Fréttablaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 46
Heillakortin
fagna fjölbreyti-
leikanum. Brúð-
kaupskortin eru
til dæmis með
myndum af
pörum af sama
kyni og gagn-
stæðu.
Þjóðminjasafn Íslands hefur nú hafið sölu á nýjum og fallegum tækifæriskortum sem
nefnast Heillakort. Hugmyndin
kom upp þegar til stóð að fram
leiða brúðkaupskort fyrir sumarið,
en svo kom babb í bátinn vegna
sam komu banns og ákvörðun var
tek in um að vinna hugmyndina
áfr am með fleiri gleðileg tilefni í
huga. Var Jóhanna Þorleifsdóttir,
myndlistarkona fengin í að teikna
fallegar myndir fyrir kortin, en hún
Heillakort Þjóðminjasafnsins fagna fjölbreytileikanum
Hrafnkell Sigurðsson mynd-
listarmaður verður með sýningu á
verkum sínum í Eyjafjarðarsveit.
Hrafnkell Sigurðsson myndlistarmaður opnar sýninguna Stillingar í
Einkasafninu í Eyjafjarðarsveit í
dag klukkan 14. Þar sýnir hann ný
ljósmyndaverk. Kveikjan að verk
unum sem Hrafnkell sýnir varð til
á staðnum og eru öll verkin unnin
með efnivið úr nánasta umhverfi á
tímabilinu 29.06. 11.07.2020.
Hrafnkell hefur nýtt sér ljós
myndun við gerð verka sinna, en
einnig má þar sjá notkun ýmissa
annarra miðla, á borð við mynd
bönd, skúlptúra og innsetningar.
Mörg ljósmyndaverka Hrafnkels
eru seríur sem fjalla um hversdags
leg málefni og hreyfa við skynjun
áhorfandans með persónulegum
tengingum.
Sumarið 2020 er þrem lista
mönnum boðið að dvelja í Einka
safninu og sýna verk sín í lok þess
tíma. Sýning Hrafnkels er önnur í
þessari sýningarröð en áður sýndi
Arna G. Valsdóttir. Aðalheiður
Eysteinsdóttir lýkur sýninga
röðinni í lok júlí.
Einkasafnið er 10 km sunnan
Akureyrar og stendur við syðri
afleggjara þjóðvegar 822, Krist
nesvegar.
Hrafnkell í
Einkasafninu
Framburður Jason Momoa á
íslensku í kvikmyndinni Justice
League heillaði Íslendinga ekki.
Það er merkilega algengt að erl endir leikarar reyni að bregða fyrir sig íslensku í
kvikmyndum og sjónvarps þáttum
og Íslendingar eru sammála um að
yfirleitt fari erlendar stór stjörnur
sem tala ekki stakt orð í málinu
ekkert sérlega vel með fram
burðinn, enda hefur íslenska skrít
in hljóð sem leikararnir eru yfirleitt
ekki vanir.
Í Facebookhópnum Bíófíklar var
rætt um þetta í vikunni og fólk var
almennt sammála um að ísl enskan
hans Jason Momoa í hlutverki
Aquaman í kvikmyndinni Justice
League sé líklega verst.
Margir nefndu líka Pierce
Brosnan í Eurovisi onmynd Wills
Ferrell og einnig var rifjað upp að
vonda lið ið í myndinni Mighty
Ducks 2 frá ár inu 1994 var íslenskt
og fór held ur illa með móðurmálið
okkar.
Fleiri eru taldir upp, eins og Karl
Urban í kvikmyndinni Pathfinder
og Jonah Hill í Netflixþáttunum
Maniac. Persónur í tölvuleiknum
God of War fara líka margar illa
með ísl ensk an framburð, en fram
leiðendur leiksins fá þó prik fyrir
að hafa fengið Schola Cantorum,
Kammerkór Hallgrímskirkju, til að
syngja í titillagi leiksins.
Ófögur íslenska
á skjánum
út skrif aðist úr Listaháskóla Íslands
2012. Hún hefur myndskreytt bæk
ur og komið að öðrum verkefnum í
myndlist og hönnun.
Heillakortin fagna fjölbreytileik
anum og eru umhverfisvænni
kost ur. Í þau er notaður óhúðaður,
óhvítt aður pappír og þeim fylgja
engin umslög sem enda í ruslinu.
Heillakortin eru hönnuð og prent
uð á Íslandi, sem þýðir minna
kol efnis spor. Kortin fást í safnbúð
Þjóðminjasafns Íslands.
Floridana
LIFÐU VEL
FRAMLEITT Á ÍSLANDI
8 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RÍSLENSKT – GJÖRIÐ SVO VEL