Fréttablaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 52
Það að stofna til f jölskyldu er ein af stóru ákvörðunum lífsins, í kjölfar þess að hafa fundið þann eina eða einu réttu sem stefnt
er að því að eyða ævinni með, eru
barneignir hluti af næstu skrefum
hjá mjög mörgum. Eins og við
þekkjum þá er lífið samt ekki alveg
svona einfalt og ekki endilega í ein
hvers konar röð og reglu.
Það væri býsna sérstakt ef allir
færu sömu leið. Sumir geta skipu
lagt og undirbúið sig undir það að
stofna fjölskyldu, aðrir eru komnir
á þann stað í upphafi sambands og
þannig mætti lengi telja. Þá eru til
pör sem glíma við erfiðleika við að
eignast barn og er f lækjustigið þá
orðið enn hærra.
Náttúran ræður för
Í líffræðilegum skilningi er það svo,
að það þarf talsvert mikið til að geta
eignast barn, það þarf allt að ganga
upp ef svo má segja og náttúran sér
svo sem um það mestmegnis sjálf.
Þegar við erum ung þá eru meiri
líkur á þungun og sömuleiðis eru
þá meiri líkur almennt á að eignast
barn sem er heilbrigt. Þetta er þó,
eins og allt annað, ekki algilt.
Við vitum að með auknum aldri
kvenna minnkar frjósemi þeirra og
að sama skapi er ákveðin áhætta á
vandamálum sem geta fylgt bæði
meðgöngunni sjálfri og heilbrigði
barnsins. Fósturgallar eru algeng
ari með auknum aldri, þá er einnig
líklegra að konur sem eru eldri en
35 ára geti misst fóstur snemma á
meðgöngu.
Rannsóknir hafa einnig sýnt fram
á aukna áhættu á að þróa með sér
vandamál líkt og meðgöngusykur
sýki, að legkaka verði fyrirstæð,
aukna hættu á blæðingum og hækk
andi keisaratíðni. Það að fæða fyrir
tímann hefur verið hluti af þessari
umræðu einnig og eru menn ekki
alveg sammála um hvort aukinn
aldur sé þar hluti af f leiri fyrirbura
fæðingum.
Frumbyrjur eldri en áður
Með breytingum á lífsstíl, umhverfi
okkar, menntun og starfi, hefur þró
unin á Vesturlöndum og víðar orðið
sú að konur eignast sín fyrstu börn
síðar en áður og er þess vegna verið
að horfa til aldursbila, þegar rann
sóknir eru gerðar á meðgöngu og
fæðingu kvenna. Við höfum einnig
glímt við það í gegnum tíðina að það
að konur eignist börn of snemma og
séu ekki tilbúnar að stofna til fjöl
skyldu, getur að sama skapi haft
veruleg áhrif á líf einstaklinga.
Þannig að það er ekki til neitt eitt
svar við því hvenær er rétti tíminn
og þurfa einstaklingar og pör að
hafa það í huga.
Það má heldur ekki gleyma því að
það geta verið kostir við að eignast
barn síðar á lífsleiðinni og fyrir
utan þekkta áhættu sem ég kem
að hér að ofanverðu, eru gögn sem
styðja það að börn mæðra sem fæða
eftir 35 ára aldurinn séu mögulega
með minni líkur á hegðunarrösk
unum og félagslegum vanda síðar
á lífsleiðinni, svo eitthvað sé nefnt.
Þarna vantar okkur enn talsvert af
gögnum til að geta fullyrt slíkt með
einhverri vissu.
Stress og frjósemi
Streita og álag vega mjög þungt í
getu okkar til að eignast börn og er
umræða um það að bæði frjósemi
karla og kvenna líði verulega fyrir
slíkt ástand. Með nýrri tækni og
aukinni þekkingu erum við á þeim
stað í dag að geta aðstoðað pör við
barneignir með allt öðrum hætti en
þekkst hafði. Það fylgir mikil van
líðan því að geta ekki eignast börn
og að reyna ítrekað en mistakast,
jafnvel með aðstoð frjósemisað
gerða. Það er ekki hægt að tryggja
að slík meðferð gangi upp, en okkur
hefur miðað vel á síðustu árum.
Við þekkjum dæmi þess einnig að
pör hafi með aðstoð eignast börn,
eftir að hafa reynt árangurslaust um
árabil að geta barn, í kjölfar þeirrar
hamingju eignast parið jafnvel aftur
barn án allrar aðstoðar. Það er sér
stakt rannsóknarefni og er verið að
skoða í dag.
Að eignast barn
Ákvörðunin ein og sér um að vilja eignast barn hrekkur skammt, þar sem margt þarf að
ganga upp til þess að getnaður eigi sér stað, og náttúran er við völd og ræður úrslitum.
Í líffræðilegum
skilningi er það
svo, að það
þarf talsvert
mikið til að geta
eignast barn.
Teitur
Guðmundsson
læknir
Magasýra og framleiðsla hennar fer fram með reglubundnum hætti og er hluti
af meltingu okkar og nauðsynleg til
að brjóta niður matinn og stuðla að
upptöku næringar. Þessi sama sýra
getur líka verið til vandræða, en
maginn er með náttúrulega vörn
gegn lágu sýrustigi ef hann er heil
brigður og við finnum alla jafna
ekki fyrir honum.
Þegar magasýran sem við fram
leiðum lekur upp eftir vélindanu
sem er ekki útbúið sömu vörnum
og maginn, finnum við fyrir brjóst
sviða eða bakflæðieinkennum. Ekki
finna allir eins fyrir þessu og getur
sumt fólk upplifað uppþembu, ropa
og aukið loft, verki fyrir brjósti og
kyngingartruflanir eru oft nefndar
sem einkenni. Þeir sem hafa bak
f læði á nóttunni geta upplifað
hósta, ræskingar að morgni, verri
svefngæði og versnun á lungnasjúk
dómum eins og astma.
