Fréttablaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 26
Það er þægilegra fyrir plöntupíuna að geta vökvað allar plönturnar í einu. Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Hér er rætt um plöntuæðið sem hefur tröllriðið öllu að undanförnu. Víða um heim poppa upp svartir plöntumarkaðir með sjaldséðar plöntur. Einnig eru stunduð afleggjaraskipti á Facebook og auglýstum plöntu- mörkuðum. Hafsteinn Hafliða, plöntupabbi okkar allra, er svo lík- lega einn af vinsælustu mönnum landsins, eftir að hafa stofnað Stofublóm, inniblóm, pottablóm- hópinn á Facebook. Þessar síður eru mjög vinsælar. Ekki misskilja mig. Plöntur eru vissulega frábær leið til þess að gera heimilið hlýlegra, fallegra, heimilislegra og einfaldlega betra. En sá böggull fylgir skammrifi að það er ekki einfaldlega hægt að skilja við þær eftirlitslausar til lengri tíma. Nú er ferðahugur í mörgum og ólíklegasta fólk er farið að koma sér upp útilegugræjum fyrir sumarið. Nú á sko að upplifa Ísland í allri sinni dýrð, því ekki er í boði að skjótast til Tene eða Bene sjöunda sumarið í röð. En hvað á að gera við blómin á meðan? Hér eru nokkrar leiðir, sem vefmið- illinn Apartment Therapy hefur tekið saman, til þess að halda lífi í jurtabörnunum á meðan þú þeysist á milli fossa og jökla á fögru landi ísa. Hvað verður um plönturnar á meðan þú ert í sumarfríi? Nýtt „trend“ hefur tekið sér bólfestu í landanum. Líkt og tískan sem fer sífellt í hringi, hefur þetta æði ekki verið jafnríkjandi síðan það toppaði, á sjöunda og áttunda áratugnum. Einhver þarf þó að hugsa um þessa dýrgripi á meðan fólk skreppur í ferðalag. Ýmis ráð eru til við vökvun blóma. Gott er að safna plöntunum á einn stað í íbúðinni, til að auðvelda vökvun- ina fyrir plöntupíuna. Það gerir starfið einfaldara fyrir þann sem vökvar. Ýmsar leiðir er hægt að fara til þess að halda lífi í þessum gleðigjöfum heimilisins. „Terrarium“ aðferðin Byrjaðu á því að fjarlægja öll dauð lauf af plöntunum áður en þú ferð í frí. Gefðu hverri jurt vel að drekka, en passaðu að fjarlægja allt vatn úr undirskálum svo að plönturnar drukkni nú ekki. Komdu öllum blómum og jurtum fyrir á stað í íbúðinni þar sem kemur ekkert beint sólarljós. Baðker með stein- völum og smá vatni í botninum henta oft vel. Einnig er hægt að nota bakka með steinvölum og smá vatni. Næst skaltu leggja plastfilmu yfir plönturnar til þess að búa til eins konar innanhúss gróðurhús. Notaðu spýtur eða annað til að halda plastinu af plöntunum. Rakinn sem myndast frá vatninu í botninum helst innan plastsins og getur haldið plöntunum þínum hamingjusömum í allt að tvær vikur. Einnig er hægt að búa til „terr- arium“ fyrir hverja plöntu fyrir sig. Gerðu göt á plastið svo það hleypi lofti inn og út og lokaðu pokaop- inu með teygju eða öðru. Vökvunarkúlur Vökvunarkúlur fást í ýmsum blómabúðum og geta haldið plöntunum þínum votum í nokkra daga og jafnvel vikur, en tíminn fer eftir því hversu þurrt eða rakt andrúmsloftið er og hversu mikið vatn plantan þarf. Sumir nota vökvunarkúlur hvort sem þeir eru í fríi eða ekki, enda afar hentugar og þægilegar í notkun. Sjálfvökvandi kerfi Einnig er hægt að nota sjálfvökv- andi kerfi, sem flytja vatn frá vatnsuppsprettu til plantnanna. Hægt er að fjárfesta í slíku kerfi eða búa það til sjálfur. Grunnhug- myndin er að nota gegnumbleyt- anlegt efni, eða rör, sem tengir jarðveg plöntunnar við vatnstank svo að plantan geti tekið til sín það vatn sem hún þarf. Einnig eru til kerfi sem vökva margar plöntur í einu. Haltu jarðveginum rökum Hér er grunnhugmyndin sú að koma í veg fyrir að jarðvegurinn þorni upp. Þá er hægt að bæta við vatni í moldina, sem og að auka við jarðveginn svo hann haldi meira vatni í sér. Rakakristallar fást í blómabúðum og hjálpa til við að halda jarðveginum rökum til lengri tíma. Þá er einnig hægt að klippa raka- dræga hlutann úr bleyjum, bleyta hann upp og setja í jarðveginn. Passaðu að setja úrklippuna í hliðina á pottinum og að hann sé ekki fyrir dreninu. Einnig má setja blautt dagblað ofan á jarðveginn til að halda honum votum í ein- hverja daga. Svo er hægt að umpotta plöntunni áður en maður heldur í frí. Ferskur jarðvegur heldur meira vatni og þornar síður. Ráddu til þín plöntupíu Ef þú þekkir einhvern sem þú treystir, sem er tilbúinn að koma við heima hjá þér og vökva plönt- urnar þínar endrum og eins, er það auðvitað frábær kostur. Passaðu að skilja eftir nákvæmar leið- beiningar um hvað hver planta vill og íhugaðu það að setja plönturnar allar á sama stað, sem fær næga, óbeina birtu. Það er einnig þægi- legra fyrir plöntupíuna að geta vökvað allar plönturnar í einu og hann eða hún þarf ekki að ganga út um allt hús að leita að plöntum til að vökva. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.