Fréttablaðið - 11.07.2020, Side 36
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laus til umsóknar tvö embætti dómara við Hæsta-
rétt Íslands. Stefnt er að því að skipa í embættin frá 1. september 2020 eða hið
fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið
störfum. Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016, sbr. lög nr.
79/2019.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 13. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við
4. gr. reglna nr. 620/2010, um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda
um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun
og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum,
4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum
akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur,
fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum auka-
störfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetn-
ingar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar um
andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) upplýsingar um tvo fyrrverandi
eða núverandi samstarfsmenn eða yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munn-
lega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar
upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem
máli skipta fyrir störf hæstaréttardómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma
í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12
mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið
og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem um-
sækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tíma-
ritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið
ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni um-
sækjanda til að starfa sem hæstaréttardómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 27. júlí nk. Til þess að
hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn
berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið
starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
10. júlí 2020.
Tvö embætti dómara við
Hæstarétt Íslands laus til umsóknar
Staða æskulýðsfulltrúa hjá
Lágafellssókn, Mosfellsbæ
Lágafellssókn í Mosfellsbæ auglýsir lausa til
umsóknar stöðu æskulýðsfulltrúa. Um er að ræða nýtt
50% starf, frá og með 15. ágúst 2020.
Æskulýðsfulltrúi tekur þátt í mótun, skipulagningu og
annast barna og æskulýðsstarf í Lágafellssókn.
Æskilegt er að æskulýðsfulltrúi hafi uppeldis-, leið-
toga-, djákna- eða guðfræðimenntun og/eða haldgóða
reynslu sem nýtist í starfi. Jákvætt viðhorf til kirkju-
starfs er forsenda fyrir velgengni í starfi. Umsækjandi
þarf að geta sýnt frumkvæði og unnið sjálfstætt.
Með umsókn veitir umsækjandi Lágafellssókn heimild
til að afla sakarvottorðs.
Nánari upplýsingar um starfslýsingu æskulýðsfulltrúa
er að finna á heimasíðu Lágafellssóknar,
www.lagafellskirkja.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rafn Jónsson,
formaður sóknarnefndar í síma 896 8916 og/eða
sr. Ragnheiður Jónsdóttir sóknarprestur safnaðarins,
í síma 869 9882.
Umsóknir ber að senda rafrænt á netfangið:
lagafellskirkja@lagafellskirkja.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst 2020.
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Leikskólinn Bæjarból
• Deildarstjóri
Leikskólinn Holtakot
• Deildarstjóri
Leikskólinn Kirkjuból
• Aðstoðarleikskólastjóri
• Deildarstjóri
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
Erum við
að leita að þér?
Hafnargæslumaður við Grundartangahöfn.
Faxaflóahafnir sf. óska eftir að ráða hafnargæslumann við Grundartangahöfn.
Starfið felst m.a. í aðgangsstjórnun og öryggisgæslu á afgirtu og lokuðu farmsvæði
Grundartangahafnar og almennri hafnargæslu þar. Vakt er allan sólarhringinn samkvæmt 8 tíma
vaktakerfi.
Starfsstöð starfsmanns er í vakthúsi Grundartangahafnar.
* Meginverkefni eru aðgangsstjórnun, öryggisgæsla, eftirlit með farmverndarskjölum,
skráning á umferð og farmi auk annarra starfa tengt starfssviði viðkomandi starfs.
* Hæfniskröfur eru gott líkamlegt og andlegt ástand, góð íslensku-, ensku-, og almenn
tölvukunnátta.
Um gæslu farmsvæðisins gilda ákvæði laga um hafnavernd og því er óskað eftir að umsækjandi
leggi fram hreint sakavottorð með umsókn sinni.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar
en föstudaginn 31. júlí n.k.
Nánari upplýsingar um starfið gefur
Bergsteinn Ísleifsson, öryggisfulltrúi bergsteinn@faxafloahafnir.is
Faxaflóahafnir hafa staðist jafnlaunavottun og hlotið Jafnlaunamerki Jafnréttisstofu.
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R