Það getur verið fullkomlega
eðlilegt að finna fyrir brjóstsviða
til dæmis eftir að hafa borðað eða
drukkið fullmikið, ákveðnar fæðu
tegundir ýta sérstaklega undir
sýringu og aukin einkenni. Ef þetta
er af og til er kannski ekki ástæða
til að gera mikið í málinu og ef aug
ljósar ástæður liggja að baki. Hins
vegar er rétt að leita læknis og fá
mat á því ef einkenni koma fram
reglulega eða eru tíð. Sérstaklega
ef upp koma versnanir, kyngingar
truf lanir, tannlæknirinn sér gler
ungseyðingu í skoðun sem er ekki
hægt að tengja við annað og þannig
mætti lengi telja.
Ef einkenni eru ítrekuð og lang
varandi getur það leitt til vandræða
í vélinda, þar sem slímhúðin getur
breytt sér og jafnvel myndað mein
sem eru verulega erfið meðhöndl
unar. Það er því gott ráð að skoða
vel mataræði, inntöku og samhengi
við einkenni. Draga úr neyslu þeirra
matvæla sem ýta undir, sofa með
hátt undir höfði. Sumir vilja nota
sýrustillandi sem er hægt að kaupa
í apóteki og svo auðvitað lyfseðils
skyld lyf sem hindra framleiðslu sýr
unnar. Eðlilegt er þó að leita læknis
og jafnvel láta meta með magaspegl
un ástand slímhúðar og leggja upp
með plan fyrir framhaldið.
Góð ráð gegn
bakflæðinu
Brjóstsviði er stundum fullkomlega
eðlilegur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Í dag vitum við að krabbamein þróast að hluta til vegna smitsjúkdóma sem herja á okkur
mannfólkið og eru túlkaðir sem
sérstakir áhættuþættir fyrir því að
mynda það. Slíkir sjúkdómar geta
verið lúmskir og tekið langan tíma
að þróast í þessa átt hjá sjúklingum.
Það er því mikilvægt að vera vel
meðvitaður um þá áhættu og reyna
að verjast þeim. Í dag erum við til
dæmis búin að innleiða í íslensku
heilbrigðiskerfi bólusetningu gegn
veiru sem kölluð er Human Papil
loma Virus eða HPV og fá ungar
stúlkur slíka við 12 ára aldur í
heilsugæslu, sem hluta af almenn
um forvörnum.
Það er þekkt að vörtuveiran svo
kallaða er með mörg af brigði líkt
og veirur eru gjarnan, en talið er að
ákveðnir stofnar hennar sé sérstak
lega krabbameinsvaldandi og séu til
að mynda meginorsökin fyrir því að
konur þróa með sér leghálskrabba
mein. Hluti af átaki til forvarna
gegn krabbameinum eins og þekkt
er, fer fram með skimun í leghálsi
eftir frumubreytingum, sem oftar
en ekki tengjast einmitt þessum
tegundum veiru. Bóluefnið er hér
talið vernda konur gegn þessari vá.
Þá má þó ekki gleyma því að
kynfæravörtur eða vörtuveiru
sjúkdómur af þessum toga er einn
ig algengur hjá körlum og hefur
ekki náðst í gegn að unglingspiltar
verði bólusettir til jafns við stúlkur.
Krabbamein af völdum HPV veiru
er ekki bundið við legháls, þó það
sé algengast, heldur getur það einn
ig myndast við endaþarm, munn
hol, getnaðarlim og í raun í slímhúð
almennt. Þannig er frægt krabba
Kynsjúkdómar og krabbamein
Smokkurinn er
eina raunveru-
lega forvörnin
gegn kynsjúk-
dómum. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/GETTY
meinið hans Michael Douglas,
Hollywood leikara, sem hann fékk
af völdum þessarar veiru í hálsinn
og fannst við speglun og skoðun á
hálsi vegna þrálátra einkenna hans
þar.
Aðrir smitsjúkdómar sem falla
undir f lokk kynsjúkdóma og geta
valdið krabbameinum er HIV veiru
sjúkdómur, en við framgang hans og
veiklun ónæmiskerfisins kemur upp
krabbamein sem kallað er Kaposi
sarkoma og getur komið fram í húð
og öðrum líffærum, sem og eitlum.
Þá er aukin áhætta á B frumu meini,
svokallað Non Hodgkin’s Lymp
homa og svo líkt og við vörtuveiru
er aukin áhætta á leghálskrabba
meini hjá þeim sjúklingum sem
þróa alvarlegri stig sjúkdómsins.
Lifrarbólga B og C sem smitast
einnig við kynmök er veirusjúk
dómur sem getur leitt til lifrar
krabbameins og er vel þekkt teng
ing þar á milli. Aðrir kynsjúkdómar
valda síður krabbameinum, þó það
sé ekkert útilokað í grunninn. Mik
ilvægt er að átta sig á því að þessir
sjúkdómar eru vitanlega í grunn
inn ekki jafn alvarlegir. Engin bólu
setning er til við lifrarbólgu C né
við HIV, en þróun meðferðar hefur
gefið góða raun á undanförnum
árum. Krabbamein er alltaf alvar
legur hlutur og því er mikilvægt
að vera vel á varðbergi og nota
smokkinn, sem er eina raunveru
lega forvörnin gegn því að smitast
af kynsjúkdómum, auk þess að
hindra annan vessa og slímhúðar
kontakt. Förum varlega og förum í
tékk reglulega.
STREITA OG ÁLAG VEGA
MJÖG ÞUNGT Í GETU
OKKAR TIL AÐ EIGNAST
BÖRN .
1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð