Fréttablaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 30
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Matjurtakassar Margrétar eru algjörlega hennar hug-mynd og hönnun, en þeir
áttu bara að vera til einkanota. En
vinir hennar og vandamenn voru
svo hrifnir af kössunum að hún
smíðaði nokkra fleiri fyrir þá og
ákvað að deila myndum af þeim
á Facebook. Hún átti ekki von á
þeim viðbrögðum sem hún fékk.
„Þetta hófst þannig að áður en
COVID kom sagði ég upp vinnunni
minni. Ég vissi náttúrlega ekkert
að COVID væri að koma, en ég er
með fyrirtæki sem heitir Verum
góð og hef verið að halda fyrir-
lestra og námskeið tengt því. En
svo var allt í einu komið COVID
og ég var þar af leiðandi ekki að
halda neina fyrirlestra. Ég var þess
vegna bara að dunda mér við að
smíða kassana. Það var svo algjör
skyndihugdetta að pósta þeim á
Facebook og það endaði á að ég
smíðaði 68 kassa á sex vikum,“
segir Margrét.
„Ég hef lengi verið að smíða sem
hobbí. Ég hef mjög gaman af því,
ég hef smíðað skjólveggi og palla
Smíðaði 68 kassa á sex vikum
Margrét Sigurðardóttir fékk þá hugmynd fyrir nokkrum árum að smíða matjurtakassa til að hafa
á veröndinni hjá sér. Kassagerðin tók svo óvænta stefnu þegar hún varð að fullri vinnu í vor.
Margrét byrjaði að smíða kassana
til einkanota og fyrir nokkra vini.
Kassarnir eru
til í ýmsum
stærðum og
eru huggulegir í
garðinum.
Á kössunum er áfast lok úr sterku plasti.
og parketlagt og ýmislegt f leira
smíðatengt svo ég kunni að smíða
áður en ég byrjaði á þessu,“ segir
Margrét.
„Ég hef fengið svo mikið af
jákvæðum athugasemdum að ég
er búin að ákveða að ég ætla að
halda áfram með þetta verkefni.
Fólki er velkomið að finna mig á
Facebook og senda skilaboð, ef það
vill kassa. En svo er heimasíða í
vinnslu fyrir fyrirtækið og þá mun
ég auglýsa þá þar.“
Dásamlegt að vera úti að
smíða
Kassana hefur Margrét smíðað úti
á veröndinni hjá sér, en hún segir
það hafa verið algjörlega dásam-
legt í vor og núna í sumar, að vera
heima að smíða.
„Kassarnir eru í ákveðnum
stærðum, en fólk hefur líka gert
sérpöntun hjá mér, til dæmis ef
það vill að kassarnir passi í ákveð-
ið rými. Þess vegna hef ég búið til
svalakassa sem ég var ekki með í
upphafi,“ útskýrir Margrét.
„Það sem er gott við kassana er
að inni í þeim er sterkur og góður
jarðvegsdúkur og yfir þeim er
plastdúkur úr plasti sem er notað
í alvöru gróðurhús. Þetta er alveg
níðsterkt. Ég veit það sjálf því ég
er með svona kassa hjá mér og ég
geymi þá úti allt árið. Út af jarð-
vegsdúknum kemst engin óværa
í þá eins og sniglar eða annað og
moldin helst mjög góð.“
Minnsta kassann kallar Margrét
kryddkassa því hún segir hann
mjög hentugan til að rækta krydd-
plöntur, en hann er samt nógu
djúpur til að hægt sé að rækta í
honum salatblöð eða kál.
„Stærri kassarnir eru það
djúpir að það er hægt að vera með
kartöflur í þeim. En það gera það
ekki margir. Þú færð ekki margar
kartöflur úr einum kassa,“ segir
Margrét.
„Það er mjög gott að rækta í
þessum kössum. Þeir eru sterkir
og góðir, svo fólk þarf ekki að hafa
áhyggjur af að geyma þá úti. Ef fólk
vill þá bæsa ég þá líka, svo þeir eru
bæði huggulegir og endast.“
SG Hús hefur byggt yfir 1400 timburhús
frá árinu 1966 vítt og breytt um landið
Lögð er áhersla á smíði vandaðra umhverfisvænna timburhúsa sem
eru hönnuð og byggð fyrir íslenskar aðstæður. Fjölbreytilegt veður-
farið á Íslandi gerir miklar kröfur um vönduð vinnubrögð og reynsla
starfsfólks okkar eykur öryggi og gæði húsanna.
ÍSLENSK HÖNNUN
OG FRAMLEIÐSLA
ÍBÚÐARHÚS - FJÖLNOTAHÚS - KRAFTSPERRUR - SUMARHÚS
4 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RÍSLENSKT – GJÖRIÐ SVO VEL