Fréttablaðið - 11.07.2020, Síða 35

Fréttablaðið - 11.07.2020, Síða 35
Mímir–símenntun leitar að öflugum náms- og starfsráðgjafa/verkefnastjóra í fullt starf. Leitað er að sjálfstæðum og lausnamiðuðum aðila sem hefur brennandi áhuga á sviði fullorðins- og framhaldsfræðslu auk þess sem reynsla af vinnutengdri ráðgjöf er kostur. NÁMS - OG STARFSRÁÐGJAFI Starfssvið: • Veita fullorðnu fólki ráðgjöf í formi náms- og starfsráðgjafar. • Kennsla tengd náms- og starfsráðgjöf, m.a. á vinnustöðum. • Framkvæmd raunfærnimats, námskeiða/ námsbrauta, m.a. í samstarfi við vinnustaði. • Hæfnigreining starfa og greining fræðsluþarfa á vinnustöðum. • Atvinnutengd ráðgjöf og þjónusta á vinnustöðum, m.a. vegna breytinga á vinnumarkaði í tengslum við fjórðu iðnbyltinguna. • Ýmiss konar kynningar og þróun virkniúrræða í samstarfi við atvinnulífið. • Umsjón með og/eða þátttaka í innlendum og erlendum þróunarverkefnum. • Ýmis tilfallandi verkefni. Hæfnikröfur: • Leyfi mennta- og menningarmálaráðuneytisins til að kalla sig náms- og starfsráðgjafa. • Reynsla af náms- og starfsráðgjöf er kostur. • Þekking og reynsla af atvinnutengdri ráðgjöf og samstarfi við vinnustaði er kostur. • Þekking á raunfærnimati er kostur. • Þekking á framhaldsfræðslukerfinu og/eða starfi símenntunarmiðstöðva er kostur. • Miklir hæfileikar til samskipta og samstarfs. • Geta til að sýna frumkvæði, útsjónarsemi og hæfni til að vinna sjálfstætt. • Gott vald á íslensku og ágæt færni í ensku. • Gott tölvulæsi. Mímir er fræðslufyrirtæki sem starfar á sviði framhaldsfræðslu og starfsmenntunar. Meginmarkmið Mímis er að skapa tækifæri til náms fyrir fólk með stutta formlega skólagöngu og hvetja fólk á vinnumarkaði til símenntunar og starfsþróunar. Annað meginmarkmið er að bjóða upp á fjölbreytta kennslu í íslensku sem öðru máli, sem og tungumálanámskeið. Skipulag námsins tekur mið af þörfum vinnandi fólks og atvinnulífsins hverju sinni. Gildin fagmennska, framsækni og samvinna eru leiðarljós í öllu starfi Mímis. Nánari upplýsingar á www.mimir.is Umsóknarfrestur er til og með 9. ágúst nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Vertu meira! Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á hagvangur.is. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is Kerecis er alþjóðlegt nýsköpunarfyrirtæki sem hagnýtir roð og fitusýrur til þróunar og framleiðslu á heilbrigðisvörum. Tækni Kerecis er notuð til að verja og endurbyggja líkamsvef. Vörur fyrirtækisins eru t.d. notaðar til meðhöndlunar á húðvandamálum, þrálátum sárum, brunasárum, til enduruppbyggingar brjósta og kviðveggs og til að verja vefi líkamans fyrir smiti. Yfir 50 útgefin einkaleyfi verja tækni Kerecis í fjölmörgum löndum og markaðsleyfi eru til staðar í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Í Bandaríkjunum eru vörur Kerecis m.a. notaðar af mörgum stærstu spítölum landsins. Tækni félagsins hefur vakið athygli á heimsvísu og á félagið í samstarfi um þróun og notkun á tækni þess víða um heim m.a. við bandarískar varnarmálastofnanir. Yfir 100 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu á Ísafirði, í Reykjavík, Sviss og í Bandaríkjunum. Á Íslandi, Sviss, Þýskalandi og í Bandaríkjunum selur Kerecis vörur sínar beint til heilbrigðisstofnanna, en á öðrum markaðssvæðum gegnum dreifingaraðila. Árin 2017, 2018 og 2019 hlaut Kerecis viðurkenningu Vaxtarsprotans sem veittur er þeim fyrirtækjum á Íslandi sem vaxa hraðast ... og svo unnum við Evrópumeistaramót Mýrarboltans 2018 og 2019! VERKSMIÐJUSTJÓRI (VP PLANT OPERATIONS) Kerecis leitar að öflugum verksmiðstjóra til að leiða framleiðslu fyrirtækisins á Ísafirði. Helstu verkefni: • Ábyrgð á allri framleiðslustarfsemi á Ísafirði • Innleiðing á nýjum vörum, verkefnum og framleiðsluferlum í framleiðslu. • Yfirumsjón með stækkun og breytingu á verksmiðju • Staðsetning: Ísafjörður Menntunar-og hæfniskröfur: • Reynsla af framleiðslustjórnun (amk 5 ár) • MSc eða BSc á sviði verkfræði eða raungreina • Reynsla og þekking af gæðastjórnunarkerfum • Sterk stjórnunar- og leiðtogahæfni • Framúrskarandi skipulagshæfni

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.