að verjast sterkri sól, en
sumir vilja meina að það ætti alltaf
að nota hana, líka þegar það er
skýjað.
Þegar það er skýjað komast 80%
sólargeisla í gegnum skýin, þannig
að húðin getur samt orðið fyrir
óhollri geislun. Snjór getur líka
endurkastað allt að 80% af útfjólu
blárri geislun sólarinnar og eftir
því sem fólk fer í meiri hæð verður
það fyrir meiri geislun, þannig að
það er bráðnauðsynlegt að hafa
sólarvörn með í fjalla og skíða
ferðir.
Sólarvörn minnkar hættuna
á húðkrabbameini um helming
og hægir á öldrun húðarinnar.
Útfjólublá geislun getur valdið
krabbameini og gefur húðinni
líka eldra og hrukkóttara útlit.
Rannsóknir sýna að þeir sem eru
undir 55 ára aldri og nota sólar
vörn reglulega minnka verulega
hættuna á að fá öldrunarmerki á
húðina. Sólarvörn viðheldur líka
jöfnum húðlit með því að koma í
veg fyrir að sólin breyti litnum.
Mælt er með því að nota alltaf
sólarvörn sem er að minnsta kosti
SPF 15, en sumir læknar segja að
ekkert undir 30 dugi.
Sólarvörnin er lífsbjörg
stendur vörð um þína heilsu
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Af bæði eigin reynslu og í gegnum
starf mitt sem hjúkrunarfræðingur
hef ég áttað mig á því hversu stór
partur af heilsu fólks er tengdur
meltingarveginum. Regluleg inntaka
á góðgerlum styður við heilbrigða
þarmaflóru og eflir ónæmiskerfið.
Ég get svo sannarlega mælt með
Bio-Kult vörunum sem hluta af
heilbrigðum lífsstíl.
Laufey Steindórsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og jógakennari.
ÖFLUGIR GÓÐGERLAR
fyrir alla fjölskylduna
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0