Fréttablaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 22
Blúsuð blanda af ensku og frönsku Jón Óskar hefur aldrei farið leynt með einlæga aðdáun sína á Ringo Starr og hefur haldið tvær myndlistarsýningar, mjög svo ólíkar, en báðar tileinkaðar honum. „Ein þeirra var í Kling & Bang með teikningum, eða öllu heldur eiginlega málverkum, á pappír. Myndir sem voru allar tengdar Ringo. Bara svona nostalgíukennt dæmi hjá mér,“ segir Jón Óskar. „Fyrir nokkrum árum var ég svo með sýningu í Tveimur hröfnum sem hét Beaucoups of Blues og hét eftir feikilega fínni sólóplötu frá honum. Þetta er svona kántrý-plata,“ segir Jón Óskar, áður en hann rekur söguna að baki plötunnar, sem Ringo gerði ásamt bandaríska gítarleikaranum Pete Drake árið 1970. Sagan segir að Ringo hafi boðist til þess að sækja Drake út á flugvöll, sem var kominn frá Nashville til þess að leika á gítar á móti George Harrison í hljóðveri. Drake hafi síðan orðið gapandi hissa þegar hann komst að því að bifreið Bítilsins var drekkhlaðin kassettum með kántrý-tónlist. „Þeir fara svo að ræða þetta í stúdíóinu og þegar þessi mikli áhugi Ringos á kántrý-músík kemur í ljós, segir hinn: „Ég skal redda hljóðfæraleikurum og við tökum upp plötu,“ segir Jón Óskar. „Og hann náði bara í landsliðið í Nashville og þessi plata, sem heitir Beaucoups of Blues og ég nefndi sýninguna eftir, varð til út úr því. Það er reyndar engin mynd af Ringo þar, en þetta er svona útlegging, aðallega út frá titlinum, mér finnst þetta vera svo flottur titill. Beaucoups of Blues. Svona samsuða af ensku og frönsku. Eitthvert mix.“ Trymbillinn Ringo Starr varð 80 ára í vikunni, fæddur í Liverpool 7. júlí 1940. Hann er vel hress eftir aldri og fagnaði tímamótunum ásamt vinum og kunningjum með tónleikum á netinu, þar sem hinn eftirlifandi Bítillinn, Paul McCart- ney, var meðal gesta. „Hann er náttúrlega elstur af þeim og er einn af þessum mönnum sem lífið hefur alltaf leikið við, ein- hvern veginn. Það er bara alltaf einhver leikur í honum,“ segir myndlistarmaðurinn Jón Óskar um uppáhalds-Bítilinn sinn og telur ýmislegt upp Ringo til tekna, fyrir utan trommuleik með áhrifamestu rokkhljómsveit fyrr og síðar. „Hann fór í bíómyndir og það gekk allt fínt. Það virðist alltaf bara vera gaman hjá honum. Það hefur aldrei verið basl. Hann var til dæmis söluhæstur af Bítlunum í Bandaríkj- unum á tímabili með sólóplötur og svo er líka dálítið magnað að enn þann dag í dag er hann með ríkustu mönnum Breta. Sem ég fæ engan botn í. En hefur haft tekjur af aug- lýsingum og öllum fjáranum.“ Við þetta má síðan bæta að 2018 var Ringo sagður auðugasti trym- bill í heimi en þá var hann metinn á 350 milljónir dollara. „Og hann átti náttúrlega sætustu Bítlakonuna, James Bond-leikkonuna,“ segir Jón Óskar, en þau Barbara Bach og Ringo gengu í hjónaband 1981, sama ár og þau léku saman í gamanmynd- inni Hellisbúanum, og hafa verið óaðskiljanleg síðan. Hugljómun í Tónabíói Þegar æstir Bítlaaðdáendur eru ann- ars vegar bylur jafnan hæst í þeim sem hafa Paul og John í mestum hávegum, þannig að Ringo-fólkið virkar sem einhvers konar frávik í risastóru menginu. „Þetta náttúrlega byrjaði þannig hjá mér og þegar ég heyrði í Bítlun- um sem barn þá var Lennon svona fyrsta átrúnaðargoðið og rosalegur töffari,“ segir Jón Óskar sem sá ljós- Ringo er gæinn sem er til í Kók og Prins Bítillinn Ringo Starr er áttræður og sæmi- lega ern eftir aldri. Kannski vegna þess að hann er „einn af þessum mönnum sem lífið hefur alltaf leikið við,“ eins og myndlistar- og Ringo-maðurinn Jón Óskar orðar það. Lífsgleði og stöðug lukka einkenna elsta Bítilinn Ringo Starr að mati Jóns Óskars sem hefur áratugum saman verið ákafur Ringo-maður. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Jón Óskar skipti Lennon snemma út fyrir Ringo vegna heillandi per- sónuleika hans. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI ið, eða Ringo í réttu ljósi, í Tónabíói fyrir margt löngu. „Þegar A Hard Days Night kom til Íslands fór ég á hana nokkrum sinnum, þó ekki jafn oft og Óttar Felix Hauksson, og það er sena í bíómyndinni þar sem Ringo er að ráfa um borgina,“ segir Jón Óskar og útskýrir hvernig þessi „melan- kólíska og fallega sena“ kom til. „Bítlarnir höfðu verið í partíi kvöldið áður og áttu svo að mæta um morguninn í myndatöku, en þeir voru svo þunnir að þeir sváfu bara áfram. Nema Ringo sem mætti þunnur og þá ákvað leikstjórinn að taka bara nokkur skot með honum, sem varð bara ágætur kafli í mynd- inni og hluti af melankólíunni er sennilega hvað hann er þunnur,“ heldur Jón Óskar áfram og kemur að kjarna málsins: „Og þegar ég sá þessa bíómynd þá áttaði ég mig á því hvað þetta var. Þetta er gæinn sem hefði alveg verið til í að fara með manni út í sjoppu og fá sér Kók og Prins og svona og síðan hef ég bara verið Ringo-maður.“ Sólargeislinn Ringo Þótt Ringo hafi, eins og gengur og gerist með trommuleikara, lamið húðirnar með sínu örvhenta lagi í bakgrunninum, heillaði hann þó miklu fleiri en Jón Óskar í Reykjavík horfinna daga. „Þegar ameríska innrásin stóð yfir þá var talað um að hann höfð- aði sérstaklega til barna og mæðra sem fannst hann álitlegasti tengda- sonurinn af Bítlunum. Það er ein- hver svona hlýja og góðmennska sem hefur alltaf einkennt kallinn,“ segir Jón Óskar sem telur sig hafa fundið skýringuna á þessum sér- staka sjarma Ringo Starr. „Ég held líka að skýringin á hvað þetta er allt létt og kátt í kringum hann, er að hann var sólargeisli í fjölskyldunni. Hann var elskaður. Hinir Bítlarnir eiga miklu tragísk- ari bakgrunn, þar sem það er svona meira basl og vesen.“ Jón Óskar minnir þó á að Ringo hafi glímt við erfið veikindi í æsku og eytt hluta hennar á spítölum. „Hann var eitthvað veikur. En það var allt látið eftir honum. Allar frænkurnar og foreldrarnir og svona þannig að það virkar á mann, fyrir utan þessa sjúkrahúslegu sem tók einhver tvö þrjú ár, eins og allt hafi leikið við hann einhvern veg- inn. Það er eins og það hafi alltaf verið gaman.“ Smekklegur trymbill Jón Óskar er ekki frá því að í öllu talinu um tónsmíðar Johns og Pauls og gítarsnilli George Harrisons vilji það stundum gleymast að Ringo á sinn sess í sögunni sem trommari. „Annars er ég ekkert maðurinn til að dæma svoleiðis, svona tónfræði- lega. Ég ætla nú ekki að gefa mig út fyrir það. Fyrir mér er þetta fyrst og fremst bara spurning um karakter. Hann var orðinn frægur á undan þeim þegar hann var þarna í Rory Storm and the Hurricanes, eða hvað hún hét hljómsveitin. Þar var hann heilmikil stjarna og var hafður fremstur á sviðinu. Eða það voru allaveganna einhver sessjón þar sem hann var fremstur og var mjög vinsæll í Liverpool og þótti mjög f linkur í því að sitja fremstur, berja bumbur og blikka stelpur. Og svo fer hann yfir í Bítl- ana náttúrlega og Rory Storm and the Hurricanes leggst bara af,“ segir Jón Óskar um þau stórmerki í ágúst 1962, þegar Ringo bauðst að ganga til liðs við Bítlana í stað Pete Best. „Það er stórmerkileg upptaka á YouTube þar sem margir þekktir trymblar fara yfir trommuleik Ring- os og þykir mikið koma til ákveð- innar tækni sem hann bjó yfir,“ segir Jón Óskar og bætir við að hann veki af og til athygli á þessu mynd- bandi til þess að minna á trommu- hæfileika Ringos. „Hann var hins vegar fyrst og fremst trymbill sem spilaði með laginu. Hann fer inn í laglínuna og hefur alltaf þótt mjög smekklegur trymbill.“ Þórarinn Þórarinsson thorarinn@frettabladid.is 1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.